Fréttatíminn - 23.12.2011, Side 60
L jósmyndarinn Spessi lét ekki stoppa sig þó hann sé fluttur til Kansas heldur hélt nú fyrr í desember sína árlegu
„Friðarmáltíð“ þar eins og hann hefur gert
fyrir jól fjórtán árin þar á undan í Reykjavík.
Spessi flutti fyrr á þessu ári ásamt konu
sinni, Áróru Gústavsdóttur, til þessa tæp-
lega þriggja milljón manna ríkis á sléttum
miðvesturhluta Bandaríkjanna. Þar er hún á
skólabekk en Spessi sinnir listinni og öðrum
hugarefnum sínum, ekki síst akstri vandaðra
mótorhjóla sem eru smíðuð af heimamönn-
um.
Þó Spessi búi nú í einu
höfuðríkja nautakjötsfram-
leiðslu vestan hafs lét hann
það engu breyta um að á
borðum „Friðarmáltíðar“
eru einungis grænmetis- og
pastaréttir.
„Um það snýst hugmyndin
í grunninn. Það er ekkert
morð framið fyrir þessa mál-
tíð. Meat is murder,“ segir
Spessi sem hefur sjálfur
verið grænmetisæta í
30 ár. „Á þessu kvöldi
elda ég jólamat eins og
ég geri heima hjá mér,“
bætir hann við en í aðal-
rétt var spínat- og ricotta cannelloni.
Að sögn Spessa var fyrsta „Friðarmáltíð“
haldin á Næstu grösum fyrir fimmtán árum.
„Það var þegar Gunnhildur vinkona mín
var með staðinn og svo áfram hjá núverandi
eigendum Sæma og Dóru en tvö síðustu ár á
Písa við Lækjargötu. Þetta var fyrsta máltíðin
utan landsteinanna.“
Vettvangur kvöldverðarins var veitinga-
staður í bænum Frankfort en eigendunum,
hjónunum Hank og Dee Schell, kynntist
Spessi í gegnum sameiginlegan mótorhjóla-
áhuga hans og Hanks. Spessa til halds og
traust í eldhúsinu var Friðgeir vinur hans,
kokkur og ljósmyndari sem býr í New Or-
leans, en brá sér til Kansas af þessu tilefni.
Auglýsingaplakat var gert fyrir kvöldið og var
húsfyllir að sögn Spessa. -jk
Það er ekk-
ert morð
framið fyrir
þessa mál-
tíð. Meat is
murder ...
grænmetisjóL 15 ára órofa hefð
Friðarmáltíð Spessa
í Kansas
Ekkert morð framið fyrir þennan kvöldverð.
Uppátækið
vakti áhuga
staðarblaðsins í
Frankfort.
Auglýsingaplakatið
fyrir „Friðarmál-
tíðina“. Með Spessa á
er Hank, vertinn sem
hýsti kvöldverðinn.
Friðgeir og Spessi (til hægri) fyrir utan veitingastaðinn og í eldhúsinu.
Valdamesta
tískufólkið
Bandaríska tímaritið Forbes, sem birtir ár-
lega lista yfir valdamestu einstaklingana á
ólíkum sviðum, tilkynnti í vikunni að syst-
urnar Mary Kate og Ashley Olsen, 25
ára gamlar, séu valdamestar í tískubrans-
anum þeirra sem eru undir 30 ára aldri.
Þær eru miklir frumkvöðlar í tísku og
hafa meðal annars framleitt fjöldann allan
af fatalínum síðustu ár.
Í öðru sæti hafnaði bandaríski hönnuð-
urinn Alexander Wang með sína smekk-
legu hönnun en hann er ekki nema 28 ára
gamall og hefur klifið vinsældastigann
hratt á síðustu mánuðum.
Nafnið Joseph Altuzarra er ekki eins
kunnuglegt og hin þrjú en hann hafnaði
í þriðja sæti. Hann vinnur hjá bandaríska
tímaritinu Vogue og er búist við miklu af
þessum hörkuduglega dreng í framtíðinni.
Muse fyrirsæta ársins
Við lok hvers árs gefur tímaritið Vogue út
lista með áhrifamestu fyrirsætum ársins.
Samkvæmt þessum lista, sem gefinn var
út fyrr í vikunni, er hin 23 ára Arizona
Muse sú sem bar af á árinu. Hún prýddi sex
Vogue forsíður á árinu og um 220 myndir
af henni birtust á síðum tímaritsins. Vogue-
ritstýran Anna Wintour hefur ekki nema
gott eitt um þessa ungu fyrirsætu að segja og trúir því að
hún verði ein af stærstu fyrirsætum samtímans.
Í öðru sæti hafnaði brasilíska fyrirsætan
Raquel Zimmermann og í þriðja sæti var
nýjasta Victoria’s Secret-fyrirsætan, hin
nítján ára gamla Karlie Kloss.
Joseph Altuzarra.
Alexander Wang.
Mary-
Kate og
Ashley
Olsen.
J Ó L AT I L B O Ð
FULLT VERÐ
139.900
99.900
FULLT VERÐ
59.900
42.900
YFIR 30 GERÐIR
GASGRILLA
MIKIÐ ÚRVAL
GRILLÁHALDAHlíðasmára 13, Kóp - S. 554 0400
Grill sem endast
FULLT VERÐ
109.900
79.900 13,2kw/h
HELGARBLAÐ
auglysingar@frettatiminn.is
Auglýsingasími Fréttatímans
531 3300
60 dægurmál Helgin 23.-25. desember 2011