Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.02.1920, Qupperneq 3

Læknablaðið - 01.02.1920, Qupperneq 3
lOIHIllll 6. árgangur. Febrúar, 1920. 2. blað. Áfengiö og læknarnir. Erindi flutt í Læknafélagi Reykjavíkur. Eftir Sæmund Bjarnhjeðinsson. FormatSur okkar hefir mælst til, a‘S eg segSi nokkur orS í kvöld um bannl. og læknana eöa öllu frernur hiS svonefnda 1 æ k n a b r e n n i v í n. Kvað mig hafa veriö einn þeirra, sem stuSla'ö hef'Su aö því, aS leiSa asnann inn í herbúSirnar eSa vínin inn á hina löggiltu lyfjaskrá vora, og þar meS koiniö þeirn undir urnsjón læknanna. Þeir eru þeir einu, sem rjett höföu og hafa til aS gefa fólki ávísun á vínanda — til lækninga. Aö vísu er auk þess nú ætlast til, aö lögreg'lustjórar ávisi til iö;n- a S a r af spiritus, því sem nauösynlegt er og svo til áttavita á skipum. Auk þess þurfa lyfjabúöirnar auövitaö allmikiö af spiritus til lyfjatilbún- ings og örlítiö af konjaki og vínum. Annars mega lyfsalar ekki afhenda neitt af áfengi nerna eftir ávísun frá læknum, nema fáein grömm af Hoffmannsdropum, kamfórudropum kínadropum og því um líkt. Væri nokkuð afhent úr lyfjabúöunum annars, án fyrirsagnar lækna, væri þaS auövitað brot gegn bannlögunum, og fólkið veit þaö vel, og þess vegna er alt það áfengi, sem kemur úr lyfjabúðunum nefnt einu nafni læknabrennivínið. Eins og okkur öllum er kunnugt, var ástæöan til þess, aö mikill meiri hluti læknastjettarinnar áriö 1915 sótti það svo fast, að teknar yröu upp i lyfjaskrána flestar þær almennu vintegundir, sem notaöar eru víösvegar um heitn sem læknislyf, sú, aö ekki var unt aö ná í þær annarstaSar. þar sem hvergi var hægt aö visa fólki á neinn staö, sem rétt heföi til aö versla nieð þess konar. Læknastéttin gat alls elcki sætt sig viö þaö, aö stjórn eöa löggjafarvald færi aö ákveða hvaöa nieöul viö brúkuöum handa sjúklingum okkar, og jafnvel ekki þótt um jafn viösjált efni væri a'ð ræða sem vínanda. ViS lítum svo á, og eg geri ráð fyrir, aö læknastéttin geri þaö enn, aö paö mundi þó, aö öllu satnanlögöu, veröa heillavænlegra sjúklingunum, aö læknarnir segöu fyrir um lækningaaöferöina. Þvi það er engin trygging fyrir því, aö nokkur læknisfróöur rnaöur sitji í stjórn eða á þingi og væri því mjög undir hælinn lagt, hvort löggjafarvaldið eöa stjórnin meö sínum besta vilja, gæti fundiö önnur betri ráö, þvi fremur væri hætt viö því, þar sem vitanlega gæti komiö fyrir, aö kapp réði meiru en vitsmunir og jiekking.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.