Fréttatíminn - 23.12.2011, Síða 30
30 fréttir vikunnar Helgin 23.-25. desember 2011
Mátti vísa vítisenglum úr landi
Íslenska ríkinu var heimilt að vísa tveimur
vítisenglum úr landi. Þetta var niðurstaða
Héraðsdóms Reykjavíkur sem sýknaði ís-
lenska ríkið af kröfu mannanna. Annar er
Leif Ivar Kristiansen, forsprakki norskra
vítisengla. Hann afplánar nú dóm í Noregi
fyrir fíkniefnabrot. Hinn heitir Jan Anfinn
Wahl.
Kaupmenn ánægðir með
jólaverslunina
Spár um aukna jólaverslun innanlands
í ár virðist ætla að rætast. Margrét
Kristmannsdóttir, formaður Samtaka
verslunar og þjónustu, segir að flestir séu
sammála um að nóvembersalan hafi verið
mjög góð og kaupmenn séu ánægðir með
verslunin það sem af er desember.
Lúðuveiðar bannaðar
Allar lúðuveiðar hér við land verða
bannaðar frá með áramótum. Sjómenn
verða þá skyldaðir til að sleppa í sjóinn
aftur lífvænlegri lúðu en aflaverðmæti
þeirrar lúðu sem kemur að landi rennur til
rannsókna. Lúða veiðist oft sem meðafli.
Hafrannsóknarstofnun lagði til friðunina.
Ársverðbólgan 5,3 prósent
Ársverðbólgan mælist nú 5,3 prósent.
samkvæmt mælingu Hagstofunnar.
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í
desember hækkaði um 0,36 prósent frá
fyrra mánuði.
Jólamaturinn dýrari í ár
Ýmislegt á jólaborðið hefur hækkað um
tugi prósenta frá því fyrra samkvæmt
könnun Alþýðusambandsins. Verð á
reyktu kjöti hefur hækkað um allt að 41%
í sumum verslunum.
Hamborgarhryggur vinsælastur
Rúmlega helmingur þeirra sem þátt
tók í könnun MMR ætlar að vera með
hamborgarhrygg í jólamatinn. Næst
vinsælast er lambakjöt, rúm ellefu
prósent ætla að hafa lambasteik á að-
fangadag, álíka margir hafa kalkún og
rjúpu, um það bil 9 prósent.
Össur fer með Icesave
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra
mun hafa stjórnskipulega umsjón með
málarekstri Íslendinga í Icesave-málinu,
samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar.
Stjórnarandstæðingar lögðu hins vegar á
það áherslu að Árni Páll Árnason efnahags-
og viðskiptaráðherra færi með málið.
Landsmót á Hellu 2014
Stjórn Landssambands hestamanna-
félaga hefur ákveðið að Landsmót hesta-
manna árið 2014 fari fram á Hellu og á
Vindheimamelum í Skagafirði árið 2016.
Orkuveitan selur Úlfljótsvatn
Skógræktarfélag Íslands, Bandalag
íslenskra skáta og Skátasamband
Reykjavíkur hafa keypt jörðina Úlfljóts-
vatn í Grafningi. Seljandinn er Orkuveita
Reykjavíkur.
Slæm vika
fyrir Bjarna Bjarnason,
forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur
Góð vika
fyrir handboltaþjálfarann
Þóri Hergeirsson
17
eru leikir sem Alfreð
Gíslason og lærisveinar hans
í þýska handboltaliðinu Kiel
hafa unnið í þýsku deildinni í
röð á þessu tímabili. Árangur
liðsins er jöfnun fyrra mets.
1,6
milljón manns sótti söfn
á Íslandi á síðasta ári
samkvæmt tölum frá Hag-
stofunni.
3.780
kílómetrar
eru vega-
lengdin
sem
álitsgjafinn
Ólafur
Arnarson
flaug í boði
Pálma
Haralds-
sonar.
13
er fjöldi Íslendinga sem hafa
leikið í ensku úrvalsdeildinni
í fótbolta. Eggert Gunnþór
Jónsson, sem gekk í raðir
Wolves í vikunni, verður sá
fjórtándi.
Með alla stóru titlana þrjá
Íslenski handboltaþjálfarinn Þórir
Hergeirsson náði þeim frábæra árangri
með norska kvennalandsliðið síðast-
liðinn sunnudag að landa heims-
meistaratitlinum eftir átta marka
sigur á Frökkum í úrslitaleik í Sao
Paulo í Brasilíu. Þar með eru Þórir og
stúlkurnar hans í norska liðinu hand-
hafar allra þriggja stærstu titlana
sem í boði eru í handboltaheimin-
um. Sigur vannst á Evrópumeist-
aramótinu í Danmörku í fyrra
og á Ólympíuleikunum í Peking
árið 2008. Næsta verkefni Þóris
er að verja Ólympíutitilinn í
London á næsta ári.
Upplýsti ekki stjórn
Þegar forstjóri upplýsir ekki stjórn félagsins, sem hann starfar
fyrir, um mikilvægar ákvarðanir bregst hann skyldum sínum.
Enn verra er svo ef hann reynir að verja slíka framgöngu í stað
þess að biðjast afsökunar og lofa bót og betrun.
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur, varð uppvís að öllu
þessu í vikunni en á mánudag
kom í ljós að hann hafði skrifað
undir viljayfirlýsingu um kaup
á Perlunni við ónefnt félag fyrir
tæplega mánuði án þess að
upplýsa stjórn Orkuveitunnar
um það. Svo virðist sem fulltrúi
meirihlutans í stjórninni hafi
verið hafður með í ráðum en
ekki minnihlutans. Þetta er
vond stjórnsýsla í anda
gamalla tíma í Orkuveit-
unni. Vonbrigði eru þegar
nýir menn renna svo
auðveldlega í gamalt far.
