Heimilisritið - 01.04.1949, Blaðsíða 25
Aætlun Q-wos
Gamansamar rá&leggingar
eftir Adam úr Dal
TAKI MAÐUR tillit til loft-
slagsbreytinga og annarra að-
stæðna við blöndun efnisins,
væri rétt að nota A1 og A12 og
láta svo hin geislavirlcu áhrif
þeirra virka á B4, þannig að A2
+x41 sinnum B4 yrðu sama sem
A sinnum B sinnuin . . . Já, nú
ættu eftir öllum sólarmerkjum
allir kvenlesendur að vera hætt-
ir að' lesa þessa grein og getum
við því án nokkurar áhættu
upplýst, að þetta á ekki að vera
teknisk vísindaleg grein, heldur
ráðleggingar handa eiginmönn-
um, sem eru í vandræðum með
að útvega sér frí, án þess að kon-
una gruni nokkuð.
Ef eiginmann vantar fríkvöld,
koma þar til tvær orsakir 1)
hann ætlar út með kvenmanni,
2) hann ætlar að fá sér arm-
sveiflu með góðum kunningjum,
og þess vegna liöfum við kallað
áætlunina Q-wos. Q er dregið
af Quinde og wos af wisky-og-
soda.
Undir þessa áætlun heyrir auk
1. og 2. liðs venjulegar skemmt-
anir, rúnturinn, Soda Fontain og
að spila á spil (poker, 6fi, marías
eða mausel) hjá góðum vini, sem
er svo heppinn, að konan hans er
fjarverandi.
Skólabróðirinn
(Uppfundni vinurinn)
Þú hringir til konu þinnar um
fimm-leytið, þann dag er þú
þarft að fá fríkvöld og segir eft-
irfarandi: „Nú skalt þú heyra,
elskan, ég hitti hann Jón Sveins-
son, hann Nonna, sem var með
mér í skóla. Já, ég hitti hann í
strætó í morgun. Já, við sátum
í sama bekk. Hann bauð mér
heim til sín í kvöld, svo að þú
skalt ekki búast við mér fyrr en
seint. Þú veist, að það er margt
að rifja upp, gamlar minningar
og svoleiðis lagað“.
Og þannig er Nonni kominn
inn í líf þitt, og því betur sem þú
kynnist honum því betur líkar
þér við hann.
Og þegar konan þín spyr þig,
HEIMILISRITIÐ
23