Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.12.2013, Blaðsíða 36

Fréttatíminn - 06.12.2013, Blaðsíða 36
B arnaverndaryfirvöld í Essex á Eng-landi eru nú harðlega gagnrýnd eftir að þau þvinguðu ítalska konu, sem er greind með geðhvörf og dvaldist tímabundið á Englandi, til þess að gangast undir keisara- skurð og sviptu hana forræði barnsins strax eftir fæðingu og komu því í fóstur og settu af stað ættleiðingarferli. Hliðstæð mál eru ekki þekkt hérlendis, að sögn Braga Guðbrandssonar, forstjóra Barna- verndarstofu, en 2-3 dæmi eru um að konur hafi verið sviptar forsjá strax eftir fæðingu vegna fíkniefnavanda eða geðsjúkdóma. Keisaraskurður með dómi Í málinu í Englandi er um að ræða 35 ára ítalska konu sem kom til Englands í júlí á síðasta ári til að fara í starfsþjálfunarnám- skeið á Stansted-flugvelli í Essex. Hún var þá langt gengin með barn en fékk ofsakvíða- kast skömmu eftir komu til landsins og var það rakið til þess að hún hafði ekki tekið lyf sem hún átti að taka við geðhvarfasjúkdómi. Í framhaldinu var hún nauðungarvistuð á stofnun í samræmi við ákvæði breskra laga. Félagsmálayfirvöld í Essex fengu síðan sam- þykkt dómara fyrir því að barnið yrði tekið með keisaraskurði, sem var gert í ágúst, og var nýfæddu stúlkubarninu strax komið í fóstur. Konan sneri svo aftur til Ítalíu en kom aftur til Englands á fyrrihluta þessa árs til þess að höfða mál gegn barnaverndaryfir- völdum og ógilda ákvarðanir þeirra um að gefa barnið til ættleiðingar. Fyrir dómi kom fram að konan tekur nú lyfin sín reglulega og er til meðferðar hjá læknum á Ítalíu en héraðsdómari í Essex staðfesti engu að síð- ur ákvörðun barnaverndaryfirvalda þar um að láta ættleiða barnið sem nú er 15 mánaða. Þessum dómi hefur verið áfrýjað og John Hemming, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur tekið málið upp í breska þinginu og talað máli móðurinnar opinberlega. Hann hefur meðal annars dregið í efa að barna- verndaryfirvöld í Essex hafi nokkra lögsögu í málinu þar sem móðirin er ítalskur borg- ari. Þá hafi formlegum leikreglum í málum af þessu tagi ekki verið fylgt. „Leikreglurnar eru alveg skýrar þegar um er að ræða útlendinga og barnaverndarmál,“ segir hann. Ekki formleg samskipti við ítölsk stjórnvöld „Hlutaðeigandi ráðuneyti, þ.e. dómsmála- ráðuneytið, hefur skyldu til að setja sig í samband við erlenda ríkið sem í hlut á. Þetta var ekki gert í þessu máli og sveitarstjórnin í Essex er augljóslega brotleg í málinu og hefur ekki tekist að skýra hvers vegna hún komst að þeirri niðurstöðu að enginn af ætt- ingjunum væri hæfur til þess að annast um barnið eins og systkini þess. Sveitarstjórnin hefur heldur ekki útskýrt hvers vegna barnið var í þeirra umsjá og í ættleiðingarferli þegar alltaf stóð til að móðirin færi aftur til Ítalíu.“ Félagsmálayfirvöld í Essex segja að öryggi og velferð barnsins hafi ráðið því hvernig staðið var að málinu. Börn séu aldrei tekin af foreldrum og sett í ættleiðingarferli nema áður sé búið að leita allra vægari leiða. „Móð- irin á tvö önnur börn sem hún annast ekki sjálf vegna fyrirmæla ítalskra stjórnvalda,“ segir þar. „Félagsráðgjafar áttu mikil sam- skipti við fjölskylduna fyrir og eftir fæðingu barnsins til þess að ganga úr skugga um það hvort einhver fyndist til þess að annast barnið.“ Ýmsir aðilar hafa einnig látið sig málið varða og lýsa áhyggjum af þeirri meðferð sem ítalska konan var beitt af hálfu stjórn- valda, m.a. Samtökin Bipolar UK og mann- réttindasamtökin Liberty. Engar hliðstæður hérlendis Þær spurningar vakna hvernig staðið væri að verki í máli af þessu tagi hérlendis. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir í að hliðstæð mál séu ekki þekkt hér- lendis en 2-3 dæmi eru um það að konur hér á landi hafi verið sviptar forsjá barns síns strax eftir fæðingu. „Um var að ræða vanda vegna vímuefna- neyslu og geðræna erfiðleika. Engin dæmi eru um þvingaðar læknisaðgerðir í tengslum við fæðingu barns eftir því sem ég veit best,“ segir Bragi. Bragi tekur ekki afstöðu til vinnubragða barnaverndaryfirvalda í Essex eins og þeim er lýst í fréttum breskra fjölmiðla en segist ekki geta ímyndað sér að ríkisborgararéttur móður gæti haft áhrif á það hvernig íslensk stjórnvöld mundu taka á málinu. Hins vegar megi reikna með að erfiðara sé koma við stuðningsaðgerðum og viðeigandi ráðstöf- unum ef móðir er erlend og er stödd hér á landi í stuttri heimsókn þegar hún veikist og fæðir barn. Í máli Braga kemur fram að mun meiri áhersla sé lögð á það af hálfu barnaverndar- yfirvalda nú en á fyrri árum að grípa til for- varnar- og stuðningsúrræða til þess að koma í veg fyrir aðskilnað ungbarns og móður. Pétur Gunnarsson petur@frettatiminn.is OKKAR LOFORÐ: Lífrænt og náttúrulegt Engin óæskileg aukefni Persónuleg þjónusta 25% afsláttur af völdum vörum í Lifandi markaði og af öllum bætiefnum frá NOW 25% afsláttur aföllum NOWbætiefnum HEILSUSPRENGJA 25% afsláttur af völdum vörum Ti lb o ð ið g il d ir 5 . - 1 2. d es em b er . Ekki gleym a heilsunni u m jólin! Borgartún 1 Fákafen 1 Hæðasmári www.lifandimarkadur.is 35 ára ítölsk ófrísk kona var nauðungarvistuð á stofnun í Essex í Englandi þegar hún veiktist af geðhvarfasýki. Barnið var síðan tekið með keisara- skurði samkvæmt dómsúrskurði og barnið ættleitt gegn vilja móðurinnar. Mynd/GettyImages Dæmd í keisaraskurð og barnið tekið til ættleiðingar  Barnavernd deilt um örlög móður og dóttur Barnaverndaryfirvöld í Essex eru harkalega gagnrýnd fyrir að hafa látið taka barnið ítalskrar konu með keisaraskurði og gefið það til ætt- leiðingar. Hliðstæð mál óþekkt á Íslandi en 2-3 börn hafa verið tekin til ættleiðingar strax eftir fæðingu. 36 félagsmál Helgin 6.-8. desember 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.