Fréttatíminn - 25.05.2012, Blaðsíða 36
7,6
prósent er kaupmáttarrýrn-
unin frá árinu 2008
samkvæmt upplýsingum á
heimasíðu BSRB.49,5
Vikan í tölum
milljónir er upphæðin sem Arion banki
hagnaðist um dag hvern á fyrsta
ársfjórðungi 2012 samkvæmt árs-
hlutareikningi sem bankinn birti á
miðvikudag.
Ákærður fyrir innherjasvik
hjá Glitni
Sérstakur saksóknari hefur ákært fyrr-
verandi yfirmann hjá Glitni fyrir inn-
herjasvik. Maðurinn var framkvæmdastjóri
fjárstýringar. Honum er gefið að sök að
hafa selt hlutabréf sín í bankanum rétt fyrir
hrun.
Vill flýta Norðfjarðargöngum
Lilja Mósesdóttir hefur lagt fram tillögu
á Alþingi um að Ríkisábyrgðasjóður láni
Vegagerðinni 11 milljarða króna til að flýta
gerð Norðfjarðarganga.
Játaði ákæruliði í morðmáli
Hlífar Vatnar Stefánsson játaði alla
ákæruliði í manndrápsmáli sem þingfest
var í vikunni. Hann varð unnustu sinni að
bana í Hafnarfirði í febrúar.
Óvíst hvenær Náttúruminja-
safn opnar
Staðgengill forstjóra Náttúrufræðistofn-
unar segir óvíst hvenær Náttúruminja-
safn Íslands verður opnað almenningi.
Safnið telst höfuðsafn, en samt starfar
nú enginn starfsmaður sérstaklega fyrir
safnið.
Hreyfingin sleit viðræðum
Hreyfingin sleit á mánudagskvöld við-
ræðum við ríkisstjórnarflokkana um
stuðning við einstök mál. Þingflokks-
formaður sagði stjórnina ekki hafa viljað
fara þeirra leiðir við lausn á skuldavanda
heimilanna.
Starfsemi lífeyrissjóða rann-
sökuð
Skipa á þriggja manna rannsóknarnefnd
um starfsemi lífeyrisjóða, samkvæmt
tillögu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Alþingis.
Nær 100 milljarðar í atvinnu-
leysisbætur
Gangi spá í fjárlögum eftir um að nítján
milljarðar verði greiddir út í atvinnuleysis-
bætur á þessu ári, mun stofnunin hafa
greitt alls 94 milljarða í bætur frá hruni.
Íslenski
hópurinn
komst í úrslit
í júróvisjón
eftir frábæra
frammistöðu
í undan-
keppninni sem
haldin var á
þriðjudags-
kvöld. Greta
Salóme og
Jónsi voru þjóð
sinni til sóma á
sviðinu í Bakú.
Vill banna reykingar á
spítalalóðum
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknar-
flokks og fyrrverandi heilbrigðisráðherra,
vill fara að fordæmi Svía og banna
reykingar á spítalalóðum.
Þjónustufélag WOW skortir
enn leyfi
Félagið sem á að þjónusta WOWair á
Keflavíkurflugvelli hefur enn ekki fengið öll
tilskilin leyfi en félagið áætlar að hefja flug
í næstu viku.
Stjórnarskrártillögur í
þjóðaratkvæði
Alþingi samþykkti tillögu um ráðgefandi
þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögu stjór-
nlagaráðs um stjórnarskrána með 35
atkvæðum gegn 15. Þjóðaratkvæðagreiðsla
verður haldin ekki síðar en 20. október.
Mildi að ferðamenn lifðu af
fall í Dyrhólaey
Mikil mildi þykir að ferðamenn, karl og
kona, sem hröpuðu í Dyrhólaey í gær,
fimmtudag, slösuðust ekki meira en raun
varð á. Fólkið stóð á brún Lágeyjar þegar
hún gaf sig og bergfylla féll úr brúninni 30
metra niður í fjöru.
