Heimilisritið - 01.08.1955, Side 18

Heimilisritið - 01.08.1955, Side 18
kyssti hana — skyndilega — beint á munninn. Og svo hvarf hann. HENNI gekk illa að sofna um kvöldið, því að hugsanirnar voru á sífelldri hringrás í höfði henn- ar. En þegar blikaði fyrir gráum degi stórborgarinnar, var hún komin að þeirri niðurstöðu að hún gæti ekki gifzt Philip. Það var ómögulegt — af því að hún elskaði Peter ennþá. Það öryggi og sú ró, sem hún þráði, yrðu aðeins falskar skuggamyndir ef hún giftist manni, sem hún elsk- aði ekki í fullri einlægni. Held- ur skyldi hún þola einmanaleik- ann og ástúðarleysið en skýla sér bak við hamingju, sem ekki var annað en ímyndun. Þegar Lydia hafði loksins tek- ið ákvörðun sína færðist yfir hana dásamlegur friður. Það var eins og hún hefði rifið bindi frá augum sér, og sá nú ljóslega að virðing og aðdáun og vinátta gátu ekki vegið upp á móti ást. Hún vildi ekki skjóta á frest þeirri leiðu nauðsyn að segja Philip að hún gæti ekki gifzt honum, og hringdi til hans til Edinborgar strax og hún hafði drukkið morgunkaffið. Hann kom til Lundúna þá um kvöldið, hávaxinn, ungur maður með öldungsfas og rödd, sem 16 hvorki bjó yfir glóð né sannfær- ingu. Þar sem hún bjóst ekki við að hitta Peter oftar lét hún ósagt í viðtali sínu við Phil að hún hefði hitt fyrrverandi eigin- mann sinn. Phil hlustaði á hana án þess að bregða svip, og þá loks er hún hafði lokið máli sínu sagði hann: — Ég vildi óska, kæra Lydia, að ég mætti vona að þú féllir frá ákvörðun þinni. — Það kemur ekki til mála, svaraði hún, og undraðist hversu rólega hann tók fregninni. — Nei, það er ég líka hrædd- ur um. Mig hefur alltaf rennt grun í að þú elskaðir mig ekki á sama hátt og ég elska þig. — Mig tekur það virkilega sárt, Philip. Það er mér að kenna og mér einni. — Maður ræður því miður ekki sjálfur tilfinningum sínum á því sviði, svaraði hann af skiln- ingi, og Lydiu féll allt í einu enn betur við hann en nokkru sinni fyrr. Hana langaði til að gráta þegar hann var farinn, en svo datt henni allt í einu í hug að Philip hefði ekki átt að taka þessu svona rólega ef honum hefði þótt virkilega vænt um hana. Hvers vegna hafði hann ekki reynt að fá hana til að falla frá ákvörðun sinni? Var hann greindari en hún hafði haldið? HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.