Verktækni - 01.03.2012, Qupperneq 6
6 / VERKTÆKNI
Aðalfundur Tæknifræðingafélags
Íslands 2012 var haldinn 28. mars.
Hér verður stiklað á stóru í ársskýrslu
félagsins fyrir starfsárið 2011-2012.
Ársskýrslan með ársreikningum er birt
í heild á vefsíðu TFÍ: www.tfi.is.
Ársreikningur
Samkvæmt rekstrarreikningi nam rekstrar-
tap ársins tæpum 87 þúsund krónum, en
rekstrartekjur námu rúmum 18,6 milljónum
króna. Heildareignir í lok ársins samkvæmt
efnahagsreikningi námu tæpum 19,4 millj-
ónum en heildarskuldir tæpum 11,4 millj-
ónum króna á sama tíma. Eigið fé var því
jákvætt um tæpar 8 milljónir. Veltufjármunir
í árslok voru tæpum 8 milljónum hærri
en skammtímaskuldir. Á aðalfundinum
var samþykkt að hækka félagsgjöldin um
tólf hundruð krónur og verða þau 32.400
krónur á ári, þar af renna 8.200 krónur til
KTFÍ eða STFÍ.
Skýrsla stjórnar
Í ársskýrslunni er ávarp Bergþórs Þormóðs-
s onar, formanns TFÍ. Þar segir hann meðal
annars: „Starfið undanfarið ár hefur ein-
kennst af hagsmunagæslu, fræðslustarfi,
kjarasamningum og að halda uppi vörnum
fyrir félagsmenn eftir þörfum.
Aðalfundur TFÍ
Aðalfundur KTFÍ
Menntun tæknifræðinga skiptir sköpum.
Félagið hefur verið gagnrýnt fyrir að hafa
einarða stefnu gagnvart þeim sem óska
eftir heimild til að nota starfsheitið tækni-
fræðingur. Starfsheitið er lögverndað og í
því felast mikil verðmæti. Það er ábyrgðar-
hluti að veita einstaklingi heimild til að
nota lögverndað starfsheiti.”
Bergþór benti ennfremur á að TFÍ standi
frammi fyrir þeirri áskorun að fara yfir inn-
tökuskilyrði og hvort geri eigi breytingar á
þeim. „Um leið verður að skoða vel kröfur
markaðarins og þær væntingar sem gerðar
eru til tæknifræðinga í dag. Einnig ber að
skoða þau tækifæri sem tæknifræðingar
hafa til framhaldsmenntunar. Fáar háskóla-
stéttir búa við það að hafa ekki meistara-
nám sem eðlilegt framhald af BS-námi.
Tæknifræðingar á Íslandi búa við þær
aðstæður að njóta svipaðra eða sömu kjara
og verkfræðingar, enda er umtalsverður
fjöldi tæknifræðinga með iðnmenntun og
iðnmeistararéttindi auk tæknifræðinámsins.
Tæknifræðingar eru því mjög eftirsóttur
vinnukraftur í íslensku atvinnulífi.”
Menntunarnefnd
Á starfsárinu voru haldnir þrettán fundir
í Menntunarnefnd TFÍ. Á öllum fundum
nefndarinnar er fjallað um umsóknir um
inngöngu í TFÍ, leyfi
til að nota starfsheitið
tæknifræðingur og
Önundur Jónasson er nýr formaður TFÍ. Hann er hér ásamt Bergþóri
Þormóðssyni sem fékk þakkir og blómvönd fyrir vel unnin störf í þágu
félagsins.
Aðalfundur KTFÍ var haldinn fyrir aðalfund TFÍ. Skýrsla KTFÍ og
sjóða í vörslu þess er birt í ársskýrslu TFÍ. Á fundinum kom fram að
staða sjóðanna er sterk og hefur úthlutunum fjölgað ár frá ári. Má
til dæmis nefna að Sjúkrasjóður KTFÍ veitti 303 styrki á starfsárinu,
samtals rúma 21 milljón króna en árið á undan var úthlutað 158
styrkjum, samtals um tíu milljónum króna.
KTFÍ er deild innan TFÍ en hefur fullt sjálfstæði til að vinna að
bættum kjörum félagsmanna á hvern þann hátt sem landslög leyfa.
Í því skyni fer KTFÍ með samningsrétt fyrir hönd félagsmanna
sinna um launakjör. Félagið hefur sjálfstæðan fjárhag.
endurinnkomu í félagið. Mikil fjölgun varð
á umsóknum ungfélaga í TFÍ. Alls voru 53
tæknifræðingar samþykktir sem fullgildir
félagar í TFÍ.
Í skýrslu Menntunarnefndar sem rituð
er af formanni nefndarinnar Jóhannesi
Benediktssyni segir m.a. „ Auk afgreiðslu
umsókna er á fundum nefndarinnar ávallt
fjallað um menntunarmál tæknifræðinga.
Inntökuskilyrði, námslengd, samsetningu
námsins og atvinnuskilyrði tæknifræðinga
að námi loknu. Aukin fjölbreytni í námi
samhliða fjölgun námsbrauta í HR, hefur
leitt af sér aukningu á fjölda nemenda í
tæknifræðinámi. Við slíka breytingu er þó
mikilvægt að þess verði ávallt gætt að huga
að undirstöðugreinum tæknifræðinnar
þannig að ekki verði dregið úr námskröfum
heldur verði gerðar auknar kröfur í þessum
greinum.”
Ný stjórn TFÍ
Að þessu sinni var sjálfkjörið í stjórn
félagsins. Önundur Jónasson var kosinn
formaður. Auk hans voru kosnir Helgi Páll
Einarsson, Guðjón Hreiðar Árnason og
Þorleifur Magnús Magnússon, vara-
maður. Auk þeirra eru í stjórn TFÍ Anna
Elín Jóhannsdóttir og Benedikt Halldór
Halldórsson, auk fulltrúa frá KTFÍ og STFÍ.