Heimilisritið - 01.08.1955, Qupperneq 55

Heimilisritið - 01.08.1955, Qupperneq 55
einlæga samlíf, því annars finnst báðum aðilum þeir hafa óvirt sjálfan sig. Flestir menn fyrirlíta þær stúlkur, sem gefa sig þeim á vald, án þess að hafa þetta í huga. Og það er ástæðan til þess að maður á að kenna í brjósti um þá stúlku, sem ekki getur staðizt freistinguna. Það er ann- að en gaman að vita þá mann- eskju fyrirlíta sig, sem maður hefur reynt að gleðja. Elsku stúlkan mín, það eina rétta er að þú notir hyggjuvit þitt og lærir að hafa hemil á til- finningum þínum og ástríðum, sem annars gætu komið þér í ó- göngur. Leyfðu engum að sýna þér blíðuhót, vertu ekki að sveima með ungum manni fram á rauða morgun. Hugsaðu þig aldrei um að losa þig úr kunn- ingsskap, ef þér finnst hann vera að ganga of langt. Þú skalt bara fara þína leið, þangað, sem annað fólk er, þangað, sem þú finnur þig örugga. Þú skalt slíta kunningsskapnum að fullu og hvorki gefa skýringu né biðjast afsökunnar. Þú skalt aldrei taka þátt í neinu, sem þín innsta eðlisávís- un og heilbrigða dómgreind er á móti, aðeins til þess að gleðja samkvæmisfélaga. Það ert þú, sem ákveður, og það án nokk- urra umræðna. Sá maður, sem þú eitt sinn bindst af gleði, mun verða þér þakklátur. Og þú upp- skerð aðeins hjartasorg, ef þú verður of nákunnug slíkum mönnum.“ EF sonur yðar eða dóttir kem- ur til yðar með spurningu eða vandamál, þá hlustið róleg og æsingalaust, jafnvel þó yður renni kalt vatn milli skinns og hörunds. Ef sonur yðar eða dótt- ir biður um ráðleggingu yðar í siðferðilegu vandamáli, þá sýna þau yður það dýpsta traust, sem nokkur faðir eða móðir getur hlotið. Og ef unglingurinn brýt- ur ekki upp á efninu, vil ég ráð- leggja yður að gera það. Talið af hreinskilni um hlutina, án geðshræringar og án gagnrýni — eins og það væri samtal milli jafnaldra. Nú meira en nokkru sinni þarfnast barn yðar ástar yðar og skilnings og hinnar ljósu og réttlátu hugsunar, sem sonur eða dóttir væntir af föður sínum og móður. Ef til vill getið þér ekki svar- að öllum spurningunum. En þér getið sagt frá öllu, sem þér vit- ið . . . það sem reynsla yðar og athuganir hafa kennt yður. Segið þeim staðreyndirnar skýrt og skilmerkilega, svo þau geti sjálf tekið hina réttu á- kvörðun. * ÁGÚST, 1955 53
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.