Heimilisritið - 01.01.1947, Síða 56
TIL MINNIS
fyrir húsmóðurina
Reglusöm og fróðleiksfús húsmóðir hef-
ur þann sið að klippa út úr blöðum og
tímaritum allar greinar og klausiu-, sem
henni geta að gagni komið við heimilis-
störfin og líma þær inn í sérstaka bók er
hún geymir.
Hafið það hugfast, að bækur eru fyrir-
taks heimilisprýði og gera íbúðina vist-
lega og hlýlega.
Það er gaman af að hafa spegilplötu á
kaffiborðinu. Bæði hlífir það borðinu og
er auk þess fallegt.
Brjóstsviði orsakast oftast af fitumikl-
um og þungmeltum mat eða óhóflegri notk-
un tóbaks eða áfengis.
Veggfóður má ryksjúga með varúð; enn-
fremur strjúka með mjúkum klút eða
bursta með linum bursta.
Ef skómir hafa blotnað er skynsamlegt
að troða þá út með samanvöðluðum dag-
blaðapappír.
Oft tekst að ná óhreinindum eftir flugur
eða öðrum föstum blettum á möttum
gluggarúðum með því að þvo þá upp úr
brennsluspíritus eða mjög þunnri saltsýru-
blöndu.
Til þess að koma í veg fyrir að sviti
fari í flóka á höttum er gott að hafa pappír
milli svitaleðursins og flókans. Nauðsyn-
legt er að skipta um pappír öðru hverju.
Límið filt eða annað þykkt efni undir
öskubakka, borðlampa, keramikvasa eða
aðra slíka hluti, til þess að þeir rispi ekki
póleruð húsgöng. Sama má gera við stól-
fóta, ef þeir rispa gólfið.
Hengja skal myndir þannig, að þær falli
sem bezt upp að veggnum. Miðja mynda
á að vera sem næst því í sjónarhæð.
Eftir því sem hafragrauturinn er skemur
soðinn þeim mun minna skemmist af fjör-
efnum haframjölsins.
Menn, sem erfitt eiga með að sofna
vegna fótakulda, ættu að sofa í þykkum
og hlýjum náttsokkum.
Ef mikill tóbaksreykur er í herbergi
má láta hann hverfa með því að bleyta
svamp og hengja hann upp i herberginu.
Það þarf að bleyta hann oft og vel.
Skildu aldrei eftir miða á hurðarhúnin-
um, með tilkynningu um, hvenær þú
munir koma aftur. Það getur freistað ein-
hvers komumanns til að brjótast inn í
fbúðina.
54
HEIMILISRITIÐ