Heimilisritið - 01.01.1947, Page 64
ÞRÆTUGJARNIR NÁGRANNAR
Nágrannarnir, sem búa í húsunum A,
B, C, D, og E, eru ákaflega þrætugjarnir
og kemur mjög illa saman. Þeir eiga sinn
hvern bílinn og geyma bílana í bílskúruin,
sem standa í röð eins og sýnt er til hægri
á myndinni. Sá sem á lieima í A-húsi
geymir sinn bíl í A-bíIskúr, sá sem á heima
í B-húsi geymir bíl sinn í B-húsi o. s. frv.
Þegar þessir ósamrýmdu nágrannar fara
frá liúsi sínu til bílskúrs síns gæta þeir
þess sérstaklega að ganga aldrei yfir gang-
stíga hvers annars._ Dragið nú línur frá
xbúðarhúsunum til bílskúranna, til þess að
sýna, hvernig þeir liafa farið að. Ein lína
má alctrei liggja yfir aðra.
FINNIÐ ÞAÐ ÚT
1. Nýjársdagur 1939 var sunnudagur.
Hvaða vikudag var jóladagurinn 1938?
2. Hversu mörg ár lifði maður, sem
fæddist áríð 40 f. Kr. og dó árið 4 e. Kr?
BÚÐINGSÞRAUT.
Þrjú börn koma við.sögu. Tvö vilja eta
hrísmjölsbúðing, tvö sagóbúðing, tvö
súkkulaðibúning. Eitt þeirra, sem vill ekki
eta súkkulaðibúninginn, vill ekki eta sagó-
búðinginn. Maja, sem vill ekki eta sagó-
búðínginn vill ekki eta hrísmjölsbúðinginn.
Hvað af þessum búðingum vilja Siggi,
Nonni og Maja eta hvert fyrir sig?
GÁTA
Jón mætti ættingja sínum, sem hann
hafði ekki hitt eða heyrt frá í fjölmörg ár.
„Góðan dagiim", sagði hann. „Hvað er
að frétta af ])ér?“
„Allt gott. Ég hef gil'st, og þetta barn
er nú hún dóttir mín. Hún heitir í höfuðið
á mömmu sinni“.
„Hvað syngur í þér, Soffía litla?“ spurði
Jón.
Hvernig vissi liann um nafn telpunnar?
HVAÐ VAR KAUPVERÐIÐ?
Maður nokkur keypti mótorbát, sem
kostaði hann 300.000 krónum meira en
sem nam einum fjórða kaupverðsins. Hvað
Aar kaupverð mótorbátsins?
SPURNIR
1. Ilvað heitir aðaláin í Palestínu?
2. I hvaða Iandi er Londonderry?
3. Á hvaða tungumáli var Gamla testa-
menntið ritað?
Svör á bls. 6Ji.
62
HEIMILISRITIÐ