Fréttatíminn - 25.05.2012, Blaðsíða 23
eurovision 2012 23 Helgin 25.-27. maí 2012
H E LGA R BL A Ð
Fáðu meira út úr söngvakeppninni með
því að sækja þér skemmtileg öpp og taka
þátt í lifandi umræðu á samskiptasíðum.
Kíktu líka á öll íslensku Eurovision lögin
frá upphafi í Vodafone sjónvarpinu.
Starfsmenn
Vodafone hafa sett
saman skemmtilega
app-pakka á vodafone.is
Þín ánægja er okkar markmið
Nakti kokkurinn
lumar á skemmti-
legum partíréttum
Samsung Galaxy
49.990 kr.
Vertu með okkur
á twitter #12stig
HTC Explorer
32.990 kr.
Samsung Galaxy Y
24.990 kr.
iPhone 4s
149.990 kr.
Ómissandi í öllum
Eurovision partíum
Skapaðu réttu
stemminguna með
réttu lýsingunni.
Hitaðu upp
fyrir Eurovision
með Vodafone
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Elsti aðalsöngvari keppninnar og
fyrstur á svið er Englebert Humper-
dinck sem keppir fyrir Breta.
Humperdinck hefur selt 150 milljónir
platna á yfir 45 ára ferli sínum.
63 plötur hans hafa verið slegið í gull
og 24 í platínu.
Það var Humperdinck sem fyrst sást
með síðu bartana og í leðurgalla,
sem margir tengja við Elvis Presley.
Þekktasta lag hans er Release Me.
Fáránlega flott lag!
Hann fæddist ekki sem Humperdinck
heldur var hann skírður Arnold
George Dorsey og fæddist 2. maí
1936.
Klemmd milli tveggja topplaga
HrafnHildur HalldórsdóttirDregur Humperdinck Eurovision til Bretlands?
„Við verðum sjöundu á svið, sem þýðir að rúss-
nesku ömmurnar eru á undan og Kýpur á eftir
okkur á laugardagskvöld,“ segir Hrafnhildur
Halldórsdóttir, kynnir í Eurovision í Bakú. „En
við megum ekki gleyma að Jóhanna Guðrún
var á sama stað þegar hún lenti í öðru sæti.
Það er því ekkert annað í stöðunni en að spýta
í lófana. Ég minni á að Greta Salóme er algjör
keppnismanneskja; enda í Cross fit.“
Hvernig leið þér þegar ljóst var að Ísland
kæmist áfram?
„Þægileg tilfinning og léttir. Það var þungu
fargi af mér létt. Mér fannst þau toppa sig. Þau
negldu þetta á þriðjudagskvöldið.“
En stóru löndin, hvernig koma þau út?
„Mér finnst stóru löndin svona sem heild
ekki hafa verið sterkari. Til dæmis er
Englebert Humperdinck með frábært
lag; svona kveikjara lag.“
Hvað ef við vinnum?
„Ég get aðeins sagt að ef Ísland
vinnur verða fleiri blaðamenn en
hér því það vilja allir fara til Ís-
lands. Blaðamenn myndu tryllast
ef Ísland myndi vinna. Hins vegar
er pressan miklu meiri hjá Svíum.
Þeir líta stórt á sig og storma um
höllina. Það er líka búið að gefa út að
ef Svíar vinna verður keppnin GRAND.
Það verður engu til sparað.“ - gag
Ég gerði plötusamning
við Senu eftir undan-
keppnina heima og við
stefnum á að platan
komi út núna í haust.
sigmar guðmundsson og Eurovision
Líklega fjarri góðu gamni á Facebook
Sigmar Guðmundsson, ritstjóri Kastljóss Ríkissjónvarpsins, hefur ekki hætt að tjá sig
um Eurovision þó ekki sé hann lengur kynnir keppninnar fyrir hönd RÚV, líkt og var fyrir
tveimur árum. Vinir hann á Facebook hafa nefnilega fengið að fylgast
með textalýsingu Sigmars frá keppninni. En það verður þó varla á
laugardagskvöldið komandi, þegar aðalkeppnin fer fram, en hann
ber þá veiku von í brjósti að eiga vini eða kunningja sem nenna að
umbera hann; að honum verði boðið í Eurovison-partí! Sigmar, sem
spáir íslenska laginu einu af fimm efstu sætum, átti góða spretti þegar
lagið vann sig upp úr undankeppninni á þriðjudagskvöldið var. Tökum
dæmi:
Er þetta ekki soldið overkill hjá Írum? Ofvirkir tvíburar klæddir
einsog erfðabreyttir silungar. Þetta er algerlega glatað stöff. Og
einmitt þess vegna fara þeir áfram.
Ég er alltaf alveg voða veikur fyrir Albaníu í Júró. Hún fer áfram
þrátt fyrir að albanski hárgreiðslumeistarinn hafi reynt sitt til að
klúðra þessu með því að setja persneskt leirker á hausinn á henni.
Veit ekki alveg með Sviss. Rokk sem á að vera kúl en er það ekki er
yfirleitt vont stöff. En þetta er það frábrugðið öðrum lögum að ég
ætla að hleypa þeim í gegn. Sniðugt af þeim að syngja enskuna
með aserskum hreim.