Stækkunarstjóri fundar hér-
lendis
Stefan Füle, stækkunarstjóri í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins,
fundaði í gær með Össuri Skarphéðinssyni
og Steingrími J. Sigfússyni. Füle verður
einnig hérlendis í dag, föstudag.
Icesave-málið flutt 18. sept-
ember
Áætlað er að Icesave-málið verði flutt
munnlega fyrir EFTA dómstólnum 18.
september næstkomandi. Málið verður flutt
í Lúxemborg, þar sem EFTA dómstóllinn
hefur aðsetur.
Land sígur og rís í Krýsuvík
Land hefur risið og sigið á víxl í Krýsuvík frá
2009. Það reis um átta sentimetra í fyrra
og sígur nú í þrepum. Jarðvísindamenn
segja þessa þróun afar óvenjulega.
Júróvisjón
Þjóðin fylgdist
andaktug með
þegar íslensku
júróvisjónfararnir Greta Salóme
og Jónsi komust áfram í úrslit í
söngvakeppninni. Margir voru
duglegir að pósta statusum um
hina keppendurna. Sigmar Guð-
mundsson, fyrrum júróvisjón-
kynnir, fór á kostum á Facebook
á meðan keppninni stóð.
Sigmar Guðmundsson
Er þetta ekki soldið overkill hjá
írum? Ofvirkir tvíburar klæddir
einsog erfðabreyttir silungar.
Þetta er algerlega glatað stöff.
Og einmitt þessvegna fara þeir
áfram. Nú er ég búin að hleypa
tólf lögum áfram, þarf að grisja
þetta eitthvað.
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Beið eftir því að söngkonan
frá Albaníu myndi hella yfir sig
bensíni, slík var innlifunin...
Sigmar Guðmundsson
Það þarf ekkert að taka það
fram að Rússarnir fara áfram.
Þær eru amk meira sexí en
Dima Bilan sem er á mörkum
þess að vera kynvera.
Sigmar Guðmundsson
San Marínó fer ekki áfram. Fá
samt prik fyrir að vera með
heilsugæslulækni á sviðinu. Hef
ekki séð það áður.
Gaukur Úlfarsson
Til ykkar vina minna með
ónýtt sjónvarp. Hægt er að
fylgjast með kepninni í beinni
á Facebook síðu Sigmar[s]
Gudmundssonar
Sigmar Guðmundsson
Danir eru full ligeglad
finnst mér. Þetta fer ekki
áfram en stílistinn á sér
bjarta framtíð sem gengil-
beina á skyndibitastað.
Forsetakosningarnar
Baráttan um forsetaembættið
er heldur betur farin að hitna
eftir að Ólafur Ragnar Grímsson
steig fram og hóf sína kosn-
ingabaráttu formlega og eru
Facebook-notendur ófeimnir
við að tjá sig hana sem annað.
Gunnar Smári Egilsson
Í ljós gagnrýni Ólafs og Her-
dísar; verður RÚV ekki að
setja strax á dagskrá sérstaka
útsvarsþætti þar sem forseta-
frambjóðendur fá að spreyta
sig sem spyrlar?
Bryndis Isfold Hlodvers-
dottir
Er að horfa á Silfrið og heyri að
Páll Skúlason talar um fráfar-
andi forseta þegar hann talar
um ÓRG - ekki mótmæli ég.
Helga Kristín
Einarsdóttir
mun sennilega
þurfa að leiða hjá
sér *******kosn-
ingarnar til þess að halda
geðheilsunni
Gerður Kristný
óttast að Ástþór verði búinn að
ættleiða þríbura fyrir kaffi.
Sjónvarpsdagskráin
Margir Facebook-notendur
virðast verja kvöldunum í hvort
tveggja í senn: Að horfa á sjón-
varpið og uppfæra statusa. Þeir
voru í það minnsta kosti ófáir
sem tjáðu sig um sjónvarpsdag-
skrána í vikunni.
