Heimilisritið - 01.12.1948, Blaðsíða 49
Mary prinsessa 17 ára
með var þetta erfitt fyrir mig,
sem ekki hafði haft neina
reynslu af skólaveru, eða sam-
neyti við jafnaldra mína, með
öllum þeim erfiðleikum og gleði-
stundum, sem því er samfara.
Áður liafði ég haft Finch til
að gæta fatnað'ar míns og taka
til eftir mig, en nú varð ég að
sjá um mig sjálfur. Og úr hin-
um þægilegu herbergjum heim-
ila okkar, var ég nú kominn í
skóla innan um 30 jafnaldra.
Rúm mitt var óþægilegt járn-
rúm, og hirzlur mínar voru eitt
koffort, þar sem ég geymdi mín-
ar jarðnesku eignir.
Hrakspár Hansels um, hvern-
ig mér myndi ganga í skólanum,
rættust því miður allt of vel.
Próf fóru fram á fjögurra
mánaða fresti og einkunnir voru
festar upp þar sem allir gátu séð,
hvar menn voru í röðinni. En
sú einkennilega regla var samt
höfð í Osborne, að þegar við fór-
um heim í frí, var okkur afhent-
ar einkunnir okkar í innsigluðum
umbúðum, til að sýna foreldrum
okkar eð'a fjárhaldsmanni.
Eftir fyrsta skólatímabilið var
ég ekld langt frá því að vera
HEIMILISRITIÐ
47