Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.11.2011, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 11.11.2011, Blaðsíða 10
Vilja lyfsölu í verslunum Hagsmunaaðilar lyfjasölu vilja að leyft verði að selja lausasölulyf í almennum verslunum. Þeir vilja að heimilt verði að auglýsa þau í sjónvarpi og nota efsta stig lýsingarorða í auglýsing- unum þegar það á við. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Félags atvinnurekenda, Frumtök og Samtök verslunar og þjónustu, sem birt er á vef velferðarráðuneytisins. Hagsmunaaðilarnir vilja einnig að lyfjafræðingar geti endurnýjað lyfseðla fyrir tiltekin lyf þegar um framhaldsmeðferð er að ræða, því það létti álagi af læknum sem hafi þá meiri tíma til lækninga og greininga. Meðal neikvæðra áhrifa telja þeir að lyfseðlar verði hugsanlega endur- nýjaðir að óþörfu. - gag Vill frítt í sund fyrir tíu ára og yngri Hjálmar Hjálmarsson, leikari og bæjarfulltrúi í Kópavogi, vill að börn yngri en tíu ára fái frítt í sundlaugar Kópa- vogsbæjar. „Fyrr á þessu ári voru samþykkt lög varðandi aldurstakmark í sundlaugar sem gera ráð fyrir því að börn séu orðin 10 ára gömul svo þau megi sækja sund- staði ein, án fylgdar fullorðinna. Í því skyni að hvetja forráðamenn barna á aldrinum 6-10 ára til sundiðkunar, legg ég því til að aðgangseyrir fyrir börn yngri en 10 ára verði enginn,“ sagði hann á síðasta bæjarráðsfundi. Bæjarráðið vísaði málinu til bæjarstjórnar. Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs, segir að hugmyndin verði skoðuð við gerð fjárhagsáætlunar. „Við útilokum þetta ekki frekar en annað,“ segir hún. „Tilhneigingin hefur verið að hækka gjaldskrána en við höfum verið að reyna að lágmarka gjaldskrárhækkanir.“ Hún vill þó ekki gefa falskar vonir um frítt í sund. - gag H ið nýja og glæsilega varðskip Þór sigldi um hríð á heimleiðinni frá Chile á annarri aðalvélinni þar sem boltar sem tengjast olíupönnu hinnar aðalvélar skipsins slitnuðu. Ásgrímur Ás- grímsson hjá Landhelgisgæslunni segir að þessi vandræði með vélbúnaðinn hafi tengst þeirri vél sem skipt var um eftir að flóðbylgja skall á skipasmíðastöð og varðskipið í kjölfar 8,8 stiga jarðskjálfta í febrúar á síðasta ári. Áhöfn Þórs hafi hins vegar gert við það sem aflaga fór og skipið hafi komið heim á báðum vélunum með allt vélakerfi í lagi. „Það var ekkert alvarlegt sem átti sér stað,“ segir Ásgrímur. „Þetta er glænýtt skip og ekkert óeðlilegt að ákveðnir hlutir þarfnist lagfæringar. Þetta var hins vegar ekkert sem áhöfnin réð ekki við,“ segir hann og neitar því að orsakir þessa séu að skipið hafi skekkst þegar það skemmdist er flóðbylgjan skall á það. Miklar skemmdir urðu á skipasmíðastöð- inni en náttúruhamfarirnar urðu til þess að afhendingu Þórs seinkaði. „Það eru ýmis atriði við nýtt skip sem menn eru að læra á, ekki bara þau sem tengjast vélbúnaði,“ segir Ásgrímur. „Skipið sjálft er stórt og mikið tæknidæmi og ýmsir hlutir sem þarf að fínstilla.“ Hann segir að á meðan skipt var um bolt- ana sem slitnuðu hafi ekki verið hægt að keyra vélina, „en þetta skip er með tveim- ur aðalvélum sem gerir það enn öruggara þótt eitthvað smávægilegt sé að annarri þeirra.“ Ásgrímur nefnir enn fremur að í sífellu sé verið að skipta á vélum annarra skipa Landhelgisgæslunnar þegar verið sé að vinna við þær. „Skipið er í ábyrgð og vélar þess líka. Það má reikna með því að menn frá skipasmíðastöðinni og aðilar tengdir vél- búnaðinum komi töluvert hingað til lands næsta árið í ýmislegt eftirlit og við köllum á þá af minnstu ástæðu meðan allt er í ábyrgð.“ Aðspurður um hættu á því að boltar í vélinni slitni á ný segir Ásgrímur að auð- vitað geti allt endurtekið sig en þetta sé ekki eitthvað sem menn hafi þungar áhyggjur af enda hefði varðskipið þá ekki verið sent í hefðbundinn gæslutúr en það fór suður og austur fyrir land í tengslum við björgunaraðgerðir vegna flutninga- skips sem missti stýrið utan Horna- fjarðar. Þór hélt þá för sinni áfram, kom við á höfnum eystra og fer nú hringinn í kringum landið og kemur víðar við.  Varðskip Viðgerð á Heimleiðinni Boltar í annarri aðal- vél Þórs slitnuðu Heimsigling Þórs, hins nýja varðskips alla leið frá Chile, var um hríð á annarri aðalvélinni eftir að boltar sem tengjast olíupönnu hinnar vélar skipsins slitnuðu. Sú vél kom í stað þeirrar sem skipt var út eftir að flóðbylgja skall á skipið í smíðum. Ekkert alvarlegt segir Landhelgisgæslan. Þór, flaggskip Landhelgisgæslunnar, á leið til hafnar í Reykjavík í fyrsta sinn. Boltar sem tengjast olíupönnu annarrar aðalvélar varðskipsins slitnuðu á heimsiglingunni frá Chile. Áhöfninni tókst að gera við en á meðan á viðgerð stóð var skipinu siglt á einni vél í stað tveggja. Ljósmynd Hari Skipið er í ábyrgð og vélar þess líka. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu Gersemar í safnið! Tvær ómissandi bækur í barnaherbergið, Jón Oddur og Jón Bjarni og Litlu greyin eftir Guðrúnu Helgadóttur Í þessar i óborga nlegu b ók segir frá upp átækjum Jóns O dds og Jóns Bja rna, tvíb uranna sem eru löngu þ jóðkunn ir. Þeir lenda í fjölda æ vintýra sem kitl a hlátur - taugar u ngra sem eldri les enda. Sagan um Jón Odd og Jón B jarna va r frumrau n Guðrú nar Helg adóttur á bókme nntasvið inu. Þett a er ein vinsælas ta barna bók sem komið hefur út hér á la ndi og fy rir hana hlaut Gu ðrún Ba rnabóka verðlaun fræðslur áðs Reyk javíkur v orið 197 5. Bókin hefur ve rið þýdd á fjölda tungum ála og au k þess kv ikmyndu ð. Guðrú n hefur hlotið N orrænu barnabó kaverðla unin fyr ir bækur sínar og hafa erl endir rit dómarar skipað h enni á b ekk með Astrid L indgren , Torbjör n Egner og Anne-C ath. Wes tly. Bók sem slegið h efur öll met! Bók fyri r alla – k rakka, k onur og kalla! ISBN 97 8-9979-2 -0282-0 Guðrú n HelGa dóT Tir LOksin s fáanLe Gar að nýJ u 10 fréttir Helgin 11.-13. nóvember 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.