Heimilisritið - 01.01.1947, Side 20

Heimilisritið - 01.01.1947, Side 20
kringluleitt og góðlegt og svo hafði hann afar breiðar herðar. Hinn pilturinn hét Viktor. Hann var dálítið eldri en Hannes og hún sjálf, nefnilega tuttugu og þriggja ára. Iíann var að stúdera og liafði engar fastar tekjur ennþá. En fað- ir hans var efnakarl, kaupmaður á Vesturlandi. Viktor var fölur í and- liti, fínn og fallegur og ákaflega lærður. Hún hafði bara þekkt liann í nokkra mánuði, en bar fjarska mikla virðingu fyrir honum. Sjálf hafði hún aldrei verið neitt fyrir bókina; það var með naumindum hægt að ferma hana hérna urn ár- ið, en hún hafði alltaf dáðst að fólki, sem kunni mikið. Svo var nú Viktor svarthærður. Og augun í honum voru stór og starandi. Stundum var hún dálítið hrædd við hann; hann var svo vitur og /sagði svo margt undarlegt. Nú og sennilega var hún eitthvað skotin í honum líka; það var ekki gott að vita, nema hún væri bara meira skotin í honum en Iíannesi! Hún var að hugsa um þetta vandasama málefni alla leiðina heim til sín. — Það var allra fall- egasta vorkvöld, hlýtt í veðri og blómaangan úr göi’ðunum. Og hún var eitthvað svo skrítin um sig alla; — ætli það væx-i ekki bezt, að hún'trúlofaðist honum Viktor? Hann bað hennar annan hvern dag og var þegar búinn að kaupa hringa. 1 hringana var grafið: Þín 18 ástfólgna Berit og Þinn ástfólgni Viktor. Þetta voru ljómandi lagleg- ir gripir og hún hafði aldrei á æv- inni átt neinn hi’ing. Hannes talaði ekki mikið um ástir og þess háttar, en hún vissi mætavel hvað honum leið fyrir því. En Hannes var fátækur og Viktor át'ti stóran arf í vændum. — Hún • var orðin afskaplega leið á fátækt- inni. Og nú var hún átján ára og gat gifzt, hvenær sem hún vildi. Svo var nú vorið og blíðan;, — æ maður varð alltaf eitthvað svo undarlegur á vorin! Hún bjó hjá kerlingu, sem leigði út herbergi upp á Hverfisgötu. Herbei’ginu fylgdi morgunmatur og kvöldverður og fyrir þetta boi’gaði hún áttatíu krónur á mánuði. Morgunverðurinn var kaffi með einni hveitibrauðsneið, en kvöld- maturinn var tvær- brauðsneiðar með kaffi. Kerling leit út eins og hún nærðist mestmegnis á ediki, og hún var alltaf að tala um hvað hei'bergið og maturinn væri ódýr hjá sér. Berít litla var síhrædd um, að hún myndi hækka leiguna þá og þegar. Hei-bei'gið var lítið og húsgögnin voru: járnrúm, sem ui'raði allt og tísti, hvað lítið sem maður hreyfði sig í því, draghaltur stóll og emal- lerað þvottaborð. En Berít litla hafði gert það eins vistlegt og hún gat, með því að líma myndir úr útlendum blöðum á veggina. HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.