Heimilisritið - 01.08.1955, Page 7

Heimilisritið - 01.08.1955, Page 7
Sam klappaði á ístru sér. - „Ekkert eins gott og æfingin, ef maður ætlar að halda heilsu og kröftum.“ Carroll kinkaði kolli óþolin- móður. Þegar öllu var á botninn hvolft, langaði hann ekki til að heyra rödd Sams. „Láttu mig fá mjólkurhristing, Sam.“ Þeir gengu inn í knæpuna. Carroll settist á einn af kringl- óttu stólunum við langborðið og horfði á Sam hella mjólk í hrist- inn. „Ekkert jafnast á við mjólk,“ sagði Sam. „Hún heldur taugakerfinu í lagi.“ Carroll leit á vísana á rafmagnsklukkunni fyrir ofan dyrnar. Hana vantaði kortér í ellefu. Honum var ó- mögulegt að fara í rúmið fyrir miðnætti. Hann einblíndi á þétt- setna skápana sem blöstu við honum. „Ekki vænti ég, að þú seljir vasahnífa, Sam?“ „Vissulega. Ég sel allt. Það er það sem er að koma mér á haus- inn. Ekkert verra en að hafa hluti á boðstólum í þeim tilgangi að svala eftirspurninni." Sam dró kassa með vasahnífum fram úr einum skápnum, kom með hann og lagði hann á langborð- ið. „Fallegir þessir,“ mælti hann. „Enginn ódýrari en fimmtíu cent.“ Caroll virti nokkra þeirra fyr- ir sér og valdi loks þann stærsta og gljáfegursta. „Ég tek þenn- an,“ mælti hann. „Þú hefur sveimér dýran smekk! Einn dollar.“ Carroll borgaði fyrir mjólkur- hristinginn og hnífinn, og sagði „Góða nótt, Sam,“ um leið og hann gekk út á götuna. Eftir hálfa aðra klukkustund ætlaði hann sér að vera búinn að ganga sex kílómetra. Þá myndi líkami hans vera orðinn nægilega þreyttur til að gefast upp fyrir svefninum. Hann vonaði, að þá myndi engri rödd eða hljóði tak- ast að raska ró hans. ÞAÐ var morgunn, þegar Car- roll vaknaði. Hann lá með höf- uðið ofan á handarbökunum og hlustaði á marz-regnið lemja gluggarúðurnar. Allt í einu mundi hann eftir leiðinlegum söngtexta, sem allir voru með á vörunum: „Þótt apríl-regnskúr þig erti æ, hann ber þér rósir sem blómstra í maí.“ Marz-regn- ið ber manni ekki neitt. Marz- regnið gerir ekki annað en að loka mann inni og svipta mann allri von um að geta flúið. Michael og frú Nolan voru að ræða saman frammi í eldhúsinu. Rödd Michaels lá óvenju hátt, því honum var mikið niðri fyrir. „Lítið á hann, frú Nolan, lítið á hann! Er hann ekki fallegur?11 „Það er hann,“ anzaði frú No- ÁGÚST, 1955 5

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.