Fréttatíminn - 25.05.2012, Page 22
22 eurovision 2012 Helgin 25.-27. maí 2012
RÁÐGJÖF VIÐ
GARÐAHÖNNUN
Bjarnheiður Erlendsdóttir skrúðgarðyrkjufræðingur
veitir viðskiptavinum BYKO ráðgjöf vegna fyrirhugaðra
framkvæmda í garðinum í sumar.
Skráning á netfangið gudrunhalla@byko.is og í síma 515 4144 alla virka daga.
Hver viðskiptavinur fær hálftíma ráðgjöf sem kostar kr. 5.900 og nýtist sem
inneign þegar keypt er efni í pallinn hjá BYKO. Ráðgjöfin er veitt í BYKO Breidd.
Fáðu meira út úr söngvakeppninni með
því að sækja þér skemmtileg öpp og taka
þátt í lifandi umræðu á samskiptasíðum.
Kíktu líka á öll íslensku Eurovision lögin
frá upphafi í Vodafone sjónvarpinu.
Starfsmenn
Vodafone hafa sett
saman skemmtilega
app-pakka á vodafone.is
Þín ánægja er okkar markmið
Nakti kokkurinn
lumar á skemmti-
legum partíréttum
Samsung Galaxy
49.990 kr.
Vertu með okkur
á twitter #12stig
HTC Explorer
32.990 kr.
Samsung Galaxy Y
24.990 kr.
iPhone 4s
149.990 kr.
Ómissandi í öllum
Eurovision partíum
Skapaðu réttu
stemminguna með
réttu lýsingunni.
Hitaðu upp
fyrir Eurovision
með Vodafone
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Ofur-Serbinn
Þau standa við bak
Gretu & Jónsa
Serbinn Željko Joksimovic á fáránlega góðu gengi að
fagna í Eurovision (þó ekki eins góðu og Johnny
Logan sem hefur sigrað þrisvar). Hann hefur
þegar átt þrjú lög í keppninni, sem öllum
hefur vegnað vel og spá margir hinu
seyðandi, fjórða lagi hans, Nije Ljubav
Stvar, sigri.
Željko hefur þó aðeins einu sinni áður
keppt sjálfur. Það var 2004, þegar hann
varð í öðru sæti með lagið Lane Moje,
lenti á eftir hinni ógleymanlegu Ruslönu
með trumpusláttar- og eldhafslaginu Wild
Dances frá Úkraínu. Þá keppti hann fyrir Serbíu
og Svartfjallaland. Lagið hans Layla keppti fyrir
Bosníu og Herzegóvínu árið 2006 og varð í þriðja
sæti. Svo átti hann serbneska lagið Oro árið 2008
sem varð í sjötta sæti.
Željko er fertugur. Hann talar fjölda tungu-
mála; grísku, ensku, rússnesku, pólsku og frönsku
auk þess að tala – að sjálfsögðu – serbnesku.
Það fer ekki mikið fyrir Gísla Magna, þessum 41 árs gamla sprenglærða tón-
listarmanni og útsetjara, en hann stóð líka á Eurovision-sviðinu árið 2006 með
Silvíu Nótt.
Alma Rut Kristjánsdóttir, 33 ára söngkona, sem hefur verið viðloðandi íslenska
tónlistarbransann frá Idol-tímabilinu en hún tók þátt í fyrstu keppninni.
Guðrún Árný Karlsdóttir, þrítug, og helst þekkt fyrir þátttöku sína í forkeppnum
Eurovision þar sem forkunnafögur rödd hennar hefur heillað marga.
Pétur Örn Guðmundsson, 41 árs, og oft kenndur við Jesú! Pétur er sem fastur á
skjánum þegar Eurovision er annars vegar – svo vinsæll er hann í bakraddirnar.
V
onandi verður atriðið eins á
laugardag; í lokakeppninni,“
segir Greta Salóme Stefáns-
dóttir þegar Fréttatíminn
náði tali af henni í Bakú,
daginn eftir frábæran flutning í undan-
keppni Eurovision í Kristalshöllinni í Bakú
í Aserbaídsjan. Framlag Íslendinga og lagið
hennar Gretu var þá meðal þeirra tíu sem
komust áfram.
Greta hefur lagt gríðarlega orku í Euro-
vision-ævintýrið og nú, þegar hún sér fyrir
endann á því, er hún þegar með nýtt verk-
efni í pípunum; poppplötu með klassískum
sem og þjóðlaga áhrifum og er það Þorvald-
ur Bjarni Þorvaldsson sem útsetur.
Fullmótaður listamaður
„Frá átján ára aldri hef ég verið að semja
af alvöru,“ segir hún og hefur þegar samið
um helming laganna sem verða á plötunni.
Greta er fædd árið 1986 og býr í Mos-
fellsbæ. Nú 25 ára má segja að hún komi
fram sem fullmótaður listamaður og því
vert að spyrja hvort hún hafi verið að spara
sig?
„Já, það má eiginlega segja það. Ég er
rosalega glöð að þetta gerðist ekki fyrr.
Mér finnst ég vera tilbúin núna, enda er
ég búin að fara í gegnum þennan kassíska
skóla og hef undirbúið mig lengi. Þetta var
fullkomin tímasetning og núna hlakka ég
svakalega til að koma heim og vinna í plöt-
unni minni,“ segir hún.
Með samning við Senu
„Ég gerði plötusamning við Senu eftir
undankeppnina heima og við stefnum á að
platan komi út núna í haust. Mig klæjar í
puttana að koma heim og setjast við hljóm-
borðið,“ segir hún en á það hljóðfæri sem
hún tónlist sína.
Þótt fjölmargir hafi fyrst tekið eftir Gretu
í aðdraganda þessarar Eurovision-keppni
hefur hún þegar tekið þátt í annarri keppni
sem hún sigraði í einnig. Það var árið 2008
þegar lag hennar Betlehem var valið jólalag
Rásar 2. Greta leynir því ekkert að hún er
trúuð.
„Ég er alin upp í trú og hér í Bakú nýti
Viðtal
Greta Salóme með
plötu í pípunum
Greta
Salóme
er spennt
að koma
heim þegar
Eurovision-
ævintýrinu
lýkur. Hún
vinnur að
plötu sem
á að koma
út í haust.
Greta hefur
samið tónlist
af alvöru frá
átján ára
aldri og úti-
lokar ekki að
keppa aftur í
Eurovision. Framhald á næstu opnu
Fædd í
nóvember
1986
Hóf tón-
listarnám
árið 1991 og
hefur lokið
BA gráðu í
fiðluleik frá
Listaháskóla
Íslands
Hóf
meistaranám
í Sköpun,
miðlun og
frumkvöðla-
starfi árið
2010, einnig
við Listahá-
skólann
Leikur með
Sinfóníu-
hljómsveit
Íslands
Lag hennar
Betlehem var
valið jólalag
ársins 2008 á
Rás 2
Um Gretu Salóme