Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.12.2012, Side 64

Fréttatíminn - 07.12.2012, Side 64
Stúfur birtist óvænt, eftir enga bið – á mettíma úr móðurkvið. Grýla hafði gengið um á gömlum serk – möglað yfir magaverk. Lúði tók hann léttvægan í loðinn hramm – varla meir en milligramm. Hanteraði hikandi í hrömmum sér: – „Þetta’ er ekki undan mér!“ Frændur birtust, forynjur og flennitröll – knúsa vildu krílið öll. Sneru heim með heillaskeytin, heldur svekkt – sáu ekkert, sögðust blekkt. En Stúfur óx, þá aðallega upp í loft – þó hann týndist ansi oft. Fyrr en varði frækinn náði fullri smæð – mældist einn og átta’ á hæð. Hann vildi gera velflest til að verða stór – drakk því bæði blek og klór. En ekkert gekk og áfram var hann algert peð – risavaxnar vonir með. Í andliti hans agnarlítið alskegg spratt – ítrekað hann um það datt. Lítið var hann liðtækur við leik og störf – almennt var hans ekki þörf. Bræður hans til byggða þurftu’ að bera Stúf – það var skylda létt og ljúf. Hann rúmaðist í rennilæstum rúgmjölssekk – sem við þrúgur þeirra hékk. Vígreifur og vaskur mætti vinnu til – krökkum færði kerti og spil. En tróðst þá undir tindilfættum trítlaher – fljótur mátti forða sér. Svo langaði hann ljúfmeti að læða’ í skó – en upp í gluggann ekki dró. Í bríaríi bræður hans þá birtust tveir – barni gottið báru þeir. Eftir þetta óhapp varð hann ósköp smár – lítill í sér; leiður, sár. Að lokum fann hann leið sem í sér lausnir fól – hann setti’ á laggir Litlu-jól! Stúfur er í eðli sínu eins og við – og raunar mestallt mannkynið. Hvar sem þörf á hugrekki að höndum ber – stækkar hann í hjarta sér. S T Ú F U R ÍSLENSK HÖNNUN OG RITSNILLD Í ÞÁGU FATLAÐRA BARNA OG UNGMENNA Stúfur í túlkun Braga Valdimars Skúlasonar og Þórunnar Árnadóttur fæst hjá okkur 5.- 19. desember. Casa - Skeifunni og Kringlunni Epal - Skeifunni, Leifsstöð og Hörpu Kraum - Aðalstræti og Garðatorgi Kokka - Laugavegi · Líf og list - Smáralind Módern - Hlíðarsmára Þjóðminjasafnið - Suðurgötu Blómaval - um allt l nd Hafnarborg - Hafnarfirði Blóma - og gjafabúðin - Sauðárkróki Póley - Vestmannaeyjum Valrós - Akureyri Netverslun – www. jolaoroinn.is Styrkt félag lamaðra og fatlaðra skapurinn fyrirferðarmikil persóna í Undantekning- unni. Auði er það líka hugleikið að sjálft minni mann- eskjunnar og skáldagáfan eru á sama stað í heilanum. Þannig að hún spyr sig hvernig minningar við mann- fólkið eigum? Aðalskáldið í Undantekningunni býr í kjallaranum hjá aðalsöguhetjunni. Hún er líka hjónabandsráð- gjafi og dvergur. „Svo er hún leigupenni hjá þekktum glæpasagnahöfundi en er að reyna að stíga skrefið sjálf inn í heim fagurbókmennta,“ segir Auður og bætir við að morð í bókmenntum þurfi helst að vera með þeim hætti að morðingi „ýti höfundinum sjálfum fram af hengiflugi.“ Og það er alltaf hægt að kafa dýpra þegar kemur að bók eftir Auði. Ein meginhugmyndin í Undantekning- unni er líka að í bókinni teflir Auður fram óreiðu lífsins og þeim ramma sem skáldskapurinn er: „Það má segja að þetta séu tvær megin andstæðurnar í bókinni.“ Þegar Auður talar um bókina eru engin hikorð heldur hljómar hún næstum eins og vel skrifuð bók- menntaritgerð sem höfundur hefur legið yfir svo vik- um skiptir: „Sagan hefst á gamlárskvöld þegar Flóki, eiginmaður söguhetjunnar, kemur út úr skápnum. Hann er stærðfræðingur og sérfræðingur í óreiðu- kenningunni og flytur til annars Flóka sem er líka sérfræðingur í óreiðukenningunni. Þannig að þetta eru tveir óreiðuflókar en óreiðukenningin gengur í stuttu máli út á það að það sé ekkert skipulag og ekkert kerfi og engin regla í lífinu. Þegar fiðrildi blakar væng í Singapúr rignir í Stykkishólmi. Það er samhengi óreiðukenningarinnar og ég reyni að flétta þetta allt inn í byggingu bókarinnar.“ „Mér finnst samt oft eins og því meira sem ég tala um bók, því meir fjarlægist ég hana,” bætir hún við. Flókið að vera manneskja Auður Ava gaf út fyrstu skáldsöguna sína 1998. Hún segist hafa verið seinþroska höfundur að því leyti að hún var frekar sein til að byrja að skrifa. „Ég hafði nóg að gera,“ segir hún en sjö ára gömul sagði hún kennar- anum sínum í grunnskóla að hún ætlaði sér að verða rithöfundur. Þannig að það fór aldrei á milli mála hvert hennar hugur stemmdi. En það er ekki bara dýpt í nýrri bók Auðar heldur líka hlýja og frábær persónusköpun. Undantekningin er ástarsaga. Saga um vináttu og hvað það er flókið að vera manneskja. „Það er mjög flókið að vera kona,“ segir Auður: „Og það er mjög flókið að vera karlmaður. Og samskipti elskenda eru sérlega viðkvæmt mál.“ Mikael Torfason mikaeltorfason@frettatiminn.is Auður Ava að árita í ráðhúsinu í Cherbourg eftir að hafa setið fyrir svörum í 1 1/2 klukkustund. Franskir lesendur kunna að spyrja höfunda sína út úr. Myndir frá nýlegri upplestrarferð Auðar til Frakklands Áritað í Caen. Samtals áritaði Auður 138 bækur á tveimur klukku- tímum. Það eru rétt rúmar 52 sekúndur á bók! Á bókmenntahátíðinni Les Boréales í Caen í Normandí laugardaginn 24. nóvember. Það er Guillaume Patard-Legendre, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, sem heldur á mikrófóninum og kynnir þau Auði Övu og Gérard til leiks. Lj ós m yn d/ H ar i Auður reynir ávallt að smygla inn djúpri merkingu í bækur sínar. 58 viðtal Helgin 7.-9. desember 2012
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.