Verktækni - 01.03.2012, Blaðsíða 8
8 / VERKTÆKNI
Aldarviðurkenning VFÍ
Á glæsilegri afmælishátíð í Hörpu
afhenti forseti Íslands, hr. Ólafur
Ragnar Grímsson, Katrín Jakobsdóttir,
mennta- og menningarmálaráðherra
og Guðbjartur Hannesson, velferðar-
ráðherrra Aldarviðurkenningu Verk
fræðingafélags Íslands. Verk fræði-
nemar aðstoðuðu við afhendinguna.
Vilhjálmur Lúðvíksson, formaður viður-
kenningarnefndar kynnti niðurstöður
nefndarinnar. Verðlaun voru veitt í þremur
flokkum. Þeir einstaklingar sem voru
heiðraðir fengu skjal með nafni sínu og
forsendum viðurkenningarinnar. Fyrirtækin
sem þeir tengjast fengu til vörslu glerlista-
verk eftir listakonuna Sigrúnu Einarsdóttur
í Bergvík.
Marel hf.
Rögnvaldur Ólafsson, eðlisfræðingur.
Heiðraður fyrir að leggja hugmyndalegan
og tæknilegan grunn að rafeindavoginni
sem varð upphafið að fyrirtækinu Marel hf.
og vísa veginn um nýtingu rafeindatækni í
þágu tækniframfara í fiskvinnslu.
Hörður Arnarson, rafmagnsverkfræð
ingur. Heiðraður fyrir að leggja þekkingar-
legan grunn að myndgreiningartækninni
sem varð ein meginstoðin í vöruþróun
Marel hf. og vexti þess inn á flest megin-
svið matvælavinnslu.
Jón Þór Ólafsson, rafmagnsverk
fræðingur. Heiðraður fyrir færni sína í að
útfæra og samhæfa þróun grunntæknibún-
aðar og móta þau tæknikerfi sem Marel hf.
byggir á frá upphafi og til dagsins í dag.
Össur hf.
Hilmar Bragi Janusson, efnafræðingur.
Heiðraður fyrir þátt sinn í tæknilegri lausn
á hinu gamalþekkta vandamáli að tengja
gervifót við aflimaðan stúf sársaukalaust
fyrir viðtakanda og um leið leggja grunn að
vexti Össurar hf. og leiða fyrirtækið inn á
braut gervilimasmíði byggða á hátækni sem
bætt hefur hreyfigetu og lífsgæði þúsunda
um allan heim.
Actavis Group
Reynir Eyjólfsson, lyfjafræðingur.
Heiðraður fyrir að þróa lyfjafræðilegar
lausnir sem gerðu Delta hf., síðar Actavis
Group kleift að hasla sér völl með sam-
heitalyf á alþjóðlegum markaði.
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, lyfjafræð
ingur. Heiðruð fyrir að nýta lyfjafræðilega
þekkingu sína til að greina markaðs-
tækifæri og samræma þróunarvinnu og
markaðssókn fyrirtækisins Delta hf., síðar
Actavis Group.
CCP hf.
Reynir Harðarson, hönnuður. Heiðraður
sem upphafsmaður, hugmyndasmiður
og frumhönnuður tölvuleiksins EVE
ONLINE og þess fjölþætta samspils ólíkra
þekkingarsviða sem gerð og þróun leiksins
byggist á og stofnandi fyrirtækisins CCP
sem starfrækir leikinn á netinu.
Íslensk erfðagreining hf.
Kári Stefánsson, læknir og mannerfða
fræðingur. Heiðraður fyrir einstakan
vísindalegan árangur og frumkvæði um að
koma á fót á Íslandi einu öflugasta fyrirtæki
heims í mannerfðafræði og leysa úr læðingi
metnaðarfullar heilbrigðisvísindarann-
sóknir hér á landi.
VAKI-fiskeldiskerfi hf.
Hermann Kristjánsson, rafmagnsverk
fræðingur. Heiðraður fyrir að hafa á
námsárum þróað snjalla tækninýjung
til talningar og flokkunar á laxaseiðum,
stofnað og farsællega stýrt fyrirtækinu Vaki-
fiskeldiskerfi hf. til að hrinda hugmyndum
sínum í fram kvæmd og síðar þróað kerfi
til heildstæðs eftirlits með vexti fisksins í
stórum eldiskvíum.
Marorka hf.
Jón Ágúst Þorsteinsson, verkfræðingur.
Heiðraður fyrir þróun á orkusparandi tækni
fyrir skip, farsæla forystu um stofnun og
vöxt sprotafyrirtækisins Marorku hf. og
baráttu fyrir bættu umhverfi til nýsköpunar
á Íslandi.
ORF Líftækni hf.
Björn Lárus Örvar, Einar Mäntylä og
Júlíus Birgir Kristinsson líffræðingar.
Heiðraðir fyrir frumlega og árangursríka
beitingu erfðavísinda til að breyta bygg-
plöntum í lifandi verksmiðjur, fyrir sérvirk
Viðurkenning fyrir framlag sitt til fyrirtækja sem eru alþjóðlega í fremstu röð.
Viðurkenning fyrir framlag sitt til sprotafyrirtækja sem náð hafa fótfestu á markaði.
Alþjóðlega í fremstu röð
Brautryðjandi, þekkingarfyrirtæki
sem byggt er á innlendri vísinda og
tækniþekkingu og er alþjóðlega
meðal fremstu á sínu sviði.
Frumkvöðlar á vaxtarbraut
Þekkingarfyrirtæki sem er í vexti,
hefur náð festu á markaði og hefur
alþjóðlega sérstöðu.