Fréttatíminn - 06.12.2013, Blaðsíða 50
Gói í nýju hlutverki!
„Falleg og vel
skrif uð bók ...
Teikn ing arnar
lyfta undir góða
frásögn og gera
bókina að einni
af eigulegustu
barnabókum
sem völ er á ...“
Pressan.is
* * * *
UGLA
Heilbrigðiskerfi
á Heljarþröm
hluti10.
F járþörf Landspítalans vegna tækjakaupa næstu fimm árin verður mætt samkvæmt nýrri tækja-
kaupaáætlun heilbrigðisráðherra
sem kynnt verður á næstunni. Í
henni er gert ráð fyrir að bráða-
tækjaþörf verði mætt að mestu
næstu tvö árin og að þeim loknum
verði tryggð upphæð til nauðsyn-
legrar endurnýjunar tækja sem er
sambærileg við það sem gerist á
hinum Norðurlöndunum, 1,8% af
rekstrarfé ár hvert.
Tækjakaupaáætlunin hefur verið
kynnt fyrir ríkisstjórninni og fjár-
laganefnd. Að sögn Kristjáns Þórs
Júlíussonar heilbrigðisráðherra
er áætlunin unnin í samvinnu
við Landspítala og Sjúkrahúsið á
Akureyri um þörf á endurnýjun
tækja og búnaðar á þessum tveim-
ur sjúkrahúsum til ársins 2018.
„Áætluninni er stillt þannig upp
að uppsafnaðri þörf verður mætt á
næstu tveimur árum en árið 2016
gerum við ráð fyrir að fjárveiting
til tækjakaupa verði hlutfall af
veltu, líkt og í löndunum í nágrenni
við okkur,“ segir Kristján.
Á næstu tveimur árum fær Land-
spítalinn úthlutað milljarði til við-
bótar við þá upphæð sem tiltekin
var í fjárlagafrumvarpi ársins
2014, 262 milljónir. Samtals fær
Landspítalinn því 1.262 milljónir
til tækjakaupa á næsta ári. Sjúkra-
húsið á Akureyri fær 273 milljónir
samanlagt til tækjakaupa á næsta
ári.
Kristján Þór bendir á að raun-
virði fastra fjárveitinga til tækja-
kaupa hafi rýrnað um 50 prósent á
síðustu árum. „Þessi áætlun, sem
gildir til ársloka 2018, gerir ráð
fyrir að á fimm árum verði rúmum
6,5 milljörðum varið til tækjakaupa
á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu
á Akureyri, um 5,5 milljarðar fara
til Landspítalans og tæpar 900 til
Sjúkrahússins á Akureyri,“ segir
Kristján.
Hann bendir á að undanfarin
ár hafi fjárveiting til tækjakaupa
á Landspítalanum numið um 0,6%
af rekstrarfé og muni hún því
þrefaldast. Miðað við 40 milljarða
króna rekstrarkostnað nemur 1,8%
fjárveiting til tækjakaupa 720 millj-
ónum króna árlega.
1-2 milljarðar árlega myndu
vinda ofan af vandanum
Alþingi úthlutar fjármunum til
tækjakaupa á Landspítalanum og
sérstök nefnd innan spítalans for-
gangsraðar til tækjakaupa miðað
við bráðaþarfir sviðanna. Jón Hilm-
ar Friðriksson, framkvæmdastjóri
kvenna- og barnasviðs Landspítal-
ans, fer fyrir nefndinni. Í umfjöllun
Fréttatímans um tækjaþörf Land-
spítalans sem birtist í
síðustu viku lýsti hann
verulegum áhyggjum af
tækjamálum því mörg
stór og smá tæki væru
komin á tíma. Hann
sagði nauðsynlegt að
vita hver fjárveitingin
verður nokkur ár fram
í tímann því liðið getur
allt að ár frá því að
ákveðið hefur verið
að kaupa tiltekið tæki
þangað til það er komið
í hús. „Bjóða þarf út
stærri kaup á evrópska
efnahagssvæðinu og er ferlið um-
fangsmikið,“ benti Jón Hilmar á.
„Ef við fáum 1-2 milljarða í nokkur
ár náum við að vinda ofan af vand-
anum,“ sagði hann.
Upplýsingarnar frá heilbrigðis-
ráðherra um fjárhæðir í tækja-
kaupaáætlun höfðu ekki verið
kynntar Landspítalanum þegar
þetta er skrifað og því var ekki
hægt að leita viðbragða forsvars-
manna spítalans við þeim.
Í greininni í síðustu viku skýrði
Jón Hilmar frá því að á forgangs-
lista um tækjakaup á Landspítala
séu til að mynda nýtt æðaþræð-
ingatæki sem kostar um 150 millj-
ónir, nauðsynlegt sé að endurnýja
á þriðja tug svæfingavéla á næstu
tveimur til þremur árum en sá bún-
aður kosti 300-400 milljónir. Auk
þess þarf spítalinn að kaupa stórt
ísótópatæki, sem kostar 120 millj-
ónir og speglunartæki sem kostar
um 100 milljónir, sem og smærri
tæki og búnað sem nemur 2-300
milljónum.
Umræðan hefur þroskast
Kristján Þór segir að umræðan
um heilbrigðismál hafi þroskast
mikið frá því fjárlaga-
frumvarpið kom fram
fyrir um tíu vikum.
„Mér finnst vera meiri
skilningur og meiri al-
menn sátt um það að við
þurfum að kappkosta
sem þjóð, Íslendingar,
að halda úti sérhæfði
heilbrigðisþjónustu á
sem flestum sviðum.
Það getur þó verið erfitt
í 300 þúsund manna
þjóðfélagi. Umræðan
undanfarnar vikur
hefur einkennst af sjón-
armiðum ýmissa hagsmunahópa
og viljinn til að gera vel í heilbrigð-
isþjónustu er mjög ríkur og al-
mennur. Þau sjónarmið sem komið
Á næstu fimm árum
fær Landspítalinn
um 5,5 milljarða til
tækjakaupa sem
vinda á ofan af upp-
safnaðri þörf.
Ljósmynd/Hari
Milljarða innspýting til tækjakaupa
Heilbrigðis-
ráðherra mun
veita milljarði
til tækjakaupa
á Landspítala á
næsta ári til við-
bótar 262 millj-
ónum sem gert
var ráð fyrir í fjár-
lagafrumvarpi. Á
næstu fimm árum
fær Landspítalinn
um 5,5 milljarða til
tækjakaupa sem
vinda á ofan af
uppsafnaðri þörf.
Landspítalinn er einn
af stærstu útgjalda-
liðum fjárlaga. Árið
2008 fékk spítalinn
tæplega 46 milljarða
króna fjárveitingu frá
ríkinu, uppreiknað á
núgildandi verðlag, en
fjárveiting samkvæmt
fjárlagafrumvarpinu
sem lagt var fram í
vikunni er rúmir 38
milljarðar. Munurinn
er 17 prósent, um átta
milljarðar. Á tímabilinu
hækkuðu framlög
til LSH um 1 milljarð
vegna nýrrar starfsemi
og er skerðingin því í
reynd um 9 milljarðar
eða 20%. Framlög til
heilbrigðismála í heild
sinni voru rúmir 115
milljarðar á síðasta
ári. Þau hafa farið
lækkandi ár frá ári
sem hlutfall af þjóðar-
framleiðslu og hefur
hlutfallið ekki verið
lægra síðan 1998.
FramLög tiL heiLbrigðismÁLa ekki Lægri FrÁ 1998
Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.
Framhald á næstu opnu
50 fréttaskýring Helgin 6.-8. desember 2013