Heimilisritið - 01.01.1947, Side 29

Heimilisritið - 01.01.1947, Side 29
anum. Sumarið 1935 kvað Musso- lini hafa orðið bálreiður við Grandi, af því honum hafði láðst að til- kynna, að Bretar mundu hafa for- ustuna í refsiaðgerðum gegn Ítalíu. En það voru fleiri en Grandi sem þar fóru villir vegar. Grandi er meðeigandi í Sorima-félaginu í Genoa. Það var félagið sem náði gullinu úr eimskipinu Egypt, sem legið hafði lengi á sjávax-botni og þykir það eitthvert mesta björgun- arafrek sem sögur fara af. Grandi er hið mesta ljúfmenni, og senni- lega vinsælastur allra erlendra sendimanna við hirð Bretakonugs. í OKTÓBERMÁNUÐI 1935 hófst styrjöldin gegn Abessiníu. ítalir þykja kaldrifjaðir þegar því er að skipta, og Mussolini lét sig hafa „að traðka þeim samningum, sem hann hafði lofað að halda, til þess að ræna og yfirbuga land, sem hann hafði-lofað að verja“. Árurn saman hafði hann haft í hótunum, um leiðangur austur á bóginn. Hann þurfti á auknu land- rými — nýlendum — að halda handa ítölum. En Vesturland^bú- ar voru orðnir svo vanir bægsla- gangi, að þeir áttuðu sig því mið- ur ekki á, að í þetta sinn var al- vara á ferðum. Við skulum staldra við augna- blik og athuga noMiur grundvall- ai’atriði í fjárhags- og atvixinumál- um Ítalíu. íbúar Ítalíu eru 42 milljónir, jafnmargir og Frakklands, en land- rýmið er ekki nema þriðjungur móts við ræktanlegt land á Frakk- landi. Þjóðinni fjölgar svo furðu- lega ört, að fjögur hundruð og fimmtíu þúsund fæðingar bætast við á ári. Allur þorrinn stundar akuryrkju. Aðeins 10. hluti þjóð- arinnar lifir á iðnaði. Landið skort- ir sérstaklega hráefni. 99% af bómull verður að flytja inn, 80% af ull, 95% af kolum, 99% af steinolíu, 80% af járni og stáli, 99% af kopar. Þótt Mussolini hafi barizt mjög fyrir auknum land- búnaði, þá eru þó ekki framleidd nægileg matvæli til neyzlu í land- inu sjálfu. Það verður að flytja inn 15% af kjöti og 20% af korn- vörum. Starf Mussolinis á fyrstu árum fasismans var að gera þetta land, sem svo fátækleg skilyrði hefur frá uáttúrunnar hendi, að stórveldi. Honum tókst það að vísu, en kostnaðuiúnn var óskaplegur. Skattarnir uxu þangað til þeir voru orðnir 38% af tekjum þjóðar- innar. Vei-zlunai-jöfnuðurinn var óskaplega óhagstæður. Tekjuhall- inn á fjárlögunum jókst úr £ 11.- 000.000 1930—31, upp í £ 60.000,- 000 1932—33 og £ 107.000.000 1933—34, en það voru 25% af öll- um tekjum þjóðaiúnnar. Undirbún- ingurinn undir Abessiníuleiðangur- inn, áður en styrjöldin hófst, kost- HEIMILISRITIÐ 27

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.