35
vikan í tölum
Blaut jól
Ofneysla á bjór sem sérstaklega er
kenndur við jólin er orðið að miklu
tískufyrirbæri á aðventunni. Áhugi
fjölmiðla á því hvernig landandum
gengur að drekka upp birgðirnar af
jólabrugginu þykir þó full mikill.
Gunnar Smári Egilsson
Mikil er trú fréttastofu Stöðvar 2
á áhuga áhorfenda á því hvernig
ÁTVR gengur að selja jólabjórinn
frá degi til dags.
Heimir Már Pétursson
... og þar sem ég er farinn að röfla.
Hvað með þessar endalausu aug-
lýsingar fyrir svokölluðum jólabjór
í fréttum? Hvers á viský eða vodka
að gjalda. Hvað með okkur sem
drekkum viský, sem vel má kalla
jólaviský yfir hátíðarnar. Jólabjórs-
fréttir þykja jafn sjálfsagðar og
fréttir af veðri og gæftum.
Örn Úlfar Sævarsson
Hvað er að frétta af sölu á jólabjór?
Ekkert nýtt síðan í gær? Maður er
orðinn órólegur yfir því að þetta
seljist ekki upp í ár!!!
Brynjólfur Þór Guðmundsson
Í desember taka jólabjórsfréttir
við af bensínverðsfréttum sem
tilgangslausustu og ofsögðustu
fréttirnar.
neftóbakssprengja í
bókastríði
Kiljukempunni Braga Kristjónssyni
tókst aðeins að hrista upp í mann-
skapnum þegar hann sagðist ekki
nenna að lesa bækur metsöluhöf-
undarins Yrsu Sigurðardóttur
Jakob Bjarnar Grétarsson
Víða á Facebook vælir fólk eins
og stungnir grísir yfir því að Bragi
Kristjonsson skuli voga sér að hafa
fremur takmarkað álit á stílgáfu
Yrsu Sigurðardóttur. Einhvern
veginn er allt á eina leið á Íslandi
dagsins í dag – skoðanaleysi
telst dyggð og allt undir fjórum
stjörnum á bók er svívirðileg aðför
að fólki. Geti menn ekki stráð slíku
yfir meðaljóna þessa lands skulu
þeir þegja. Merking er afmáð.
Leiðindaskarfar og meðalmenni
virðast stjórna hér öllu, kannski
sem fyrr.
Einar Kárason
Sammála þér Jakob. Enda er þessi
mjóróma slefberi með tóbaksdós-
ina (er hún ekki úr proppsi Rúv?)
leiðindaskarfur og meðalmenni.
Hvaða frétt er það að hann nenni
ekki að lesa eitthvað?
Kristján B Jónasson
Það er hátt risið á bókmenntaum-
ræðunni þegar síðustu jólasvein-
arnir ganga í garð.
Páll Bergþórsson
Það er svo mikið af hlýlegum og
skemmtilegum ummælum hjá
Braga að honum fyrirgefst allt.
Bragi Kristjónsson
Afþví jólin eru að koma, finnst
mér rétt að lýsa yfir þeirri einlægu
skoðun minni, að vandséð mun
vera, hvort er betri og dýpri
höfundur, Arnaldur Indriðason
eða Sigurðardóttir. Bæði eru
þau 5 stjörnu höfundar, hún
fyrir frábærlega útfærð plott
og ótrúlega hugmyndaauðgi í
útfærslu á íslenzkum express-
jónistískum stíl, en hann fyrst og
fremst fyrir makalausar lýsingar á
sálarlífi sakaðra og rannsakenda
og háþróaða málkennd. Vonandi
gerir þetta ekki allt vitlaust hér
og víðar.!!
Jólin, jólin, jólin alls staðar
Stuttar skýrslur Facebook-
notenda af því hvernig gengur
að undirbúa jólin, pakka gjöfum,
baka og skreyta yfirskyggðu
hefðbundið dægurþras í vikunni.
Ekkert nema gott um það að
segja. Gleðileg jól!
Hilmar Þór Guðmundsson
Miðað við hversu mikið ég á eftir að
taka til þá held ég að aðfanga-
dagur verði ekki fyrr en í fyrsta
lagi 26.desember. Vonandi tekur
enginn eftir því. Bara fleiri dagar til
að fá í skóinn!
Guðríður Haraldsdóttir
Minni á að í gamla daga fór
jólaundirbúningur fram á Þorláks-
messu. Þá var bakað, eldað, þvegið,
þrifið. Er að hugsa um að biðja
vinnufólkið á heimilinu um að gera
þetta fyrir mig á morgun á meðan
við sonur keyrum út jólagjafir. :)
Ólafur Sindri
Er það bara ég eða er minna um
„nú mega jólin koma fyrir mér“ í ár
en í fyrra? Hvernig er þetta, mega
jólin bara alls ekkert koma fyrir
ykkur? Ég veit ekki hvernig ég lifi
þessi jól af án ítarlegra upplýsinga
frá hverjum og einum um hvenær
nákvæmlega jólin mega koma fyrir
viðkomandi.
HeituStu kolin á
Skyrgámur.
Ljósmyndari
Fréttatímans
rakst á þennan
jólasvein þar sem
hann var að taka
út mjólkurvörur
í Sunnubúð á
dögunum. Ljós-
mynd Hari
milljarðar er upphæðin sem írska rokksveitin U2
halaði inn á árinu með tónleikaferð sinni undir heitinu
360° en sveitin reyndist tekjuhæst allra hljómsveita
samkvæmt bandaríska blaðinu Billboard.