Heimilisritið - 01.11.1949, Blaðsíða 34
Sitt ctf hverju frá
Hollywood
Sparnaðaralda mikil gengur nú yfir
Hollywood. Bæði hafa skatturnir hækkað
og eins hefur þrengst mjög um markaðinn
fyrir kvikmyndirnar, síðan á stríðsárunum.
Kvikmyndastjörnurnar leyfa sér ekki held-
ur eins mikið við forstjóra filmfélaganna
og þær gerðu, því að alltaf er verið að
segja upp leikurum. Arið sem leið voru
þannig aðeins 487 leikarar fastráðnir hjá
öllum kvikmyndabólunum í Hollywood,
eða helmingi færri en árið óður. Síðan hef-
ur þeim enn verið fækkað. Sem dæmi má
nefna:
Lana Turner, sem er heil gullnáma fjTÍr
Ava Gamdner, sem nú er ein mestumtal-
aða „stjaman", og Clark Gable
Sí
félag sitt, neitaði að leika í „skyttunum".
En þegar vika var liðin komst hún að
raun um, að Louis B. Mayer vildi ekki
Iáta hana komast upp með neinar kenjar
og þá skipti hún um skoðun.
Victor Mature ætlaði að fara eins að,
þegar Darryl Zanuck vildi láta hann leiþa
í „The Chair for Martin Rome“, en liann
var fljótur að láta undan, þegar Zanuck
bauð honum 67.000 dollara kaupuppbót,
með því skilyrði að hann léki öll ldutverk,
sem honum yrði fengin, og forðaðist enn-
fremur öll ólæti í einkalífi sínu!
Ginger Rogers hefur að undanförnu ver-
ið afar stirð og afundin við blaðamenn, og
helzt aldrei siljað við þá tala eða levfa
myndatiikur af sér. Nú hefur hún breytt
alveg um framkomu í þeirra garð og er
ekkert nema greiðviknin og elskulegheitin.
Svipaða sögu má reyndar segja um Greer
Garson og Joan Fontaine.
Jafnvel Jimmy Stewart hefur gert ráð-
stafanir, sem hann hefur ekki gert í þau
13 ár, sem hann hefur leikið. Hann hefur
ráðið ti! sín blaðafulltrúa.
Jolm Payne gerði sér ekki grein fyrir því,
að fyrir hvern einn leikara, sem látinn er
fara, er hægt að fá tíu aðra. Hann krafð-
ist þess af 20th Century-Fox, að hann
yrði látinn fá stærri hlutverk í betri mynd-
um. Félagið gerði sér lítið fyrir og riftaði
samningnum við hann. Og hverju haldið
þið, að John hafi tapað á því? — 500.000
dollurum.
HEIMILISRITIÐ