Fréttatíminn - 25.05.2012, Side 54
46 bílar Helgin 25.-27. maí 2012
ASKJA NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · Sími 590 2160 · askja.is/notadir-bilar Opið frá kl.10-18
Verð 7.490.000 kr.
Gæða-
bíll
Mercedes-Benz
E350 4MATIC
Árgerð 2008, ekinn aðeins 14.000 km
bensín, sjálfskiptur
16” álfelgur, hraðanæmt stýri, PARKTRONIC fjarlægðarskynjari
að framan og aftan, aksturstölva, birtudeyfir, minnispakki fyrir
sæti, stýri og útispegla, leðurklætt stýri og gírstöng, skynjun
á loftþrýstingi, aftengjanlegur dráttarkrókur, 2ja svæða miðstöð,
hiti í framsætum, lykillaust aðgengi og svo ótal margt fleira.
S mábí l l i n n Vol kswagen Up, nýjasti meðlimurinn í Volkswagen fjölskyldunni, er
væntanlegur á íslenskan markað í
sumar. Bíllinn hefur slegið í gegn
víða frá því hann var kynntur á bíla-
sýningunni í Frankfurt í fyrra. Bíll-
inn þykir vel heppnaður í útliti og
hefur til dæmist selst í þúsundum
eintaka í Danmörku. Þá var hann
valinn heimsbíll ársins 2012 en val-
ið var tilkynnt á bílasýningunni í
New York. Að valinu stóðu 64 blaða-
menn frá 25 löndum.
Volkswagen Up hlaut 5 stjörnur í
árekstrarprófum EuroNcap. Í boði
verða tvær bensínvélar, 60 og 75
hestafla. Báðar eru þær 1.0 lítra.
Eyðslan er frá 4,1 lítra á hundraðið
og CO2 losunin 96 g/km. Bíllinn
er framhjóladrifinn með fimm gíra
kassa. Metanútfærsla er væntanleg
á næsta ári. Farangursrými þykir
gott miðað við smábíl, 251 lítri en
hinn nýi Volkswagen er 3,54 metr-
ar að lengd. Hann fæst þriggja og
fimm dyra.
Volkswagen-verksmiðjurnar
hafa lýst því yfir að Volkswagen Up
verði fáanlegur í GT útgáfu á árinu
2013. Vélin í GT-útgáfunni verður
einnig 1.0 lítra en með túrbínu og
mun skila 110 hestöflum. GT-bíllinn
verður því verulega sprækur fyrir
þá sem vilja taka hann til kostanna.
Aðrar verksmiðjur í eigu
Volkswagen, það er að segja hinar
tékknesku Skoda-verksmiðjur og
Seat-verksmiðjurnar á Spáni fram-
leiða einnig sambærilega smábíla.
Útgáfa Skoda heitir Citigo en Mii
hjá Seat. Útlitslega eru bílarnir
mjög svipaðir og vélarnar þær
sömu.
Volkswagen Up hefur setið einn
þessara þriggja að markaðnum
í Danmörku undanfarna mánuði.
Þar er eftirspurnin svo mikil að allt
að hálfs árs biðtími hefur verið eftir
bílnum. Skoda fylgdi síðan í kjöl-
farið og nú í maí kynnir Seat Mii
útgáfu sína og vonast til að afhenda
fyrstu bílana í júní þar í landi.
Í Danmörku er grunnútgáfa Seat
Mii kynnt á verði sem er undir 80
þúsund krónum, sem þykir afar
gott þar í landi. Það samsvarar um
1750 þúsund íslenskum krónum.
Grunnútgáfa Skoda Citigo er um
5 þúsund krónum dýrari, jafngildi
1860 þúsund íslenskra króna og
grunnútgáfa Volkswagen Up um
5 þúsund krónum dýrari en Skoda
Citigo, sem samsvarar 1970 þúsund
íslenskum krónum.
Bílar VolkSwagen Up
Hinn nýi smábíll
Volkswagen slær í gegn
Valinn heimsbíll ársins 2012. Citigo heitir útgáfa bílsins hjá Skoda og Mii hjá Seat.
Smábíllinn Volkswagen Up, heimsbíll ársins 2012.
Útgáfa Skoda, Citigo.
Útgáfa Seat, Mii.
Skutbíllinn i40 frá Hyundai. BL kynnir hann í þremur mis-
munandi útgáfum.
