Heimilisritið - 01.01.1947, Page 33

Heimilisritið - 01.01.1947, Page 33
ÓFRÍÐ OG ÖRVINLUÐ. Sp.: Kæra Eva mín. Eg leita þín í öng- um mínum, eins og svo margir aðrir. Þatm- ig er mál með vexti, að ég er ólagleg og það vill enginn strákur líta.við mér. Eins og þú skilur fellur mér þetta þungt, en fæ ekkert að gert. Nú veit ég samt, að marg- ar, ef ekki flestar, ófríðar stúlkur giftast, en þó liggur mér við að örvænta. Skyldi mig ekki skorta eitthvað meira en fríð- leikann, til að Iaða karlmenn að mér? Geturðu gefið mér nokkur heilræði? Hornreka. Sv.: Það er fjarri lagi, ef þú heldur að fríðleikinn sé fyrsta skilyrðið til þess að krækja sér í karlmann. Þú skalt bægja frá þér af alefli þeirri vanmáttarkennd, sem mér virðist þú liafa í sambandi við útlit þitt. Þjálfaðu líkama þinn, vertu helzt sem fullkomnust I einhverri útiíþrótt. Vendu þig á hressilegt og jafnframt tigulegt lát- bragð. Það er mikið atriði að þú berir þig vel og hafir hraustan og magnþrung- inri líkajna, meira atriði en smekkvísi I klæðaburði, þótt bezt sé að það fari saman. Þó að andlitsdrættir þínir séu ef til vill ekki fullkomnir, þá geturðu lagt rækt við að fegra þá með fegrunarlyfjum, vanda hárgreiðsluna vel og snyrta hendur þínar af kostgæfni. Láttu þér ekki sjást yfir neitt smáatriði frá hvirfli til ilja, allt á að vera hreint, smekklegt og fagurt. Gættu þess vel, þegar þú velur þér fatn- að. að liturinn sé í góðu samræmi inn- byrðis og einnig við litarhátt þinn. Ef þú ert hörundsdökk og svarthærð þarftu að velja þér aðra liti en stúlka sem er hör- undsbjört og dökkhærð eða þá ljóshærð. Og svo máttu ekki gleyma því að vera léttlynd og bjartsýn, vekja birtu og fögn- uð í kringum þig. Reyndu að gleyma sjálfri þér, þegar þú ert innan um aðra, og þá mun allt lagast. HVAÐ Á ÉG AÐ SEGJA? Sp.: 1. Einnst þér ekki óviðkunnanlegt, þegar leigubílstjóri fer að halda upp sam- tali við þig? Ilvernig á maður að gera lionum I skyn, að maður kæri sig ekki um að tala við hann, nema það sem nauðsyn krefur? 2. Hvað á ég að segja, þegar einhver er kynntur mér? 3. Ég er 18 ára og 167 sm. há. Hvað á ég að vera þung? Anna. Sv.: 1. Það getur oft verið gagníegt og skemmtilegt að spjalla við leigubílstjóra, þegar maður þarf að fá upplýsingar um eitthvað. En ef hann ætlar að fara að segja álit sitt á pólitíkinni, veðurlaginu eða kvenfólkinu þá geturðu áður en lengra er farið sagt eitthvað I þá átt, að þú sért fegin því að fá tækifæri til að hvíla þig svolitla stund — þú hafir verið á þönum í allan dag. Hann er viss með að skilja bendinguna og beina öllum áhuganum að akstrinum. 2. Segðu bara: „Sælir“, eða: „Sælar", eftir því sem við á, og ekkert annað. Það þykir ekki eiga við að segja: „Það er gaman að kynnast yður“ eða eitthvað þess háttar. 3. Þú átt að vera ca. 62 kg. Eva Adams. HEIMILISRITIÐ 31

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.