Fréttatíminn - 25.05.2012, Page 52
44 bílar Helgin 25.-27. maí 2012
-þegar gæði verða lífsstíll
Höfðahöllin er flutt
að Funahöfða 1 við
hliðina á Bílalind
Við seljum bílinn þinn
meðan þú slappar af
Mikil sala!
Vilt þú selja bílinn þinn?
Settu hann á skrá
hjá okkur frítt!
Funahöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | hofdahollin@hofdahollin.is
Funahöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 580 8900 | bilalind.is
Fylgstu með
okkur á Facebook
Kæmist hringinn á
38,8 lítrum
SparakSturSkeppni ToyoTa yaris dísil sigraði
s paraksturskeppni FÍB og Atlantsolíu lauk á þriðjudags-
kvöld. Fimm bifreiðaum-
boð sendu alls 34 bíla en
mikill meirihluti þeirra
var knúinn dísilvélum, að
því er fram kemur á síðu
Atlantsolíu. Sigurvegari
í keppninni var Júlíus
Helgi Eyjólfsson sem ók
Toyota Yaris með 1.4 dísil-
vél. Hann ók kílómetrana
143,5 með eyðslu sem nam
2,91 lítra á hverja ekna
100 kílómetra. Þetta sam-
svarar því að Toyota Yaris
bíllinn komist hringinn í
kringum landið, það er að
segja 1.333 kílómetra, á
38,8 lítrum. Júlíus Helgi
er kerfisstjóri hjá Toyota
en hann varð einnig Ís-
landsmeistari í sparakstri
í fyrra.
Ómar Ragnarsson ræsti
bílana af stað en hann er
mikill áhugamaður um
sparneytna bíla. Kaupend-
ur bíla velta nú orðið mjög
fyrir sér eyðslu þeirra
vegna hins háa eldsneytis-
verðs. Ekinn var 143,5
km hringur sem hófst á
bensínstöð Atlantsolíu
við Húsgagnahöllina við
Bíldshöfða. Ekið var um
Mosfellsdal og Mosfells-
heiði, Grafning og Gríms-
nes, gegnum Selfoss,
framhjá Eyrarbakka og
um Þrengslin og aftur til
Reykjavíkur.
Fimm bílaumboð sendu 34 bíla í Sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu.
Júlíus Helgi Eyjólfsson sigraði í
sparaksturskeppninni á Toyota
Yaris með dísilvél. Ljósmynd
Toyota
Flokkur Bíltegund og gerð Árgerð Ökumaður cc eyðsla
1B Kia Picanto 2011 Freyja Leópoldsdóttir 998 5,48
1B Ford Focus 2013 Gísli Jón Bjarnason 1000 5,71
1D Kia Rio 2012 Sigurpáll Björnsson 1120 3,78
1D Kia Rio 2012 Jón Haukur Ólafsson 1120 3,94
1D VW Polo 2012 Hjálmar Sveinsson 1199 4,66
2B Toyota Yaris 2011 Tómas Reynir Jónasson 1329 3,29
2B Honda Jazz 2013 Óskar Ágeirsson 1339 4,49
2D Toyota Yaris 2011 Júlíus Helgi Eyjólfsson 1364 2,91
2D Peugeot 208 2013 Heimir Guðmundsson 1397 3,05
2D Citroën C3 2012 Agnar G. Árnason 1398 3,78
2D Kia Rio 2012 Halldór Kristinn Guðjónsson 1396 4,00
3D VW Golf Bluemotion 2012 Brynjar Elefsen Óskarsson 1598 3,52
3D Citroën C3 2011 Ómar Andri Jónsson 1560 3,70
3D Skoda Oktavia 2013 Ragnar Borgþórsson 1598 3,88
3D Ford Focus 2012 Baldur N Snæland 1599 3,96
3D Kia cee’d 2011 Björn Ingi Pálsson 1582 4,06
3D Peugeot 308 2013 Haukur Gíslason 1560 4,57
3D Nissan Qashqai 2013 Daníel Orri Einarsson 1598 5,08
3D Skoda Fabia 1.6 TDI 2012 Jóhann Guðjónsson 1598 5,16
4B Toyota Auris HSD 2012 Eiríkur Einarsson 1798 4,61
4B Toyota Avensis 2012 Sigurrós Pétursdóttir 1798 5,35
4D Mercedes-Benz B-class 200 2012 Jón Haukur Edwald 1796 4,36
4D Kia Sportage 2012 Dýri Kristjánsson 1685 4,45
4D Kia Sportage 4x4 2012 Gunnar Ólason 1998 4,93
4D VW Tiguan 2012 Margeir Kúld Eiríksson 1968 5,97
5D Honda Civic 2013 Aron Andrew Rúnarsson 2199 3,68
5D Mercedes-Benz C-class 2012 Jakob Bergvin 2143 3,93
5D Mercedes-Benz GLK 220 2012 Jón Þór Jónsson 2143 4,88
5D Volvo XC60 D3 2013 Ágúst Hallvarðsson 2398 5,86
5D Mercedes-Benz ML250 2012 Ástþór Freyr Bentsson 2143 6,18
5D Kia Sorento 2011 Hafsteinn Már Sigurðsson 2199 7,64
6D Toyota Land Cruiser 150 2011 Gunnar Valur Jónasson 2982 6,92
6D Mercedes-Benz ML350 2012 Jón Baldur 2987 7,48
7D Toyota Land Cruiser 200 2012 Rúnar Már Hjartarson 4461 8,80
B ílasala hefur verið að glæð-ast að undanförnu eftir mög-ur ár frá hruni. Eins og fram
kom í Fréttatímanum fyrr í þessum
mánuði rúmlega tvöfaldaðist sala
nýrra bíla fjóra fyrstu mánuði árs-
ins miðað við sama tíma í fyrra.
