Heimilisritið - 01.01.1947, Blaðsíða 27
Grein ejtír JOHN GUNTHER
rituð meðan Mussolini var á líji
— framhald úr síðasta hefti
v
Mussolini
og stórveldisdraumar hans
Fyrst var sagt að Mussolini hefði
sent Balbo í útlegð, vegna þess að
flugferðin hefði skapað honum of
mikla lýðhylli. En sýnilegt er, að
ekki hefur minna ráðið náin vin-
átta Balbos og Umbertos, ítalska
ríkiserfingjans, sem gerðist á þeim
tíma mjög fráhverfur fasistum.
Einu sinni, þegar Balbo var flug-
málaráðherra, varð Mussolini óá-
nægður með kostnaðaráætlun lians
til flugmálanna. Þegar Balbo kom
í Veneziuhöllina, sér hann að stóll-
inn, sem stóð vanalega við skrif-
borð Mussolinis, er farinn, en
Mussolini situr sem fastast. Þetta
táknaði, að nú átti að hirta Balbo
eins og skólastrák. Hann átti að
standa meðan hann talaði. En
Balbo gerði sér h'ægt um vik og
tyllti sér á skrifborðið fyrir framan
Mussolini.
Höfð eru eftir Balbo ummæli,
sem sýna hvað hugsunarháttur
fasista fyrr á árum var líkur því,
sem síðar kom í ljós í Þýzkalandi:
„Þegar ég kom aftur úr styrj-
öldinni — alveg eins og margur
annar — hafði ég skömm á stjórn-
málum og stjórnmálamönnum.
Þeir höfðu að mínu viti brugðizt
vonum hermannanna, og samið
háðulegan frið fyrir Ítalíu. Attum
við að berjast og fórna blóði okkar
fyrir Giolitti, sem prangaði með
allar hugsjónir. Nei, þá var betra
að neita öllu, eyðileggja allt, til
þess að reisa síðan allt að nýju frá
grunni“.
Emilio de Bono marskálkur er
einni kynslóð eldri en Balbo, fædd-
ur 1866. Hann var fyrsti yfirhers-
höfðinginn í Abessiniu. Hann
stjórnaði herdeildinni, sem Musso-
lini var í, í styrjöldinni. Honum
rann „hrun“ Ítalíu svo til rifja á
árunum 1919 og 1920 að hann sagði
af sér hershöfðingjastöðunni og
gekk í flokk fasista. Hann stundar
hijómlist sér til skemmtunar og
samdi fyrsta hergöngulag svart-
stakka. Hann var landstjóri í Tri-
HEIMILISRITIÐ
25