Heimilisritið - 01.01.1947, Side 57
FRAMHALDSSAGA
VOÐI
eftir M/Qtion
Nýir lesendur geta byrjað hér:
IVAN GODDEN hefur fundist myrtur i
íbúð sinni sama kvöldið sem hann kemur
heim af sjúkrahúsi, en þar hafði BLAKIE
lœknir, vinur fjölskyldunnar, hrifið hann úr
greipum dauðans. Kona Ivans, MARCIA,
er grunuð um morðið. Hún hefur verið
mjög óhamingjusöm í hjónabandinu, því
Ivan og BEATRICE systir hans hafa
kúgað hana og kvalið andlega í þau þrjú
ár, sem hún hefur verið gift.
Marcia, Blakie og Beatrice hggja öll
undir grun. Einnig þjónustufólkið í húsinu,
ANCILL, EMMA og DELIA. Ennfremur
hefur lögreglan augastað á GALLY, frœnda
Marciu og nágrönnum hennar, þeim ROB
og móðir hans, VERITY COPLEY. Rob
og Marcia elskast á laun. Sama daginn
hefur Rob skrifað henni ástarbréf, sem
komist hefur í hendur Beatrice. Það vitn-
ast, að Ivan hefur arfleitt Beatrice að öll-
um eignum sínum, og Beatrice hótar
Marciu því að fá WAIT lögreglufulltrúa
bréfið, ef lögreglan fœr nokkrar bendingar
um, að Beatrice hafi vitað um erfðaskrána
fyrir andlát Ivans.
„Þeir álitu að likur gætu bent
til þess, að höfuðkúpan hefði
brotnað, þegar hann datt, það er
á ferðum
0. (berhnrf
satt“, sagði Beatrice. „En ef hún
hefur brotnað áður en hann var
stunginn með hnífnum, eins og
þeir nú halda fx-am, þá breytir það
ýmsu“.
„Nú
Gally ætlaði að grípa fram í fyr-
ir henni, en hún hélt áfram:
„Ef hann hefur verið orðinn hálf-
meðvitúndarlaus af höfuðhöggi,
myndi það hafa verið miklu auð-
veldara fyrir — hvern svo sem
um er að ræða —■ að komast að
Ivan og stinga hann. Það hefði
ekki þurft mikla líkamlega krafta
til þess“. Hún léit ekki á Marciu,
en ástæða hefði þó verið til þess.
„Þú átt við að — að — einhver
kona sé ef til vill morðinginn?“
spurði Gally.
„Já, kona“, sagði Betrice. „Því
ekki það?“
Gally ræskti sig með erfiðleik-
um og bað um kaffi aftur í boll-
ann. Þegar Beatrice hafði gefið
honum það sagði hún:
HEIMELISRITIÐ
55