Verktækni - 01.03.2012, Page 7
VERKTÆKNI / 7
Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands
2012 var haldinn 22. mars síðastliðinn.
Lagabreytingar voru samþykktar sam-
hljóða. Í þeim felst að Kjararáð heitir nú
Kjaradeild og skerpt er á hlutverkum
Kjaradeildar annars vegar og Deildar
stjórnenda og sjálfstætt starfandi hins
vegar. Hér verður stiklað á stóru í árs-
skýslu félagsins fyrir starfsárið 2011-2012.
Ársskýrslan með ársreikningum er birt í
heild á vefsíðu félagsins: www.vfi.is.
Ársreikningur
Rekstrarhagnaður ársins var um 574
þúsund krónur en rekstrartekjur námu
35,7 milljónum króna. Heildareignir í
lok ársins samkvæmt efnahagsreikningi
námu tæpum 64,6 milljónum króna en
heildarskuldir voru á sama tíma tæpar 41,7
milljónir króna. Eigið fé félagssjóðs var því
jákvætt um rúmar 22,9 milljónir króna.
Veltufjármunir í árslok voru rúmum 22,9
milljónum hærri en skammtímaskuldir.
Fundurinn samþykkti tillögu stjórnar um
að félagsgjald fyrir árið 2012 verði 31.200
krónur.
Menntamálanefnd
Af 115 umsóknum um inngöngu í félagið
voru 106 umsóknir samþykktar, 5 var
hafnað og umfjöllun um 4 ekki lokið. Allar
23 umsóknirnar um ungfélagaðild voru
samþykktar. Af 141 umsókn um starfs-
heitið voru 123 umsóknir samþykktar, 12
var hafnað og umfjöllun um 6 er ekki lokið.
Ávarp formanns
Í ávarpi sínu sagði Kristinn Andersen for-
maður VFÍ meðal annars: „Undanfarið
starfsár var það fyrsta eftir sameiningu við
Stéttarfélag verkfræðinga. Stofnfundur
sameinaðs félags fór fram 31. maí sl., en
áður höfðu farið fram kosningar meðal
félagsmanna beggja félaganna, þar sem
sameining var samþykkt með miklum
meirihluta atkvæða í báðum félögum. Sé
litið yfir sögu Verkfræðingafélags Íslands þá
starfaði VFÍ lengst framan af fyrir hönd allra
verkfræðinga, launþega sem annarra. Árið
1952 var stofnuð launanefnd félagsins, en
hún var undanfari stofnunar Stéttarfélags
verkfæðinga sem varð árið 1954. Eftir það
störfuðu félögin hvort á sínu sviði, SV
sinnti kjaramálum fyrir þá verkfræðinga
sem þar voru félagar en VFÍ sinnti faglegum
málum verkfræðinnar, menntamálum og
ýmsum sameiginlegum málum fyrir hönd
verkfræðinga. Félögin höfðu með sér gott
samstarf, s.s. í útgáfumálum og skrif-
stofuhaldi, og stór hópur verkfræðinga var í
báðum félögum.
Meðal markmiða með sameiningu félag-
anna, fyrir rúmu ári, var að styrkja ímynd
og skerpa á sameiginlegum málum verk-
fræðinga í einu félagi og auka hagkvæmni
í rekstri. Starfsemi félagsins hefur gengið
vel í kjölfar sameiningar, í dag eru skráðir
félagar yfir 2200. Í VFÍ eru núna yfir 70%
allra verkfræðinga á vinnumarkaði og þeim
fer ört fjölgandi.
Mikilvægt er að Verkfræðingafélag
Íslands taki mið af þeirri öru þróun sem
er innan verkfræðinnar, en verkfræðingar
takast á við æ fjölbreytilegri viðfangsefni í
störfum sínum. Nýjar verkfræðigreinar hafa
rutt sér til rúms á undanförnum árum, á
sviði heilbrigðistækni, fjármála, hugbúnað-
arþróunar og kerfislíffræði, svo nokkur
dæmi séu nefnd. Mikilvægt er að verk-
fræðingar í þessum greinum, eins og þeim
hefðbundnari sem fyrir eru, finni að félagið
okkar komi til móts við væntingar þeirra á
sviði faglegrar umræðu, í kjaramálum þar
sem það á við og í almennu félagsstarfi.“
Nýjar stjórnir
Að þessu sinni var sjálfkjörið í stjórn
VFÍ. Nýir í stjórn eru Bjarni G. P. Hjarðar
og Páll Gíslason. Auk þeirra sitja í stjórn:
Kristinn Andersen, formaður, Egill Þórðar-
son, Guðrún Sævarsdóttir og Arnór B.
Kristinsson.
Í stjórn Kjaradeildar sitja: Kári Steinar
Karlsson, formaður, Auður Ólafsdóttir,
varaformaður, Kristján Sturlaugsson,
Halldór Árnason, Sólveig K. Sigurðardóttir,
Arnar H. Halldórsson og Kristinn
Steingrímsson.
Í stjórn Deildar stjórnenda og sjálf
stætt starfandi sitja: Sveinn Ingi Ólafsson,
formaður, Jenný Rut Hrafnsdóttir, Steinar
Friðgeirsson og Davíð Á. Gunnarsson vara-
meðstjórnandi.
Aðalfundur VFÍ
Kristinn Andersen, formaður VFÍ.