Heimilisritið - 01.12.1948, Page 59

Heimilisritið - 01.12.1948, Page 59
Jana: fáeinar spurningar um fjölskyldu liennar, hvað faðir hennar væri, hvers vegna þau urðu að flýja, hvar þau hefðu verið síðan. Ekkert af svörun- um gáfu henni tilefni til athuga- semda eða svipbrigð'a; það fór hrollur um Jönu. Svo talaði ungfrú Blaithe um Kitzbúhel, þar sem hún hafði dvalið nokkra vetur, um skíða- íþrótt og um París, eins og hún hafði verið áður fyrr. Þegar klukkan sló tvö, reis hún upp. „Við skulum tala betur sam- an í fyrramálið", sagði hún geispandi. „Eg borða morgun- verð í rúminu. Appelsínusafa, te og glóðarbrauð. Eg hringi þegar ég vakna“. Áður en Jana fór, tíndi hún upp glerbrotin. Ungfrú Blaithe beygði sig eftir tímaritinu. Augu þeirra mættust, og eitt andartak var þetta atvik, er hvorug hafði nefnt á nafn, úr sögunni. Jana var komin fram fyrir, þegar ungfrú Blaithe kallaði á hana. „Þér hafið ekkert með yð- ur“, sagði hún. „Hérná takið við þessum náttkjólum, Jana“. Að hún skyldi hugsa um það! Og hún hafði ekki kallað hana Maríu. „En bróðir minn kom með far- angurinn minn“, sagði Jana. „Takið við þessu“. Ungfrú Blaithe tróð mjúkum silkiflik- unum í fangið á henni. „Þakka yður fyrir“. Jönu langaði til að segja meira, en allt í einu fann hún engin ensk orð til að lýsa því, sem hrærðist í brjósti hennar, á móðurmáli hennar, ef svo mætti segja — þakklátssemi, og blygðunartil- finningu. En þegar hún var háttuð og búin að slökkva, vöknuðu efa- semdir hennar á ný. Hvað gat ungfrú Blaithe viljað tala um við hana í fyrramálið? Ef til vill var friðnum ekki treystandi. Á bréfmiðanum hafði hún verið kallaður djöfull, og að því er Enderberry hafði sagt. ... En löngu áður en Jana lokaði augunum, voru atburðir þessa undarlega dags orðnir einskis- verðir. Hún hugsaði, eins og ætíð áður en hún sofnrði, ein- ungis um föður sinn. Fjórði kafli NÆSTA morgun vaknaði Jana fyrir allar aldir af ótta við að sofa yfir sig. Það var svartamyrkur, en hún þorði ekld að sofna aftur. Hún lá í rúminu og beið birtunnar. Hún hugsaði heim og sá lötu Grétu, sem ekki vildi vakna, en varð nú að tilreiða morgunverð- inn; Karl dauðþreyttur af að lesa hálfa nóttina, Jósef tíu ára HEIMILISEITIÐ 57

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.