Heimilisritið - 01.04.1948, Blaðsíða 28
ræjöum um, liyort ])að borg-
aðí sig yi'ir höfuð að senda injög
löxiig. fréttaskeyti. í þessu kom
Zuyland undan þiljum, og við
urðum brátt góðir kunningjar
aliir saman, enda starfsbræður
og sálufélagar, sem ekki þurfti
að kynna. Við gengum hreint til
verks og tókum þægindi skipsins
í okkar þjónustu. Við brutum
upp baðherbergisdyrnar — því
að. Spánverjar, sem sigla til
Maníla baða sig aldrei — hreins-
uðum appelsínubörk og vind-
lingastubba úr baðkerinu, og
fengum lánaðan þvottabala til
þess að raka okkur upp úr á
leiðinni. Síðan inntum við hvern
annan að nafni.
Þrjár hversdag'slegar mann-
skræfur myndu hafa lent í hár
saínan, af einskærum leiðindum,
á hinni löngu ieið til Southam-
pton. En samkvæmt stöðu okk-
ar vorum við óravegu frá því
að vera nokkrir hversdagsmenn.
Flest, sem er í frásögur færandi
í þessum heimi — bæði þau níu-
tíu og níu prósent, sem enginn
segir í viðurvist kvenna, og einn-
ig þetta eina prósent, sem þá er
eftir — er sameign allra og sótt í
sameiginlegt forðabúr mannlegr-
ar hugsunar. Við jusum óspart
af þessum nægtabrunni orða-
gjálfursins og viðhöfðum alía
fáglælvkingij og staðfræðilegar
krúsindúllur tungunnar, sem
stundum verða all-hjákátlegar
og skrýtnar. Síðan, þegar við
lögðum spilin frá okkiir stund og
stund, tók að bóla á persónulegri
lífsreynslu og ævintýrum — at-
vik, sem við höfðum sjálfir lifað
eða verið sjónárvottar að: Múg-
æsingin, sem einu sinni greip um
sig á Brooklyn-brúnni, svo að
fólk tróð hvað annað inn í ei-
lífðina, í vitfi rringu og skefja-
lausu æði, án þess nokkur vissi
um, hver upptökunum olli. Elds-
voða, þar sem æðisgengin andlit
sáust gapa og afskræmast af
kvölum bak við læsta glugga og
glóandi gluggapósta brennandi
húss. Skipstapa í frosti, stórhríð
og stórsjó, þar sem við höfum
átt á hættu að frjósa í hel, í
sýluðum og gaddfreðnum
bj örgun a rski punum, en þó
ekki talið það cftir okkur að
fara. Ofsafengin og spennandi
kappreið til þess að handsama
demantsþjófa. Skærur við Búa,
stundum í óbyggðum, stundum
innan sveitar. Augljós aðdrag-
andi margþættra og afdrifaríkra
stjórnmála og róttækra lagasetn-
inga. Sögur um spil, sögur um
góðhestá, sögur um konur, í tuga-
og hundraðatali -— og fyrsti
stýrimaður, sem þó hafði séð og
reynt margfallt meira en við all-
ir saman, hlustaði með vakandi
eftirtekt á þvæhma í okkur Iram .
á miðjar nætur. Hann var ófimitr .
26
HEIMILISRITIÐ