Nýjar kvöldvökur - 01.01.1920, Síða 24

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1920, Síða 24
18 NYJAR KVÖLDVÖKUR, leita, og konsúllinn ljet aldrei hjá Iíða að minn- ast á það, hve viturlega gamli maðurinn hefði Iátið búa um þessar leynidyr. Lyklinum var snúið tvisvar, og marraði mjög í ryðgaðri skránni, og bræðurnir þektu það hljóð svo vel, að þeim fanst ekkert annað hljóð geta líkst því; þegar þeir gengu inn um dyrnar, Iagði myglublandaðan vínþef á móti þeim. Konsúllinn lokaði hurðinni og sagði: »Svona, nú verður veröldin að vera án okkar svolitla stund.« Innri vínkjallarinn leit út fyrir að vera mikið eldri en húsið sjálft, hann var einna líkastur gamalli klausturhvelfingu. Pað var svo lágt undir Ioft, að sendiherraskrifarinn varð að lúta svolítið, þessvegna gekk konsúllinn líka altaf hálfboginn, þegar hann kom þangað niður. í gömlu hillunum lágu allskonar flöskur, þaktar ryki og köngurlóarvefum. Tvö hollensk vínglös á fæti stóðu í gamalli gluggatóft, sem búið var að múra fyrir að utan, og í einu horninu stóð stóreflis víntunna. En framan við tunnuna hafði verið sett tómt kvartil, og hjá því gamall hægindastóll, baklaus — stælt hross- hár stóð út úr setunni — og rugguhestur, sem búið var að brjóta völtrurnar undan, var þar einnig. Reir settu Ijóskerin frá sjer á kvartilsbotninn, og fóru úr frökkunum, og hengdu þá hvor á sinn nagla. »Jæja — hvert heldurðu að við ættum að snúa okkur f dag?« sagði Kristján Friðrik, og neri saman höndunúm. »F*að væri ekki svo afleilt að fá portvín,« sagði sendiherraskrifarinn, og rendi augunum yfir hillurnar. »Portvín er ágætt,« svaraði konsúllinn og brá upp ljóskerinu — »en þarna Iengst inni í skotinu eru eitthvað um 20 flöskur, sem við höfum aldrei athugað, það væri gaman að vita hvað í þeim er.« »Ætli það sje ekki ribsberjalögur frá ömmu gömlu,« sagði Ríkarður. »Hvaða vitleysa! — heldurðu að faðir okkar hafi farið að fela gamlan ribsberjalög inst inni í kjallaraskoti.« »Ætli hann hafi ekki haft eins miklar mætur á því, sem gamalt var, eins og sumir aðrir, sem jeg þekki,« mælti sendaherraskrifarinn. »0 — 0 — þú ert nú altaf svo skrambi fynd- inn,« tautaði konsúllinn, — »bara við gætum náð í þessar flöskur.« »Þú verður þá að skríða inn í skotið — Kristján Friðrik, því jeg er svo digur,« »Já, jeg verð líklega að gera það,« svaraði bróðirinn og lagði frá sjer úrið og þungu signetin, sem við það hjengu. Síðan skreið hann varlega inn á milli hilluraðanna. »Nú er jeg búinn að ná í eina,« hrópaði hann fram til bróður síns. »Taktu aðra til, fyrst þú ert kominn þarna inn á annað borð.« »Já — en nú verðurðu að toga í fæturna á mjer.« »Með ánægju* — svaraði sendiherraskrifar- inn, »en viltu ekki fá þjer dálítinn gúlsopa af Búrgundarvíni, meðan þú ert þarna.« Petta hefir víst verið fyndið, því konsúllinn hló — það var svo greinilegt, og innan um hláturinn hrópaði hann: — »jeg er að kafna — Rikki! dragðu mig út — bölvaður.« Rikki var gælunafn frá bernskuárunum; en fyndnin um Búrgundavínið var þannig til komin. Eitt sinn er konsúllinn var að skríða inn á milli flöskuraðanna, til þess að leita að ein- hverju sjaldgæfu, hafði hann rekið höfuðið svo hart í flösku, sem lá í röðmni uppi yfir hon- um, að stúturinn brotnaði af henni, og inni- haldið úr heilli flösku af Búrgundarvíni rann niður á háls á honum. Hvenær sem annarhvor þeirra ympraði á þessu atviki, fóru þeir að hlægja; og sendiherraskrifarinn var meira að segja svo ósvífinn, að vera að tala utan að þessu, þegar aðrir voru viðstaddir. Hann gat t. d. sagt upp yfir alla við borð- ið, þegar verið var að tala um rauðvin: »Já — konsúllinn, bróðir minn, hefir alveg

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.