Heimilisritið - 01.08.1948, Blaðsíða 49
ust um, James Morrison, höfuðs-
maður í flugliðinu. Hann var
þarna með vini snum, Allan
Hobsen lækni og drakk viský.
Þeir höfðu verið í Laneleikhús-
inu, og sátu nú og ræddu um
leildnn.
„Hún leikur dásamlega, þessi
Marion Lester“, sagði James
hugsandi. ,.Hver er hún eigin-
lega, þessi Marion Lester“, sagði
James hugsandi. „Hver er hún
eiginlega? Ég hef verið svo lengi
burtu frá Englandi, að ég er ó-
kunnur öllum leikurunum“.
„Afar mikilhæf listakona, sem
hefur lagt hálfa London að fót-
um sér“.
„Yfirborðskennd, spillt og
nautnasjúk lcona að líkindum“,
bætti Morrison við, „eins og
flest slíkt fólk. Furðulegt að
henni skuli takast að sýna hið
mannlega og tilfinningaríka svo
dásamlega á leiksviðinu”.
„I því er einmitt. list hennar
fólgin“, sagði Hobsen.
„Annars telur orðrómurinn nú
sem stendur, að Sir Richard
Scot, hinn kunni stjórnmál'amað-
ur, sé trúfastur aðdáandi henn-
ar og auðmjúkur þjónn. Því er
bætt. við, að reyndar sé öll hans
viðleitni til einskis, þar eð hin
fræga leikdís hafi fvrir nokkrum
árum verið ástfangin af manni,
sem liún getur ekki gleymt.
Jæja, allt er þetta aðeins orð-
rómur. Sjálfur þekki ég ekkert til
hennar eða ævi hennar fremur
en þú“.
Vinirnir tóku nú að ræða um
önnur efni, og skömmu síðar stóð
Hobsen upp og kvaddi.
Morrison höfuðsmaður sat
um stund yfir glasi sínu. Hann
var piparsveinn og kom ætíð
nógu snemma heim í einmana-
lega íbúð sína. Þegar hann loks
ákvað að fara, kom einn af fé-
lögum hasn, Ward höfuðsmað-
ur, til hans.
„Halló, Morrison“, hrópaði
hann; „það var gaman að hitta
þig hér! Ég sit í innri salnum
ásamt dálitlum hóp, sem er að
halda Marion Lester boð í tilefni
af síðasta leikafreki hennar, og
þó undarlegt kunni að virðast,
vorum við einmitt að tala um
Þig“
„Lhn mig! Hver, þú og hún?“
„Já, einmitt“.
„Það var undarlegt“. Morri-
son borgaði þjóninum og tók
húfuna sína af snaganum. „Ég
skil reyndar ekki hvernig þessi
fræga kona getur haft áhuga ó
minni lítilmótlegu persónu“.
„Það veit ég heldur ekkert um,
en hún spurði mig, hvort ég
hefði þekkt James Morrison höf-
uðsmann í flugliðinu, og þá sagði
ég henni, að þú værir nýkominn
heim til Englands eftir langa
heilsubótardvöl í suðurlöndum.
HEIMILISRITIÐ
47