Gerður Kristný
Mikið held ég að Björn Thors
færi vel með hlutverk Péturs
Gunnarssonar þegar hann
verður látinn leiða okkur í
gegnum atburði ársins 2012 í
næsta Skaupi, í anda þáttanna
um 18. öldina. Þetta var nú
svona helst það sem ég var að
hugsa yfir þættinum í gær.
Helga Vala Helgadóttir
Ætlaði að tékka á Sjálfstæðu
fólki með Jóni... en í stað hans
birtist allsberi kokkurinn að
pota einhverju hryllilegu priki
í afturenda svíns í dönsku
svínabúi... af hverju var ég ekki
vöruð við!
Góð Vika
fyrir söngparið
Gretu Salóme og Jónsa
Slæm Vika
Gunnar I. Birgisson,
bæjarfulltrúa og fyrrverandi bæjarstjóra
Sektaður en kveðst saklaus
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi Gunnar I. Birgisson, bæjarfull-
trúa og fyrrverandi bæjarstjóra í Kópavogi, og Sigrúnu Ágústu
Bragadóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs starfs-
manna Kópavogs, til að greiða 150 þúsund krónur hvort um sig
fyrir að hafa gefið Fjármálaeftirlitinu rangar upplýsingar sem
stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Kópavogs.
Sigrún Ágústa fól lögmanni sínum að áfrýja málinu til Hæsta-
réttar og Gunnar kveðst í yfirlýsingu vera saklaus af sakargiftum
ríkissaksóknara og hafi búist við sýknu í öllum
ákæruliðum. Hann íhugar alvarlega að
kanna hvort leyfi fáist hjá Hæstarétti til
áfrýjunar. Sækja þarf um leyfi þar sem
sektin er lægri en áfrýjunarfjárhæð.
Ákæruliðirnir voru tveir. Annars vegar
fyrir að hafa fyrir að hafa ávaxtað fé
lífeyrissjóðsins með ólögmætum
hætti og hinsvegar fyrir að
hafa veitt Fjármálaeftir-
litinu rangar upplýs-
ingar. Sýknað var af fyrri
ákæruliðnum.
HeituStu kolin á
Björguðu grillveislum um land
Gleðin var ósvikin hjá Gretu Salóme og Jónsa þegar þau
komust áfram fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva í Bakú í Aserbadjan á þriðjudagskvöld með
lagið „Never forget“. Þungu fargi var af þeim létt enda voru
þau nánast með alla íslensku þjóðina á bakinu. Tilfinningin
var því stórkostleg fyrir þau og allan
íslenska hópinn, ekki síst þul Rík-
isútvarpsins, þegar nafn Íslands
kom upp úr þriðja umslaginu.
Með frammistöðu sinni reddaði
söngparið grillveislum um allt
land á morgun, laugardaginn fyrir
hvítasunnu, en framlag Íslands
verður eitt 26 laga sem keppa í
úrslitum aðalkeppninnar.
Það má því búast við
því að víða verði
skálað fyrir og eftir
flutning lagsins og
meðan á talning-
unni stendur.
302
milljónir var tap Bakkavarar
á fyrsta ársfjórðungi ársins
2012. Þetta er viðsnúningur
upp á tæplega tvo milljarða
frá sama tímabili í fyrra
en þá var hagnaðurinn 1,6
milljarður.
3
lið hafa náð
samkomulagi
um kaup
á einum
eftirsóttasta
knattspyrnu-
manni Evrópu,
Belganum
Eden Hazard.
Hann á nú
bara eftir að ákveða sig.
50
prósent var hlutfall varnarmanna
sem skoruðu fyrir Chelsea í víta-
spyrnukeppni gegn Bayern München
í úrslitum meistaradeildarinnar um
síðustu helgi. David Luiz og Ashley
Cole skoruðu ásamt Frank Lampard
og Didier Drogba.
36 fréttir vikunnar Helgin 25.-27. maí 2012