Heimilisritið - 01.02.1949, Blaðsíða 4
BLÁ GLUGGATJÖLD
Hugðnæm smásaga efiir Vilhj. 3. Vil-
hjálmsson, höfund skáldsagnanna
„Brimar við Bölkleti" og „Krókalda"
SNJÓLFUR gamli Snjólfsson
átti heima í torfbæ fyrir austan
Sandeyri. Hann gat eiginlega
ekkert gert. En hann átti bát-
kríli og stundaði hrognkelsa-
veiðar á vorin. Hann var lágur
maður og grannur og hafði aldr-
ei verið neinn skérpumaður eftir
því, sem ég heyrði móður mína
segja einu sinni. Konan hans var
með krabbamein, og svo hafði
hún líka gerst aðventisti í eymd
sinni. Hún hafð'i legið í mörg ár
og litla björg getað sér veitt.
Snjólfur gamli sýslaði um hana,
nú og Steinn sonur þeirra líka,
þegar hann gat, en hann hafði
fljótt farið að hjálpa pabba sín-
um. Og nú, þegar hann var orð-
inn tólf ára, var næstum því
hægt að líta á hann sem aðalfyr-
irvinnu heimilisins. Annars vissi
enginn hvað þau höfðu til síns
Hfsviðurværis í Slotinu, en svo
var kotið kallað vegna þess að
Snjólfur hafði endur fyrir löngu
málað' gaflinn, sem sneri að
Sandeyri, fagurgrænan. Að
2
HEIMILISRITIÐ