Heimilisritið - 01.12.1948, Síða 64

Heimilisritið - 01.12.1948, Síða 64
HVERNIG Á AÐ LEGGJA LEIÐSLURNAR? Þessi getraun er upphaflega talin vera komin frá Forn- Grikkjum, þótt í annarri mynd hafi verið, en hér er sýnd. Hingað til hefur eng- inn getað ráðið hana, svo vitað sé. Hér er hún í nútíma-útgáfu, svohljóðandi: Leggja á leiðslur frá þremur orkuverum, þrjár leiðslur frá hverju í þrjú liús, og er afstaðan eins og myndin sýnir. En vand- inn við framkvæmd verksins er fólginn í því, að engar leiðslur mega snerta hverja aðra og því síður krossleggjast. Með öðrum orðum: Þrjú orkuver og þrjú íbúðarhús, og frá hverju orkuveri á að leggja leiðslu í hvert einstakt hús, án þess leiðslurnar megi krossleggjast. — Getur þú leyst vand- ann? BRJÓSTNÁLIN. Dag nokkurn stingur Gunna litla ódýrri brjóstnál í trjástofn, 1.28 metra hátt frá jarðveginum. Fyrsta árið á eftir óx tréð 62 sm og síðan helmingi minna á næstu árum. Þegar Gunna litla kom aftur, að fimm árum liðnum, fann hún tréð með brjóstnálinni. Hversu hátt var nálin þá frá jörðu? SJÓNHENDING RÆÐUR Hver af eftirfarandi — tíglinum, hringn- um, eða strikinu sem tengir þá — eru nákvæmlega jafnlöng? Auðvitað má ekki mæla þau, heldur láta sjónhending ráða. Svör á bls. 64. 62 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.