Fréttatíminn - 07.12.2012, Síða 28
er útgefandi American Express® samkvæmt leyfi frá American Express
American Express
Valid Thru Member Since
American Express
Valid Thru Member Since
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Jólapottur American Express®
Þú gætir unnið ferð til USA og 100.000 Vildarpunkta!
Þú gætir unnið glæsilega vinninga ef þú notar Icelandair American Express til að versla fyrir jólin.
Allir meðlimir sem nota kortið fyrir 5.000 kr. eða meira fyrir 15. desember fara í jólapottinn
og því oftar sem þú notar kortið, því meiri möguleikar á vinningi!
Sex heppnir meðlimir verða dregnir úr jólapottinum
• 1x Flug fyrir tvo til Bandaríkjanna með Icelandair og 100.000 Vildarpunktar
• 1x Flug fyrir tvo með Flugfélagi Íslands + gisting á Icelandair hótels í eina nótt.
• 2x Yndislegt steinanudd fyrir tvo að verðmæti 30.000 kr.
• 2x Gjafabréf á veglega máltíð að verðmæti 25.000 kr.
American Express er skrásett vörumerki American Express.Kynntu þér málið nánar á www.americanexpress.is
Þórarinn segir samstarfið hafa gengið
áreynslulítið fyrir sig. „Við unnum þetta
kannski frekar í sundur en saman. Það er að
segja, Edda setti mig inn í sögurnar sem hún
bjó náttúrlega í raun og veru til. Hún sagði
mér hvað væri að gerast og lýsti stemning-
unni, hvað fólkið héti og þess háttar. Síðan
réðst það nú bara af einhverri tilviljun úr
hvaða átt ég kom að þessu í ljóðskreyting-
unni.“
Allur ágóðinn af sölu bókanna rennur til
Hollvina Grensásdeildar. „Grensás á 40 ára
afmæli á næsta ári þannig að mér fannst
upplagt að gefa Hollvinunum þessa gjöf sem
gæti síðan reynst heilladrjúg í framtíðinni.
Þetta eru svona klassískar sögur og það mun
bætast í lesendahópinn jafnt og þétt vegna
þess að það fæðast nú alltaf ný börn.“
Edda Heiðrún segir þau Þórarin bæði
hafa góða reynslu af Grensási og því hafi
legið beint við að styrkja hollvinasamtökin
með samstarfinu og Þórarinn tekur undir
með henni. „Við höfum bæði góða reynslu af
Grensási. Þórarinn í gegnum son sinn heitinn
og ég af dvöl minni þar. Það lá eiginlega beint
við að gefa þeim þetta. Þetta hefur reynst
heilladrjúgt fram að þessu,“ segir Edda
Heiðrún sem hefur áður beitt sér af kappi í
fjáröflun fyrir Grensásdeildina.
Hollvinir Grensásdeildar hafa látið gera
eftirprentanir af myndunum í bókunum og
þær eru einnig seldar til styrktar deildinni.
„Ég er svo enn að leita að kaupanda að frum-
myndunum sem ég ætla svo að gefa Grensási.
Þetta eru fjórtán, fallega innrammaðar mynd-
ir sem eru til sýnis í Þjóðmenningarhúsinu.“
Textagerð í næsta lífi
Þórarinn hefur lengi skemmt börnum og
auðgað málvitund þeirra með sprellfjörugum
kveðskap sem oftast hefur fylgt myndskreyt-
ingum systur hans, Sigrúnar Eldjárn. Þá hafa
ljóðin oftast legið fyrir og Sigrún síðan tekið
við en hann hefur þó líka komið að myndum
Sigrúnar úr sömu átt og hann nálgaðist vatns-
litamyndir Eddu Heiðrúnar.
„Yfirleitt hafa ljóðin komið fyrst en í sum-
um bókanna okkar hefur Sigrún gert mynd-
irnar fyrst og þá stendur alltaf að þetta sé bók
eftir Sigrúnu Eldjárn og að ég ljóðskreyti. Í
þessu tilfelli erum við bara talin upp tvö sem
höfundar og það sést nú bara ekkert fyrr en
í höfundaréttinum hvort okkar gerði textann
og hvort gerði myndirnar.“
„Enda skiptir það ekki öllu,“ skýtur Edda
Heiðrún inn í og Þórarinn heldur síðan
áfram: „Ef ég hefði hins vegar gert myndirn-
ar þá væru þetta nú ekki fýsilegar bækur en
hefðu sjálfsagt orðið fínar ef Edda hefði gert
textann.“
„Ooooo, ég veit það nú ekki,“ segir Edda
Heiðrún. „Ég held ekki. Ég er ekki góð í
tungumálum. Ég er ekki orðsins manneskja
en Þórarinn er það. Ég á það einhvern tíma
eftir...“
„Það á eftir að koma,“ segir Þórarinn og
Edda Heiðrún botnar: „Í næsta lífi.“
Kunningsskapur varð að traustri vináttu
Edda Heiðrún og Þórarinn hafa þekkst í ára-
tug eða svo og upp úr því sem fyrst var kunn-
ingsskapur myndaðist mikil vinátta. „Við
vorum í ákveðnu samstarfsverkefni sem fór
af stað 2002 eða 2003 eða eitthvað svoleiðis.
