Heimilisritið - 01.12.1948, Síða 13

Heimilisritið - 01.12.1948, Síða 13
andi bæn minni til guðs. Vörðurinn muldraði eitthvað' og hélt svo áfram. Eg fann, að þungri byrði hafði verið létt af mér, þegar ég skreið upp á bekk- inn eftir nokkrar mínútur“. Við Ken undruðumst krafta- verkið', sem gerzt hafði á Ernest. En eins og um flest kraftaverk guðs, voru skýringar á reiðum höndum. Á leiðinni út, sagði vörðurinn kæruleysislega: „Þeir hafa margir látið svona. Það er einungis leikaraskapur. Heldur að hann geti losnað við stólinn. Hann linast, þegar þeir fara með hann þangað“. Eg velti því fyrir mér, hvort þetta væri algengt um fanga, eða var hin kuldalega skýring varðarins röng. Næsta morgunn komst ég að raun um, að ég yrði að bíða nokkuð eftir svarinu. Fylkis- stjórinn hafði veitt Ernest frest til 24. oktdber. Eg heimsótti hann aftur 22. október. Ernest brosti er hann sá mig. Handtak hans var hlý- legt; trú hans jafn staðföst — ekki sú trú, að hann myndi sleppa við stólinn, heldur sú trú, að guð myndi fylgja honum þangað. Fas hans var enn ólíkt því, er gerist um dauðadæmda menn. Á leiðinni út talaði ég við Frank Sain yfirfangavörð. Hann sagði mér frá öðrum dauða- dæmdum manni, sem allt í einu hefði tekið „ofstækisfulla trú“, en orðið bandbrjálaðúr, er hann kom inn í aftökuklefann, rifið af sér hettuna og barist óður um. „Það þarf meira en hugrekkið eitt til þess að ganga rólega í dauðann. Það þarf eitthvað ■meira“. Og þegar ég fór, velti ég því fyrír mér, hvort Ernest hefði í raun og veru öðlast þetta eitt- hvað meira. Hann hafði verið huglaus alla ævi, skýlt sér bak við’ skammbyssu til að fá það, sem hann þarfnaðist. I dauðraklefa sínum sat Ern- est síðasta kvöldið, borðaði eft- irlætisrétt sinn og gerði að gamni sínu við verðina. Svo kom síðasta klukkustund- in. Það var eins og allir væru gráti nær, nema maðurinn, sem átti eina stund eftir á lífi. Bæði hvítur og svartur prestur komu til hans og lásu með honum úr ritningunni. Fanginn lyfti aug- um til himins og las úr 23. sálm- inum: „Jafnvel þótt ég fari um dimm- an dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur liugga mig“. Uti biðu syrgjendurnir, milli tíu og tuttugu fangaverðir. Þeir hlustuðu lotningarfullir, og ein- HEIMELISRITIÐ 11

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.