Bílar SkUtbíllinn i40
Kyndilberi nýrra tíma hjá Hyundai
Bíllinn er fáanlegur í þremur mismunandi gerðum. Nýja 1,7 lítra dísilvélin er sparneytin. Beinskipti bíllinn fær frítt
í bílastæði í miðborginni.
b ifreiðaumboðið BL frumsýndi nýverið lúxusbíl frá Hy-undai, skutbílinn Hyundai i40. Hann er kyndilberi nýrra tíma hjá Hyundai þar sem ríkulegur búnaður, nýtískulegar
ávalar línur fara saman með gæðum og endingu. Hyundai i40 er
kynntur með nýrri 1,7 lítra dísilvél sem í beinskiptu útgáfunni er
með uppgefna eldsneytisnotkun frá framleiðanda, í langkeyrslu,
4,3 lítrar á 100 ekna kílómetra og CO2 útblásturinn er 119gr/
km sem þýðir að ökumaður fær frítt í bílastæðin í miðborginni á
beinskiptum bíl af þessari gerð. Í sjálfskiptu útgáfunni með sams-
konar dísilvél, miða við sömu forsendur, er eldsneytisnotkunin 4,8
lítrar á hundraðið og CO2 útblásturinn 126gr/km.
i40 er fáanlegur í þrem mismunandi gerðum, Comfort, Style og
Premium, og kostar frá 5.390.000 krónum. Mikið af ríkulegum
staðalbúnaði prýðir gerðirnar en rafknúin leðursæti með minni og
loftkælingu er til dæmis staðalbúnaður í Style gerðinni og hægt er
að velja um hluti eins og leiðsögubúnað, handfrjálsan símabúnað,
hreyfanleg aðalljós, rafdrifna afturhurð og stefnuaðvörun sem
fylgist með akbrautarlínum og lætur ökumann vita ef bílnum er
ekið yfir akbrautalínu án þess að ökumaður gefi til kynna að það
sé ætlunin.
Hyundai i40 tilheyrir nýju bílunum frá Hyundai sem allir eru
seldir eru með 5 ára ábyrgð og ótakmörkuðum akstri, árlegum
gæðaskoðunum sem viðskiptavinir Hyundai geta nýtt sér án
endurgjalds, auk 24 tíma vegaaðstoðar.
Langflestir nota einkabílinn til og frá vinnu
Einkabíllinn er samgöngu-
máti langflestra Íslendinga.
Það kom enn og aftur í ljós
í svörum sem birt voru á
heimasíðu Félags íslenskra
bifreiðaeigenda. Spurt var:
„Hvernig ferðast þú aðallega
til og frá vinnu?“ Fram kom
að 72,4 prósent þeirra sem
svöruðu óku sjálfir til vinnu.
Reiðhjólið kom næst en nú á
vordögum hefur verið lögð
mikil áhersla á notkun þess.
Alls hjóluðu 9,3 prósent
svarenda í vinnuna. Þá komu þeir sem
nota góða veðrið og ganga til og fram
vinnu. Það gera 7,8 prósent svarenda.
Strætisvagna notuðu 6,2 prósent
svarenda og 4,3 prósent þeirra fengu far
með öðrum.
Alls bárust 656 svör við spurningunni.
Árstíminn ræður væntanlega einhverju
um það hversu margir hjóla og ganga.
Þeir möguleikar eru síður fyrir hendi
þegar illa viðrar og aðstæður eru verri yfir
vetrartímann. En sama er hver árstíðin er,
yfirburðir einkabílsins í samgöngum eru
algerir.
Askja Notaðir bílar hefur flutt starfsemi sína á Klettháls 2.
askja notaðir bílar
Starfsemin flutt á Klettháls 2
Askja Notaðir bílar
hefur flutt starf-
semi sína á Klett-
háls 2 í Reykjavík.
Þar verður
boðið upp á mikið
úrval nýlegra og
notaðra bíla, að
því er fram kemur
í tilkynningu. Askja
Notaðir bílar var
áður í höfuðstöðv-
um bílaumboðsins
Öskju að Krókhálsi
11 en þar verða
áfram nýir bílar sem
fyrirtækið er um-
boðsaðili fyrir, það er að segja Mercedes
Benz og Kia sem og verkstæði og skrif-
stofur.
„Markmið okkar með breytingunni er að
komast nær viðskiptavinum og markaði
notaðra bíla. Á bílasölusvæðinu á Klett-
hálsi eru að minnsta kosti sex aðrar
bílasölur og því mikill markaður með
notaða bíla. Þar er rúnturinn hjá fólki sem
er að leita að notuðum bílum og því eðli-
legt fyrir okkur að vera í hringiðunni. Við
munum bjóða upp á mikið úrval nýlegra og
notaðra bíla,“ segir Jón Trausti Ólafsson,
framkvæmdastjóri Bílaumboðsins Öskju.
Kristinn Sigurþórsson og Gunnar Haralds-
son eru sölumenn Öskju Notaðra bíla
en þeir hafa mikla reynslu og þekkingu í
þessum geira.