Mikið stökk varð í apríl en aukn-
ingin miðað við apríl í fyrra var 250
prósent. Í síðasta mánuði seldust
alls 726 bílar miðað við 293 bíla í
sama mánuði í fyrra.
Eftir þetta samdráttarskeið er
endurnýjunarþörfin orðin nokkuð
brýn svo flotinn eldist ekki um of
enda eru bílar sífellt að verða um-
hverfisvænni og sparneytnari og
munar um það miðað við verð elds-
neytis. Þegar kemur að kaupum
á nýjum bíl kjósa margir að láta
gamla bílinn ganga upp í kaupverð
hins nýja. Bílaumboðin benda fólki
á nokkra mikilvæga hluti sem hafa
ber í huga þegar bíll er tekinn upp í
kaup á nýjum. Hér er stuðst við regl-
ur BL en væntalega eru þær svipað-
ar víðast hvar. Þar er bent á að sölu-
skoðun sé unnin af starfsmönnum
umboðsins en tilgangur skoðunar-
innar er að meta ástand ökutækis
og finna rétt verð þess. Það er réttur
eiganda bíls að fá óháðan aðila til að
söluskoða hann.
Gera þarf grein fyrir þeim lánum
sem hvíla á notuðum bíl þegar hann
er settur upp í nýjan. Algengustu
áhvílandi lánin eru bílalán en hægt
er að flytja þau á milli bíla eða sam-
eina nýju láni. Ef önnur veðbönd en
bílalán eru áhvílandi þarf seljandi
að losa þau áður en hægt er að taka
bílinn uppí sem greiðslu.
Ef lántaki óskar eftir að flytja
núverandi bílalán á milli bíla þarf
verðmæti nýja bílsins að vera nægj-
anlegt til að tryggja að veðhlutfall
haldist. Kaupandi ber sjálfur kostn-
að af veðflutningnum ef eftirstöðvar
lánsins gefa til kynna að lánshlut-
fallið sé ásættanlegt.
Sameiningarlán – eldra lán sam-
einað nýju við kaup á dýrari bíl
hentar vel þegar einstaklingur á bíl
með áhvílandi bílaláni, vill kaupa
nýjan og þarf til þess viðbótar fjár-
magn. Þá er eldri skuldin og við-
bótin sameinuð í nýtt lán. Forsenda
þessara lána er að eldra lánið og það
nýja tilheyri sama fjármögnunar-
fyrirtæki.
Gamall bíll tekinn
upp í nýjan
Margir kjósa að setja gamla bílinn upp í kaupverð hins nýja. Ýmis-
legt þarf að hafa í huga þegar það er gert.
Ford BrimBorg kynnTi Focus með ecoBoosT-vélinni
Sprækur og sparneytinn
Að ýmsu er að hyggja ef gamli bíllinn á
að ganga upp í kaupverð hins nýja.
Bílar sala nýrra Bíla glæðisT á ný
B rimborg kynnti nýju Ford Focus 1.0 EcoBoost-bílana um síðustu helgi. Fram
kemur á síðu umboðsins að þeir
hafi slegið í gegn á heimsvísu enda
sprækir og sparneytnir. Framleið-
andinn hefur sagt að stefnt sé að
því að framleiða 480 þúsund bíla
árið 2015 samanborið við 141 þús-
und árið 2011, auk þess að tvöfalda
framboð þeirra tegunda sem fást
með EcoBoost-vélinni. Hún verður
einnig fáanleg í C-Max og B-Max
síðar á árinu.
„EcoBoost-vélin er sú sparneyt-
nasta sem fyrirtækið hefur fram-
leitt og því má telja afar líklegt að
hún falli vel í kramið hjá Íslending-
um. Með nýjustu spartækni Ford,
túrbínu og háþróaðri innspýtingu
hefur verkfræðingum bílaframleið-
andans tekist að búa til afar spar-
neytna en jafnframt kröftuga vél,“
segir enn fremur.
Á sýningunni í Brimborg var
sýnd Titanium útgáfan af Ford Fo-
cus skutbíl, en einnig er hægt að
panta Trend útgáfu bílsins. Bílarnir
eru allir með nýrri 1,0 SCTi EcoBo-
ost-vél sem skilar 125 hestöflum.
Einnig er útblástur koltvísýrings í
báðum tegundunum undir 120g/
km og því fá bílarnir frítt í stæði í
90 mínútur.
Bílar í Fréttatímanum
Í dag erum við að alla um bíla sérstaklega í fyrsta skiptið
í Fréttatímanum. Bílar eru afar áhugavert efni, bæði sem þarfasti
þjónninn, sem þeir vissulega eru á Íslandi, sem og eru þeir fyrir
mörgum helsta áhugamálið.
Harðu áhuga á að koma á framfæri vörum eða þjónustu
sem hentar bíla lesendum hafðu þá endilega samband
við Baldvin á baldvin@frettatiminn.is eða í síma 532 3311
H E LGA R BL A Ð