Heimilisritið - 01.12.1948, Side 56

Heimilisritið - 01.12.1948, Side 56
FERSK OG NÝSTÁRLEG Framhaldssaga eftir FRANZ HOELLERING 2. (Jana er fátæk tjekknesk stúlka af góð- um ættum, nýflutt til New York. Þetta er fyrsta kvöldið hennar sem einkaþerna hjá Priscilla Blaithe, vanstilltri og stórauðugri stúlku). Þriðji kafli JANA hrökk upp af djúpum svefni og — eins og hún var vön á morgnana — reyndi hún að flýta sér til að stöðva vekjara- klukkuna, áðnr en hin vöknuðú, fyrr en hún væri búin að taka til morgunverð. En nú var það ekki klukka, sem hringdi, það var dyrabjallan, áköf og hams- laus. Hún þaut til dyra og opn- aði, herti sig upp til að segja: „Gott kvöld, ungfrú“. Ungfrú Blaithe hefði hlaupið hana um koll, ef Jana hefði ekki skotizt til hliðar. „Hringið í Etruria gistihúsið. Fljótt!“ En í næstu andrá, þegar Jana var að blaða í símaskránni, hróp- aði ungfrú Blaithe innan úr svefnherberginu: „Takið þetta drasl burt héðan!“ Jana sleppti símaskránni og hljóp inn. Blómakarfan stóð á hvolfi á gólfinu. Rósirnar og fal- legu liljurnar! Þegar hún var á leið með' þær fram, kallaði ung- frúin hranalega: „Hringdi Cra- ?(( „Nei, ungfrú“. Jana tók disk- inn með skilaboðunum og bar hann inn í svefnherbergið. Ung- frú Blaithe stóð fyrir framan spegilinn og virti sjálfa sig fyr- ir sér með hatursaugum. Hún kærði sig ekki um að vita hverjir aðrir hefðu hringt. „Díana!“ sagði hún háðslega. „Díana að leggja af stað í mikla veiðiför!“ Hún hló beisklega, og hreytti síðan úr sér: ,JÉg sagði yður að hringja til Etruria“. Jana flýtti sér að ná aftur í símaskrána, en áður en hún komst svo langt, heyrði hún ungfrú Blaithe hringja sjálfa og segja einungis: „Etruria gisti- húsið, fljótt!“ Ofur einfalt. Hún 54 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.