Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.07.1921, Side 6

Læknablaðið - 01.07.1921, Side 6
ÍOO LÆKNABLAÐIÐ komiö, aö svo stöddu aö gera ályktanir um sérstakar kröfur til aö bygðir séu læknisbústaðir eöa sjúkraskýli, þar sem þau eru ekki fyrir.“ 3. Frá Stgr. Matth.: „Fundurinn vill að styrkur úr ríkissjóöi til bygg- ingar og viöhalds sjúkraskýla og sjúkrahúsa verði hækkaður um helming viö þaö, sem nú er ákveðið í lögum.“ Þ. Edilonsson geröi grein fyrir tillögu sinni, mælti meö smáskýlum, sér- staklega vegna berklaveikra. G. Hannesson kvaðst samþykkur andanum í ræðu Þ. Sv., þótt ekki hefði sér fundist hann tala aö öllu þinglega. Fjárhagsástæöur lands og almennings væru verri en flestir héldu. Eigi aö síöur væri heilt tíéraö, þó fátækt væri betur sett. aö sjá lækni fyrir bústað, en ungur læknir sem ekkert ætti nema skuldir. Skýröi frá ástæöum í Nauteyrarhéraði (land- lækni var genginn af fundi), og hvcrsu gengi með breytingar á bústöð- um lækna í Noregi, breytingar væru leyfðar, ef læknir óskaöi og þær þættu aðgengilegar, en siunar myndu læknar verða aö kosta gjálfir Sjúkraskýli myndu smámsaman risa upp i öllum héruðum, þó ekki væri af annari ástæðu en þeirri, aö duglegur og framkvæmdarsamur læknir kemur ætiö viö og viö í héruðin, hann krefst sjúkrahúss, og héraðsbúar eru þá fúsir til þess að styðja máliö. Viö hinu veröur ekki gert, þótt slík skýli starfi litið þess á milli. Ól. Gunnarsson benti á, aö ekkert skýli gæti veriö minna en 4 rúm. Grasnyt þyrfti læknar oft, vegna mjólkur (til sjúkl. o. fl.) og hesta, sem væru nauðsynleg eign. — í Reykjarfj.hér. vildu héraösbúar bæta 1000 —1500 kr. við laun læknis, ef læknir fengist. — Þ. Sveinsson mælti frekar meö tillögu sinni, vegna fjárhagsástands o. fl. Vildi, aö ríkið styrkti sjúkra- húsin riflega vegna ástæöa almennings. G. H. sagöist sjálfur hafa komiö uppdráttarmálinu áleiöis. Taldi nær liggja sjúkratrygging en ríkisstyrk, til styrktar sjúkl. Ing. Gíslason stakk upp á nefnd í málinu. Kosnir: Jón Jónsson, Steingr. Matth. og Ingólfur Gíslason. Samþykt var aö halda fundi áfram kl. 9V2 um kvöldið. Þá var fundi haldið áfram kl. 9^2- IV. Maggi Magnús flutti erindi um samræöisj úkdóma og ráðstafanir gegn þ e i m: Hann mintist á aðgerðir seinasta fund- ar og samþykt þá, sem þá var gerö. Kvað ekkert hafa verið framkvæmt nema útgáfu bæklings G. H., sem bæði hefði galla og væri seldur, en þyrfti aö fást ókeypis. Hann taldi fyrst og fremst nauösynlegt, að s j ú k 1. v æ r u skyldaðir til þess aö láta lækna síg. Af því leiddi aftur, að læknjing þyrfti að vera ókeypis fyrir alla, eða aö minsta kosti suma. Þá þyrfti læknir að hafa vald til þess aö neyöa sjúkl. til lækningar, ef. með þarf. Þá væri ekkert eftirlit meö sjúkl. meö mb. ven., hvort þeir fóstruöu börn, giftu sig o. s. frv. Reglur þyrftu og aö vera prentaðar. til að útbýta sjúkl. — Þá mintist hann á áhrif löggjafar í þessum efnum erlendis. Sagöi þau engin, eftir skýrslum aö dæma. Aftur hafði lækningin komið sjúkl. aö miklu gagni, tjóniö af sjúkd. orðið minna. Ræöum. gat þess, aö hann hefði samið uppkast að lögum um' mb. ven., og las upp aöal- atriöi þess. Þá mintist hann á kostnaöinn, taldi liklegt, aö hann yrði nú

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.