Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.09.1921, Page 10

Læknablaðið - 01.09.1921, Page 10
136 LÆKNABLAÐIÐ Frá læknamótinu í Niirnberg. Dagana fyrir hvitasunnuna, hinn 12., 13. og 14. maí, var fjölsótt lækna- mót (kongress) háö í Niirnberg. — Til þess var boöaö af „Deutsche otolog. Gesellschaft“ og „Verein. Deutscher Laryngologen", 0g undir- búiö af stjómum beggja, á hinn prýöilegasta hátt. Mótiö sóttu, auk Þjóöverja — sem fjölmentu mjög — Austurríkis- menn, Chechoslowakar, Ungverjar, Svisslendingar og Hollendingar. Auk þess strjálingur frá öörum þjóöum, m. a. 2 Svíar, 2 Grikkir og 1 ísl. Englendingar, Norömenn, Danir og Frakkar sáust ekki þar. Hina síö- astnefndu, eina sér, hafa próf. hér útilokað frá Háskólaklinikum. — En það er önnur saga. Á dagskrá hins visindalega hluta mótsins voru 70 fyrirlesarar'; flestir með 2 atriði og nokkrir meö 3. Auk þess bættust þó nokkrir viö, á mót- inu sjálfu. — Hvernig hægt yrði að pæla i gegnum alt þetta „pensum“ ásamt tilheyrandi umræöum (þar sem hver vill ota sínum tota og láta ljós sitt skína) á 3 dögum, með 4 + 3 tíma fundum á dag, var flestum ráögáta (og mörgum áhyggjuefni að þeir yr.öu skornir niöur) og þó tókst Þjóðverjunum þaö prýöisvel, meö stundvísi, reglu og umfram alt röggsamri fundastjórn. Fyrirlestrarnir og demonstrationirnar voru auðvitað allar úr þessari sérgrein, og hafa síöur alment gildi fyrir lækna, sem utan hennar standa. Þó voru margir mjög interessant fyrir kirurga sérstakl., sem von er til. þar sem fræðigreinin er afspringur kirurgiunnar og telst í sama flokki. — Einn fyrirlestur þar, sem mikla athygli vakti, nær þó til allra lækna. Veröur hans því nánar minst. — Hann hélt sænskur kvenlæknir, Dr. Agda Hofvendahl, frá Stokkhólmi, um „D i e Bekámpfung der Cocainvergilftung. Praktische Rátschláge. Haföi hún gert tilraunir á hundum, köttum, kanínum, marsvínum — og loks á öpum og komist að eftirfarandi niðurstööu: 1) Að áhrif áreiðanlega banvænnar inntöku af cocaini megi „u p p- h e f j a“ með viðeigandi krampaeyöandi lyfi, og í mjög mörgum tilfell- um hefir tekist að eyða áhrifunum viö t v ö f a 1 d a letal dosis,* miöaö viö Chloret. co.caic. í 10% upplausn. 2) Lyfið sem langbest hefir reynst til þess er veronalnatrium (og derivat barbitursýrunnar sem nefnist Somnifen). Þaö hefir reynst miklu betur en Chloral og Scopolamin, af því aö það hefir stærstu „therap. virkningsbredde." 3) Eftir letal-inntöku af cocaini 0g byrjuö eitrunareinkenni hefir Amyl- * Eg held aÖ dosering veröi altaf individuel svo aldrei verði fyllilega ákveðinn „normal" maximal d. eða lelal dosis, t. d. hafði eg einu sinni deliriumsjúkl. til meðferðar, var sá bœði stór og feitur. Eg hafði síðla kvölds gefið 1 grm. veronal og 20 dr. guttæ rosese saman. En fólkið sem gætti hans gaf honum hverja inn- tökuna á fætur armari og kl. 5 um nóttina seig á hann mók. Hafði liann þá fengið 5 skamta (0.5) og 230 — tvö hundruð og þrjátíu — dropa guttæ roseæ. — Hann svaf þó að eins 2 tíma en var rólegur úr því og á fcrli daginn eftir.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.