Fréttatíminn - 25.05.2012, Síða 41
5ÍSLENSKT GRÆNMETISUMAR 2012
Geymsla
Tómatar eru ákaflega viðkvæmir
fyrir kæliskemmdum og þá má ekki
geyma í kæli, hitinn á að vera 10 –
12 °C. Tómatar sem hafa orðið fyrir
kæliskemmdum verða fljótt linir og
bragðlitlir.
marGar teGundir af
tómötum
Tómatar eru á markaði allan
ársins hring. Raflýsing er í
gróðurhúsunum, tómatarnir eru
vökvaðir með neysluvatni þannig
að hreinleikinn er tryggður.
Neytandinn getur treyst því að
íslenskt grænmeti er ekki mengað.
Býflugur sjá um að fræva plönturnar
og lífrænum vörnum er beitt.
Tómatarnir eru tíndir þrisvar í
viku, flokkaðir og pakkað í bakka.
Á bökkunum eru upplýsingar um
tómatana, frá hvaða býli þeir koma,
næringargildi, gómsætar uppskriftir
og fleira.
Íslenskir tómatar eru hollir og
ljúffengir, litafagrir og ómissandi á
matborðið.
Íslenskir grænmetisbændur bjóða
neytendum upp á margar tegundir
sem auka fjölbreytni og möguleika.
Níu tegundir af tómötum
eru nú á markaði frá íslenskum
grænmetisbændum. Bændur
hafa lagt sig fram við að þjónusta
íslenska neytendur sem best og hafa
því undanfarin ár bryddað upp á
mörgum nýjungum í ræktun.
Þessir hefðbundnu tómatar
sem allir þekkja - eru einstaklega
bragðgóðir og ómissandi í hvers
konar matargerð. Bragðgæði allra
íslenskra tómata eru m.a. tilkomin
af því að þeir fá að fullþroskast á
plöntunni.
Konfekttómatar eru mjög
bragðgóðir, sætir og mildir.
Þeir eru minni en hefðbundnir
tómatar en stærri og kjötmeiri en
kirsuberjatómatar. Konfekttómatar
sem og aðrir tómatar eru einnig
hollt og gott snakk.
stórir Heilsutómatar. Í þeim
er þrefalt meira magns af lýkópeni,
sem er í flokki karótínóíða
sem gefur tómatinum
rauða litinn. Lýkópen
er öflugt andoxunarefni
og er talið veita vörn
gegn krabbameini í
blöðruhálskirtli. Auk þess
sem andoxunarefni hægja á
öldrun.
litlir Heilsutómatar. Í
þeim er þrefalt meira magn af
andoxunarefninu lýkópeni. Tómatar
þessir eru sérlega bragðgóðir sætir
og mildir á bragðið.Lýkópen er
í flokki karotínóíða sem gefur
tómatinum rauða litinn er öflugt
andoxunarefni.
Kirsuberjatómatar eru
smávaxnir og sérlega bragðgóðir.
Bragðið er sætt og afgerandi.
Þeir henta mjög vel til að
bragðbæta og skerpa salöt eða sem
“grænmetisbitinn” í nestisboxið.
Plómutómatar einkennast
af góðu og kröftugu bragði. Þeir
eru kjötmiklir og henta því vel í
salöt, sem álegg og í hvers konar
matreiðslu. Lögun plómutómata
gerir þá ennfremur frábugðna
öðrum tómötum í útliti.
Buff tómatar eru mildir og
frískandi á bragðið. Þeir eru stórir
og mjög kjötmiklir. Henta mjög vel
í salöt og eru frábærir á hamborgara.
Kokteiltómatar eru dökkrauðir,
frekar kjötmiklir og sætir. Þeir eru
heldur minni en konfekttómatar.
Kokteiltómatar/
appelsínugulir. Þeir eru ekki
eins sætir og þeir rauðu, en fallega
appelsínugulir á lit og eru skraut í
salatið.
