Heimilisritið - 01.12.1948, Síða 52

Heimilisritið - 01.12.1948, Síða 52
honum, og hið ástúðlega sam- band okkar á milli, frá fyrri ár- um, var ekki endurnýjað í skól- anum. Hann átti við sömu erfiðleika að stríða og ég hafði átt, til að' byrja með, og við vorum vanir að hittast í laumi bak við íþróttahús eitt. Bertie sagði mér frá sínum erfiðleikum og ég reyndi að hjálpa honum af reynslu minni eftir beztu getu. Eg kunni betur við mig í Dartmouth en í Osborne, en ég held, að ánægja mín með lífið hafi að' nokkru leyti verið að þakka sérréttindum þeim, sem ég nú naut og komið höfðu með aldrinum. Auk þess var ég að verða fulltíða maður og það var ekki lengur farið með mig alveg eins og barn, þegar ég var heima í fríum. Ég hafði nú eignast nokkra vini meðal skólafélaga minna og við' áttum mhrgar gleðistundir saman, eins og ungum mönnum er títt. Ég var farinn að hlakka til að verða fullgildur sjóliðsfor- ingi, fá að sigla út í heiminn, sjá mig um og losna að minnsta kosti um tíma við kennara og erfiðleika hirðlífsins. Fyrstu vikuna í maí 1910 vor- um við Bertie bróðir staddir í Marlborough-höll. Við áttum að fara í skóla eftir páskafríið og við höfð'um ekki minnstu á- A dýraveiðum í Balmoral hyggjur. En afi minn hafði snúið veik- ur heim til London, frá hinni venjulegu og árlegu dvöl sinni í Biarritz. Hann var þá kominn liátt á sjötugs aldur, en það gat varla verið að aldurinn einn vnni á þessari glaðlyndu sál. Faðir jninn sendi eftir okkur, morguninn sem við áttum að fara í skólann, og sagði: „Ég hef sent skólameisturum ykkar skeyti og tilkynnt þeim, að ég vilji hafa ykkur báða hér heima dálítið lengur. Heilsu kon- ungsins hefur hrakað og það er ekki víst að hann eigi langt eft- (Fravih. í næsta hefti). 50 HEIMIUSIUTIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.