Heimilisritið - 01.01.1947, Side 32
að snúa almenningsálitinu í heim-
inum gegn Ítalíu, þegar styrjöldin
hófst 1935.
Arið 1925 áttu þeir Mussolini og
Sir Austen Chamberlain í samn-
ingum um Abessiníu og voru þar
ákvörðuð hagsmunasvæði hvors
landsins um sig. Bretar vildu gera
stíflu hjá Tsana-vatninu. Og í
launaskyni fyrir samþykki ítala og
stuðning til þessarar framkvæmd-
ar lofuðu þeir að viðurkenna
„einkaumráð ítala til atvinnu-
starfsemi í vesturhluta Abessiníu'1
og að veita stuðning ítalskri fyrir-
ætlan urn járnbrautarlagningu
þvert yfir Abessiníu, til þess að
tengja saman Eritreu og Somali-
land. En nú var Abessinía kornin
í Þjóðabandalagið og keisarinn
Haile Selassie (sem þá var ríkis-
stjóri) mótmælti svo kröftuglega,
að .samkomulagið féll úr gildi.
Arið 1928 gerði Ítalía vináttu-
samning við Abessiníu. í annarri
grein samningsins skuldbundu
stjórnir beggja ríkjanna sig til „að
gera ekki neitt, sem skaðað gæti
fullveldi hins ríkisins“. Svo liðu
sjö ár þángað til Mussolini hjó.
Fyrstu atburðirnir urðu við
Walwal 5. desember 1934 og hafa
verið nefndir „landamerkjaskær-
ur“. En í raiin og veru iiggur Wal-
wal hér um bil 100 mílur frá Soma-
lilandi, töluvert langt inni í Abes-
siníu. Þetta sást jafnvel á ítölskum
kortum eins og þau voru þá (en
þeim var breytt í skyndi). Bardag-
inn byrjaði þegar sameiginleg
landamæranefnd Breta og Abes-
siníumanna rakst á ítalska her-
sveit við Walwal. Bretar drógu sig
í hlé, en Abessiníumenn börðust.
Þrjátíu og tv.eir ítalir og eitt
hundrað og tíu Abessiníumenn
voru drepnir. Líklega héfur þetta
verið átyllan, sem Mussolini var
að bíða eftir. Að minnsta kosti
sendi hann strax stóryrta úrslita-
kosti til Addis Abeba, krafðist þess
að Abessiníumenn bæðu fyrirgefn-
ingar, heilsuðu ítalska fánanum og
greiddu £ 20.000 í skaðabætur.
Það sem síðan gerðist er öllum
kunnugt. Brezka heimsveldið tók
að hreyfast. (Framhald).
- Skrítlur -
SNEMMA Á FERLI
— Hvað ferðu snemma fram úr á morgnana?
— Klukkan sjö.
— Svo snemma?
— Já, en þá fer ég bara niður til að sækja morgunblaðið og legg mig svo
aftur.
30
HEIMILISRITIÐ