Fréttatíminn - 25.05.2012, Side 56
48 heilsa Helgin 25.-27. maí 2012
Næringarefni í spínati (1 bolli soðið spínat, 180g)
Næringarefni Hlutfall af
ráðlögðum dagsskammti
K-vítamín 1110,6%
A-vítamín 377,3%
Mangan 84%
Fólínsýra 65,7%
Magnesíum 39,1%
Járn 35,7%
C-vítamín 29,4%
B2-vítamín 24,7%
Kalsín 24,4%
Kalíum 23,9%
B6-vítamín 22%
Tryptófan 21,8%
E-vítamín 18,7%
Trefjar 17,2%
Kopar 15,5%
B1-vítamín 11,3%
Prótein 10,7%
Fosfór 10%
Sínk 9,1%
Kólín 8,3%
Omega-3 fitusýrur 7%
B3-vítamín 4,4%
Selen 3,8%
Hitaeiningar (41) 2%
Þ órdís Sigurðardóttir, sem var annar eigandi Happ-veitingastaðanna, hefur opnað nýjan heilsusamlegan veitingastað í Austurstræti,
þar sem Happ var áður til húsa.
Þórdís er farin út úr samstarfinu við Lukku Páls-
dóttur, hins eiganda Happ sem mun áfram reka Happ
í Borgartúni.
„Nýi staðurinn nefnist Aldin. Við leggjum áherslu
á hollan og góðan mat með skjótri og góðri þjónustu,“
segir Þórdís. „Okkur langaði að vera með það sem við
köllum heiðarlegan mat úr ferskum hráefnum. Ein-
faldan mat sem við myndum vilja borða sjálf og borga
sanngjarnt verð fyrir,“ segir hún.
„Lögð er áhersla á morgunverð þar sem í boði er
skyr og avókadójógúrt, croissant og brauðkörfur.
Við bjóðum líka upp á ómótstæðilegt bakkelsi sem
Kristín kokkur bakar sjálf. Í hádeginu getur fólk
valdið milli kjöt- eða fiskréttar og svo ræður fólk hvað
það vill mikið af salati með. Við erum með úrval af 6-8
tegundum salats, svo sem brokkólísalat, kartöflusalat
og rauðrófusalat. Það er einnig í boði að velja einungis
salat og við erum því „vegetarian-friendly“,“ segir Þór-
dís. Hún segir að einnig sé boðið upp á að fólk komi
og kaupi mat og taki með sér heim og það sé mikið
nýtt í hádeginu sem og á kvöldin.
Staðurinn hefur verið opinn í fáeinar vikur og segir
Þórdís viðtökurnar góðar. „Þetta fer vel af stað og við
erum að sjá breiðari hóp viðskiptavina en áður með
þessum breyttu áherslum,“ segir hún.
Þórdís hefur um nokkurra ára skeið tekið þátt í
uppbyggingu á Happ. Hún segist nú ætla að einbeita
sér að því að byggja upp hinn nýja veitingastað sinn,
Aldin. Spurð hver kveikjan að opnun staðarins hafi
verið segir hún að það hafi verið að opna stað með
hollum og góðum mat þar sem boðið er upp á hraða
og góða þjónustu.
Þórdís stundaði nám Í Institution of Integrative
Nutrition þar sem kynnt var breið hugmyndafræði
varðandi mat og áhrif matar. „Svo hef ég alltaf haft
mikinn áhuga á matargerð og fundist vanta akkúrat
þetta konsept hér á Íslandi. Við teljum að við séum
með svolítið nýtt. Við erum að kenna fólki að nærast
vel og rétt,“ segir Þórdís.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Kennum fólki að
nærast vel og rétt
Nýr veitinga-
staður, Aldin,
opnaði nýverið
í Austurstræti,
þar sem Happ
var áður til
húsa. Þórdís
Sigurðardóttir
eigandi segir
að hugmynda-
fræðin að baki
sé sú að kenna
fólki að nær-
ast vel og rétt
með hollum og
góðum mat.
Svanhildur Gréta
Kristjánsdóttir
borðar morgun-
mat á Aldin, veit-
ingastað móður
sinnar, Þórdísar
Sigurðardóttur.
AlDin Nýr veitiNgastaður
Hráfæðiunnendur hafa haldið því fram
árum saman að fátt jafnist á við hollustu
hráfæðis. Nú vilja sumir dýralæknar og
gæludýraeigendur jafnframt halda því fram
að hráfæði sé það besta sem hægt er að gefa
dýrinu.
Sharon Misik, Siberian Husky-eigandi,
segir í samtali við New York Times að hún
og eiginmaður hennar hafi eytt hundruðum
þúsunda króna í dýralæknakostnað vegna
husky-hunda sinna tveggja vegna veikinda
sem engin skýring fannst á. Hundarnir áttu
bágt með að éta, voru með alvarlegan niður-
gang og virtust verulega veikir.
Þegar ekkert annað virtist hjálpa prófaði
hún hráfæði þó svo að nokkrir dýralæknar
mæltu gegn því þar sem þeir töldu að hund-
arnir kæmust í snertingu við hættulegar
bakteríur. Hún ráðfærði sig við dýralækni
sem var á hennar bandi og hóf að næra hunda
sína á frost-þurrkuðum kjúklingi og nauta-
kjöti. Munurinn á hundunum, fyrir og eftir,
reyndist ótrúlegur, að sögn Sharon.
Hráfæði fyrir gæludýr er sá hluti gæludýra-
fóðursmarkaðarins í Bandaríkjunum sem fer
hvað örast vaxandi. Gæludýraeigendur á borð
við Sharon, sjá í auknum mæli kosti hráfæðis
í kjölfar fjölda innkallanna á dýrafóðri um all-
an heim sem orsakað hafa dauða eða alvarleg
veikindi hundruð gæludýra. -sda
GæluDýrAfóður HráfæðimarkaðuriNN stækkar mest
Gæludýraeigendur velja hráfæði í auknum mæli
Margir gæludýraeigendur í Bandaríkjunum eru farnir að gefa hundunum sínum hráfæði. Það er spurning
hvort hráfæðiæðið á Íslandi verði til þess að íslensk gæludýr fái notið hins sama.
Fjölþrepa
bakbrettið
• Teygir á hrygg og bakvöðvum
• Minnkar vöðvaspennu
• Linar bakverki
• Bætir líkamsstöðu
• Auðvelt í notkun Verð: 7.950 kr.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18
Ný kynslóð
Rafskutlur
-frelsi og nýir möguleikar
Einfaldar í notkun og
hagkvæmar í rekstri
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18