Heimilisritið - 01.01.1947, Qupperneq 61

Heimilisritið - 01.01.1947, Qupperneq 61
sín og annað smávegis. Og Marcia ákvað að leita þar nú þegar. Hún mundi eftir því, að Beatrice pakkaði föt þau, er hún geymdi frá hausti til vors eða vori til hausts, inni í þykkum umbúða- pappír, til varnar gegn möl, og batt vandlega utan um með sterk- um tvinna. Hún yrði því að ná sér í skæri, til þess að komast í fatabögglana — og þau voru í bókastofunni. Eins og venjulega var lítil birta í stiganum og það var dimmt í hinu stóra anddyri. Bókaherbergið var einnig dimmt og skuggalegt. Henni fannst hún verða vör við hreyfingu þar inni, þegar hún kom inn í dyrnar, og kallaði: „Gally“. En hún fekk ekkert svar, svo að hún þreifaði fyrir sér eftir skrif- borðslampanum og kveikti á hon- um, en sá engan í herberginu. Hún hugsaði með sér, að þelta hefði verið ímyndun, tók skærin úr efstu skrifborðsskúffunni og flýtti sér upp á loft aftur. Hún varð ekki vör við neinn, en fann matarlykt úr eldhúsinu og vissi að verið var að matreiða kvöldverðinn. Herbergisdyr Beatrices voru lok- aðar og sömuleiðis dt\Tnar að klæðaherberginu, en sem betur fór var lykillinn í skránni að utan- verðu. Þetta herbergi hafði verið ætlað til að sauma í því. Á rrtiðju gólfi var stórt saumaborð, úti í horni stóð beiglað mannslíkan úr vír og meðfram veggjunum voru lokaðir skápar. Marcia opnaði þá og leit á hlaða af fatabögglum, vandlega innpökkuðum í brúnnn pappír. Hún virti þá fyrir sér og sá, að þetta yrði meira verk en hún hafði ætlað. Samt vonaði hún, að sér tækist að þekkja úr þá böggla, sem nýlega hefði verið gengið frá. Hún lagði skærin frá sér, lagfærði lampaskerminn þannig, að Ijósið féll á skápinn og tók til starfa. Ekkert hljóð hevrðist. Hún tók einn pakkann og skoð- áði hann. Það skrjáfaði hátt í pappírnum. Hún sá að bandið var svo rammlega hnýtt utan um hann, að vonlaust var að leysa hnútana, sem hinar sinasterku hendur Beatrices höfðu hnýtt. En þessi pakki var sýnilega gamall, ef til vill margra ára. Svo sá hún að Beatrice hafði skrifað eitthvað á umbúðarpappír- inn og las. Það var ýtarleg lýsing á því, sem í pakkanum var — ýms- ar flíkur, sem frænka Beatrices hafði átt, en hún hafði dáið árið áður en Marcia giftist. Marcia tók næsta pakka og af því, sem á hann var skrifað, að hann var nýr. Hún athugaði fyrst, hvort hægt myndi að leysa utan af honum, en þegar það reyndist árangurslaust, teygði hún sig eftir skærunum, sem hún hafði lagt á borðið. Skærin voru þar ekki. HEIMILISRITIÐ 59
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.