Fréttatíminn - 25.05.2012, Qupperneq 76
SENDU SMS SKEYTIÐ
ESL MIB3
Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ.
MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
WWW.SENA.IS/MIB3
FULLT AF VINNINGUM:
BÍÓMIÐAR
TÖLVULEIKIR - DVD MYNDIR - GOS OG FLEIRA!
AFTUR TIL FORTÍÐAR...
TIL AÐ BJARGA FRAMTÍÐINNI
VILTU
VINNA
MIÐA?
KOMIN Í BÍÓ Í 3D!
Þ etta er lokaverkefni mitt úr Listaháskólanum. Ég útskrifast úr vöruhönn-
un nú í vor,“ segir Jón Helgi
Hólmgeirsson um grammafón
úr pappa sem hann hannaði og
hefur vakið athygli erlendis.
„Við völdum eitt orð og ég
valdi orðið hljóð,“ segir Jón
Helgi en hann er 24 ára gamall
gítarleikari í Ultra Mega
Technobandinu Stefán sem
og söngvari í hljómsveitinni
Sing for Sandra. Hugmyndin
var að tengja saman tónlist
og hönnun og segir Jón Helgi
að vínylplötuáhugi hans hafi
leitt hann inn á brautir plötu-
spilarans eða grammafónsins
eins og hann kallar hann.
„Grammafónninn er eins konar
táknmynd upphafs tónlistar á
föstu formi en fyrir hans tíma
var ekkert annað í boði en lif-
andi tónlist,“ segir Jón Helgi.
Hann segist í upphafi hafa
byrjað að gera tilraunir með
pappa og nálar og fengið góð
ráð hjá Páli Einarssyni vöru-
hönnuði og Finnboga Péturs-
syni hljóðlistamanni. „Síðan
þróaðist þetta út í grammafón
sem magnar upp hljóð með
pappabolla,“ segir Jón Helgi.
Spilarinn sjálfur er settur
saman úr þunnum krossviði
og inniheldur einfalt rafkerfi
sem hægt er að keyra á 9 volta
rafhlöðu, eða tengja hann við
9 volta straumbreyti. Lúðurinn
samanstendur af kartonpappír,
nál, plastfilmu, stálvír og botni
úr pappabolla sem sér um að
magna upp hljóðbylgjurnar
sem nálin leiðir upp frá plöt-
unni. Efniviður lúðursins litar
tónlistina, gefur henni ákveðn-
um blæ og einkennist því sú
tónlist sem spiluð er í gegnum
jónófóninn af pappír. Jón
Helgi viðurkennir að hljóð-
ið sé gróft. „Það er meira
verið að sýna fram á
virkni heldur en gæði,“
segir Jón Helgi sem
Hönnun Hljómflutningstæki
Útbjó plötuspilara úr pappa
Ungur listaháskólanemi hefur vakið mikla athygli fyrir nýstárlegan plötuspilara sem hann bjó til
í lokaverkefni sínu í vöruhönnun. Spilarinn er úr pappa, gengur undir nafninu Jónófón og hefur
fengið umfjöllun á erlendum hönnunarsíðum.
Jón Helgi vonast til að hægt verði
að fjöldaframleiða Jónófóninn.
Nánari upplýsingar um
spilarann má finna á
jonhelgiholmgeirs.com.
Ljósmynd/Hari
Plötuspilarinn úr
pappanum sem
gengur undir
nafninu Jónófón.
Ljósmynd/Héðinn
Eiríksson
Það tekur tuttugu til þrjátíu mínútur að
púsla Jónófóninum saman að sögn Jóns
Helga. Ljósmynd/Héðinn Eiríksson
kallar fyrirbærið Jónófón. „Það er bara
sjálfhverfa,“ segir hann og hlær.
Og spilarinn hefur vakið athygli
erlendis. „Ég er að skoða næstu skref.
Það er ekkert ákveðið. Eftirspurnin
er mikil og það væri skemmtilegast að
setja þetta í framleiðslu. Ég þarf samt
að laga nokkra hnökra til að þetta sé til-
búið í framleiðslu. Þetta verður að vera
í lagi ef það á fjöldaframleiða þetta,“
segir Jón Helgi.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
68 dægurmál Helgin 25.-27. maí 2012