Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.12.2012, Side 32

Fréttatíminn - 07.12.2012, Side 32
LEIKSTÝRT AF MAGNUS MARTENSEN SEM LEIKSTÝRÐI NORSKU ÚTGÁFUNNI AF NÆTURVAKTINNI HÖFUNDUR METSÖLUBÓKARINNAR HAUSAVEIÐARARNIR BYGGÐ Á SÖGU EFTIR JO NESBØ "Skemmtilega blóðug og yndislega svartur húmor!" - SCREEN "Coen bræður væru stoltir af þessum stíl!" - TOTAL FILM FRUMSÝND Í DAG Í HÁSKÓLABÍÓI Þ eir Ögmundur Jónasson og Össur Skarphéðins-son eru feður núverandi ríkisstjórnar. Þeir fundu lausnina á ESB málinu sem átti að duga báðum flokkunum. Samfylkingin fengi að sækja um aðild en VG yrði á móti aðild í þjóðaratkvæða- greiðslu. „Mér leist ekkert á þessa aðferð og sagði Ögmundi það.“ Þetta kemur fram í bók Svavars Gestssonar Hreint út sagt, sjálfsævisaga, sem kemur út hjá JPV og er reyndar eina ævisagan sem birtist fyr- ir þessi jól. Svavar skrifar bókina sjálfur og það er einnig nýlunda í ein fjörutíu ár. Ævisögur stjórnmálamanna undanfar- inna ára hafa verið skrifaðar af öðrum. En um ESB og myndun ríkisstjórnarinnar segir í bókinni: „Ögmundur Jónasson var reyndar einn aðalhöfundur nýrrar vinstristjórnar. Þeir Össur Skarphéðinsson höfðu haft forystu um að koma stjórninni saman. Þeir höfðu saman fundið þá lausn sem dygði fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð til að komast inn í stjórnina en sækja samt um aðild Íslands að Evrópu- sambandinu: Þjóðaratkvæði, lýðræði, var svarið. Það átti að sækja um aðild og kjósa svo um niðurstöðuna. Þannig gæti VG haldið sinni áru hreinni: Verið með umsókn en fellt hana svo. Og Samfylk- ingin líka: Sótt um aðild í bandalagi við flokk sem var á móti aðild að Evrópusam- bandinu. Allt gekk þetta eftir. Mér leist ekkert á þessa aðferð og sagði Ögmundi það. Ég játa að ég skildi aldrei hvernig VG ætl- aði að láta það ganga upp að eiga aðild að stjórn sem sækti um aðild að Evrópusam- bandinu. Ekki vegna þess að ég sé með eða á móti aðild að Evrópusambandinu – það kemur málinu ekki við. Heldur vegna þess að það yrði einfaldlega erfitt fyrir VG að láta pólitíkina í málinu ganga upp. En það tókst að koma nýrri ríkisstjórn sam- an. Fyrst hafði tekist að koma ríkisstjórn Geirs Haarde frá. Það var ekki einfalt því að Geir var snjall að finna samstarfsleiðir sem dugðu Samfylkingunni. Stjórn Geirs hefði reyndar lifað langt fram á árið 2009 að minnsta kosti ef honum hefði tekist að skipta um seðlabankastjóra. Það var stórmál fyrir Samfylkinguna að losna við Davíð Oddsson úr Seðla- bankanum og margir forystumenn Sjálfstæðisflokksins vildu það líka. Stjórnarflokkarnir, Samfylkingin og Vinstrihreyf- ingin – grænt framboð, unnu stóran kosningasigur og þeir settu saman stjórnarsáttmála í byrjun maí 2009.“ Mér leist ekkert á þessa aðferð Segir Svavar Gestsson í bók sinni Hreint út sagt um aðferðina við að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Svavar Gestsson, fyrrverandi þingmaður, ráðherra og sendiherra. Í sjálfsævisögu hans, Hreint út, er greint frá löngum og litríkum stjórnmálaferli. Össur Skarphéð- insson utanríkis- ráðherra. Ögmundur Jónasson innan- ríkisráðherra. Helgin 7.-9. desember 2012
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.