Síðan varð ekkert úr því en við höfum þekkst
ágætlega síðan,“ segir Þórarinn.
„Þau hjónin voru svo í vinahópnum mínum
sem þjónaði mér í sjálfboðavinnu í þrjú ár og
voru mitt styrktarnet,“ segir Edda Heiðrún
sem hefur nú fengið styrk til þess að greiða
fyrir þá helstu aðstoð sem hún þarf. „En nú
get ég borgað fyrir það starf sem vinir mínir
gáfu ríkinu í þrjú ár. Það er ekkert öðruvísi.
En þetta var semsagt svona skávinátta til að
byrja með en endaði svo í vinskap, væntum-
þykju og virðingu.“
„Já, það er óhætt að nota þau orð,“ segir
Þórarinn.
„Það er tvímælalaust hægt sækja styrk til
þeirra hjóna. Þau eru reynslunni ríkari þann-
ig að það er gott fyrir mig að geta hallað mér
að þeim og þá er sama hvort það er Unnur
eða Þórarinn.“
Þrátt fyrir andstreymið eru vinirnir
æðruleysið uppmálað og kunna að meta
fegurðina í hinu smáa sem gefur lífinu gildi.
Edda Heiðrún nefnir sem dæmi að sér finnst
fólk hætt að umgangast mat af því þakklæti
og virðingu sem honum ber. Fólk virðist upp-
teknara af því að úða honum í sig frekar en
staldra við, njóta hans og þakka fyrir hann.
Maður má vera þakklátur fyrir svo margt.
Eins og að fá góðar kartöflur. Þær eru partur
af því sem gerir hversdagsleikann þess virði
að lifa hann.“
„Það er alveg satt,“ tekur Þórarinn undir.
„Við gleymum því oft að við erum meira og
minna á vernduðum vinnustað.“
„Nákvæmlega,“ segir Edda Heiðrún.
„Þetta er gósenland og maður er svo feginn
að búa hérna.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
„Við höfum bæði góða reynslu af Grensási. Þórarinn í gegnum son sinn heitinn og ég af dvöl minni þar. Það lá
eiginlega beint við að gefa þeim þetta. Þetta hefur reynst heilladrjúgt fram að þessu,“ segir Edda Heiðrún.
Fimm bækur
í flóðinu
Þórarinn er með óvenju mörg járn í eldinum á
þessari vertíð en honum telst til að hann sé með
fimm bækur í flóði þessara jóla. „Það er allt í
gangi og ég hef litið svo á að ég sé með fimm
bækur að þessu sinni. Skáldsöguna Hér liggur
skáld, þýðingu á Macbeth, þessar tvær Eddur,“
segir Þórarinn og vísar til bókanna sem hann
gerði með Eddu Heiðrúnu. „Svo annaðist ég
útgáfu á Vínlandsdagbók sem pabbi skrifaði fyrir
fimmtíu árum. Ég hélt utan um hana og skrifaði
formála og svoleiðis þannig að mér finnst nú að
sú bók tilheyri mér líka að einhverju leyti. Þannig
að þetta eru fimm stykki en það hittist bara
svona á að þetta lendir allt á sama tíma.“
Málverkasýning
í Þjóðmenningarhúsinu
Þann 1. desember opnaði Edda Heiðrún sýningu á
verkum sínum í Þjóðmenningarhúsinu. Þar sýnir
hún bæði olíu- og vatnslitamyndir þar sem uppá-
haldsfuglinn hennar,
lóan, er áberandi. Þótt
lóan skipi öndvegissess
á sýningunni eru fleiri
fuglar á ferðinni og á
stærstu mynd sýningar-
innar er spóapar með
hreiður og fimm egg.
Myndirnar eru til
sýnis í verslun og veit-
ingastofu Þjóðmenn-
ingarhússins en flest
verkin á sýningunni eru
unnin í MS-Setrinu og á Endurhæfingardeildinni
á Grensási. Þetta er fimmta einkasýning hennar
og hún hefur tekið þátt í einni samsýningu í
Bretlandi. Edda Heiðrún átti frumkvæði að því að
stofna tilraunastofu í myndlist fyrir hreyfihamlaða
hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Verk hennar
úr tilraunastofunni eru sýnd í kjallara Þjóðmenn-
ingarhússins, ásamt myndunum úr barnabók-
unum tveimur sem eru þar til sölu.
Sýningin í Þjóðmenningarhúsinu stendur til 28.
febrúar 2013.
26 viðtal Helgin 7.-9. desember 2012