Tómatbrauð
300 ml vatn, ylvolgt
1 msk þurrger
1 tsk hunang
2 msk olía
1 ½ tsk salt
um 450 g hveiti (eða eftir þörfum)
4 msk rautt pestó
6-800 g tómatar, gjarna plómutómatar
20 ólífur, steinlausar
1 msk ferskt óreganó eða 1 tsk þurrkað
1 ostarúlla með beikon- og
paprikublöndu frá Ostahúsinu
100 g rifinn ostur
Það má alveg kalla þetta pizzu en
reyndar er þetta fremur brauð bakað
með tómatáleggi. – Vatnið sett í skál,
geri og hunangi blandað saman við
og látið standa í nokkrar mínútur. Þá
er olíu og salti blandað saman við og
síðan hveitinu smátt og smátt, þar
til deigið er vel hnoðunarhæft en
þó fremur lint. Hnoðað vel og síðan
látið lyfta sér í um 1 klst. Þá er deigið
hnoðað aftur smástund og síðan flatt
eða teygt út í kringlótt brauð, þykkast
út við kantana. Pestóinu smurt á
miðjuna. Tómatarnir skornir í 1-1½ cm
þykkar sneiðar (gott að kreista svolítið
af safanum úr hverri sneið) og raðað
ofan á. Ólífum og söxuðu óreganói
dreift yfir. Ostarúllan klipin í bita og
þeim dreift yfir og að lokum er rifna
ostinum stráð yfir. Látið bíða á meðan
ofninn er hitaður í 220°C. Brauðið er
svo bakað í um 20 mínútur, eða þar til
það hefur lyft sér vel og tekið góðan
lit og osturinn er gullinbrúnn. Brauðið
er best volgt en það má líka borða
það kalt
- NR
6 stk plómutómatar
1 stk agúrka
1 rif hvítlaukur
100 ml tómatsafi
safi úr 1 lime
1 tsk tabasco sósa
smá fersk mynta
1 pk fetasneiðar
Skerið tómatana, agúrkuna
og hvítlaukinn gróft. Setið
í matvinnsluvél og maukið
ásamt tómat- og limesafanum
og mintulaufunum eftir
smekk. Kryddið með tabasco
sósunni. Setjið í skálar ásamt
fetaostinum og skreytið með
myntulaufi. - HS
Smjörsteiktir sveppir
Lífrænar varnir og
nýting býflugna í
ræktun
Íslenskir garðyrkjubændur hafa um árabil notað lífrænar
varnir og býflugur við ræktun á íslensku grænmeti. Byggt
er upp sjálfbært vistkerfi í gróðurhúsunum og óæskilegum
meindýrum og öðrum skaðvöldum eytt með því að hafa
önnur vinnusöm nytjadýr sem lifa beint á skaðvöldunum
sjálfum. Þessir ágætu vinnukraftar lifa þannig á skaðvöldunum
og útrýma þeim eða halda þeim algjörlega í skefjum. Besti
vinur garðyrkjubóndans er þó án efa býflugan sem er afar
vinnusöm og passar upp á frjógvun plantnanna um leið og
hún nær í hunang í blómin. Góð frjógvun er einmitt ein af
meginforsendum góðrar uppskeru.
Mikil þróun hefur verið í notkun lífrænna varna og
býflugna um allan heima en þetta fyrirkomulag þykir henta
sérstaklega vel hér á landi þar sem tiltölulega lítið er um
meindýr í samanburði við lönd sunnar í Evrópu.
forréttur og um að gera að vera
duglegur að bjóða upp á þennan
rétt á meðan tómatarnir eru svona
góðir“, segir Sigurlaug Margrét og
segir uppskrifina fyrir fjóra.
10 góðir og stórir og að sjálfsögðu vel
þroskaðir tómatar
Handfylli af fersku basil
Hvítlauksrif
Salt og nýmalaður pipar.
Byrjið á því að flysja tómatana með
því að skera í þá, setja í stóra skál og
hella sjóðandi vatni yfir þá , það gerir
það að verkum að auvelt er að flysja
þá. Skerið Í fjóra hluta og fræhreinsið.
Saxið í litla bita, rífið niður basilblöð,
hellið góðri ólífuoíu yfir og blandið
saman. Kryddið með salti og piar.
Grillið gott brauð (súrdeigsbrauð
er kjörið í þenna forrétt) hellið smá
olíu yfir hverja brauðsneið og nuddið
hvítlauksrifi á brauðið. Raðið á disk
og setjið tómatablönduna ofan á og
berið fram strax.
8- 10 tómatar/plómutómatar
Pipar og salt
Olífuolía
Balsamedik
400 g. pasta
Klettasalat
Olíunni dreift í eldfast mót og
tómötum, sem skornir hafa
verið í fjóra hluta raðað í það.
Tómatar kryddaðir með salti og
pipar og balsamikediki dreift
yfir þá.
Bakað í ofni í u.þ.b. 40 mín við 150 gráður.
Pastað soðið í saltvatni samkvæmt
leiðbeiningum á pakka.
Pasta og klettasalati blandað saman og
tómötum raðað yfir. - NR
Pastasalat með tómötumKöld plómutómatsúpa með fetaosti og mintu