Fréttatíminn - 25.05.2012, Blaðsíða 18
E
nginn vafi lék á um faðerni vinn-
ingsskónna þegar verslunarhúsið
Saks í New York og blaðið Footwe-
ar News völdu þá mest „sexý“ á
dögunum. Rauðir sólar Marlena-
skónna sem eru gegnsæir, skreyttir Swarovski-
steinum og kosta tæplega 1.800 evrur (306.000
krónur), geta aðeins verið frá Christian Loubo-
utin, einum af frægustu skóhönnuði franskrar
tísku. Þessir rauðu glansandi sólar hafa frá
upphafi verið vörumerki hans og liturinn kall-
ast kínversk-rauður. Stundum líkjast skórnir
skúlptúrum og sjálfsagt ekki alltaf þægilegir
enda hefur Louboutin sýnt skó sem var ein-
göngu ætlað að gleðja augun.
Elskaður af Carrie Bradshaw og vinkonum
Christian Louboutin var einn að þeim hönnuð-
um sem persónur Sex and City, Carrie Brads-
haw og vinkonur, höfðu í hávegum og ekki
hefur það spillt fyrir velgengni þessa hönn-
uðar sem fagnaði 20 ára starfsafmæli í fyrra.
Hann er einn af örfáum sem hefur enn ekki
selt sál sína djöflinum og nánast hægt að telja
á fingrum annarrar handar þau tískuhús sem
ekki hafa selt sig stóru lúxussamsteypunum.
Christian Louboutin varð tólf ára hugfanginn
af kvenskóm, hætti sextán ára í skóla og hann-
aði þá sitt fyrsta skópar. Hann lærði skógerð
til dæmis hjá Charles Jourdan, sem var um
langt skeið stórt nafn í franskri skótísku, og
hjá Roger Vivier, sem varð meistari hans og
fyrirmynd. Louboutin var aðeins 27 ára þegar
hann opnaði sína fyrstu búð í París 1991 og
þær urðu fljótt fleiri en það er Anna Wintour
og Vogue sem opna honum dyrnar í Bandaríkj-
unum. Gæði framleiðslu Louboutins hafa alltaf
verið einstök og mikið til handunnin. Hann
segir skóhæl breyta hreyfingum líkamans og
getur af hljóðinu einu sagt til um hæð hælsins –
myndi helst vilja banna sléttbotna klossa.
Þrátt fyrir að gefa lítið fyrir duttlunga stjarn-
anna er listi frægra viðskiptavina hans langur;
Nicole Kidman, Uma Thurman, Angelina Jolie
og Christina Aguilera sem að sögn á þrjú-
hundruð pör!
Málaferli við tískuhús Yves Saint Laurent
En á tímum miskunnarlausrar samkeppni er
ekki nóg að vera skapandi og hafa sín sérkenni.
Í árslok 2010 framleiddi tískuhús Yves Saint
Laurent rauðsólaskó og setti á markað í Banda-
ríkjunum. Louboutin tók þessu illa og stendur
í málaferlum við PPR-samsteypuna sem er
eiganda YSL. Það er hætt við að meistari Saint
Laurent snúi sér við í gröfinni því Louboutin
var eini hönnuðurinn sem Saint Laurent vann
með í hátískunni en það var fyrir fræga sýn-
ingu árið 2002 þegar hátískuhús Saint Laurent
lokaði. Louboutin sagði í viðtali við franska
blaðið Libération í byrjun árs að stuttu áður en
YSL setti á markað rauðu sólana frægu hefði
fyrirtækið gert honum kauptilboð, einkennileg
tilviljun? Dómari í New York dæmdi þó YSL í vil
og sagði brotið ekki vega að sköpun Loubout-
ins. Málinu var áfrýjað og er dóms að vænta í
ágúst.
Nýlega bauðst Christian Louboutin að verða
fyrsti gestaleikstjóri á Crazy Horse, einu af
frægasta kabaretthúsi Parísar. Þar rætist
gamall draumur því hann hefur frá unga aldri
verið aðdáandi dansmeyja og laumaðist oft inn
í hléum á dansýningar á Folies Bergère-dans-
húsinu þegar hann var ungur og auralaus. Sýn-
ingin verður á fjölum Crazy Horse til maíloka.
Konur á rauðum skósólum
Nafn franska
hönnuðarins
Christian Loubo-
utin hefur yfir sér
goðsagnakenndan
blæ í skóhönnun.
Louboutin hefur
verið hugfanginn
af kvenskóm frá
því að hann var tólf
ára og hefur sagt
að hann vilji helst
banna flatbotna skó.
Bergþór Bjarnason
skrifar frá París.
Ljósmyndir/Nordicphotos,
Getty-Images
Bergþór Bjarnason
bergb75@free.fr
Louboutin og fyrirsætan og dansarinn Dita von Teese, sem er í hópi aðdáenda hans. Louboutin ásamt nokkrum dönsurum Crazy Hourse á frumsýningarkvöldi sýningar hans.
Rauði sólinn er vörumerki Louboutin. Hann stendur nú í málaferlum við tískuhús Yves Saint Laurent sem setti á markað skólínu með sama lit á sólum.
18 tíska Helgin 25.-27. maí 2012