Fréttatíminn - 06.12.2013, Blaðsíða 80
Helgin 6.-8. desember 201380 tíska
STEFÁN BOGI
GULL OG SILFURSMIÐUR
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 2
www.metaldesignreykjavik.is
METALDESIGNREYKJAVIK Bankastræti 3 | 101 Reykjavík | S. 551 3635
Rosaflottar
sokkabuxur
J ólamarkaður PopUp versl-unar í Hörpu heldur áfram helgina en allt að 35 hönnuðir
munu vera með vörur sínar til sölu.
„Markaðurinn liggur alveg frá inn-
gangi Hörpu og fer í þrautakóng í
gegnum kaffihúsið Munnhörpuna
og alveg inn að rýminu Flóa,“ segir
Þórey Björk Halldórsdóttir, skipu-
leggjandi PopUp jólamarkaðarins.
Þórey segir að markaðurinn hafi
gengið vel um síðustu helgi og salan
hafi verið fín en hins vegar verði mun
fleiri hönnuðir með vörur sínar nú
um helgina eða 35 í stað 23.
Anthony Bacigalupo frá Kaliforníu
ásamt Ýri Káradóttur og Lísu Kjart-
ansdóttur hanna fyrir vörumerkið
Reykjavik Trading Co. og hafa vörur
þeirra vakið mikla athygli. Vöru-
merkið er vinsælt og hefur hópurinn
verið mikið að selja í Los Angeles,
San Francisco, Kaupmannahöfn,
Kanada og Japan en stefna að því að
opna sína eigin verslun á Íslandi með
vorinu. Bæði keramík- og viðarlamp-
arnir sem og ullarhulstrin þeirra
hafa vakið mikla athygli og hafa selst
mjög fljótt upp í þeim verslunum sem
vörurnar hafa verið til sölu. Segir
Anthony að ullarhlustrin sem eru
fyrir Ipada og Mac Book fartölvur
gífurlega vinsælar erlendis ekki bara
vegna þess að fólk elski íslenska
ull heldur vegna þess að það er svo
hrifið af gamla íslenska prjóna-
mynstrinu. Á Íslandi hafa vörurnar
verið fáanlegar í Aurum á Laugavegi.
Hópurinn leggur mikið upp úr því að
styðja íslenska framleiðslu og hand-
verk og notar aðeins íslenskt hráefni
nema eikarviðinn sem fluttur er
inn frá Kentucky í Bandaríkjunum.
„Íslensku vetrarlitirnir gefa okkur
innblástur en það má segja að okkar
hönnun sé blanda af íslenskri hlýlegri
hönnun sem og bandarískri „vintage“
hönnun, sem kölluð er oft „campy“
eða „woodsy“ og þá er verið að blanda
saman gamalli hönnun frá Kalíforn-
íu,“ segir Anthony. PopUp markaður-
inn verður opin frá klukkan 12-18
bæði laugardag og sunnudag.
María Elísabet Pallé
maria@frettatiminn.is
Íslensk hönnun gæti verið
hin fullkomna jólagjöf
Fjölmargir íslenskir hönnuðir verða í Hörpu
um helgina og selja vörur sínar. Hægt verður
að kynna sér nýjungar í íslenskri hönnun
sem og gera góð kaup fyrir jólin. Til sölu
verða tískuvörur, skartgripir, heimilisvörur,
leikföng, barnaföt, jólakort og margt fleira
sem hentar þeim sem eiga allt.
Keramík- og
viðarlampinn
frá Reykjavik
Trading Co.
sem hefur selst
upp á mörgum
stöðum.
Falleg gler-
kúla með
lifandi plöntu
frá Reykjavik
Trading Co.
Jólaundirbúningur 35 hönnuðir í hörpu