Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.1922, Síða 12

Læknablaðið - 01.02.1922, Síða 12
26 LÆKNABLAÐIÐ í þa'ð mál hér, en vegna strjálbygöar og erfiðra samgangna á landi hér virðist radíum að öðru jöfnu heppilegra, þar eð oftast nær niá takast að framkalla amenorrhoe með einni radíuminnlagning, en tiísvarandi rönt- genlækning tekur nokkrar vikur. Hlé varð á rekstri R.stofunnar 1917, þar eð ekki var unt að fá rafmagn frá 30. ág. til ársloka. Ennfremur var lokað 5 fyrstu mánuði ársins 1919; forstöðumaður þann tima i Sviþjóð og Englandi, til að kynnast radium- lækningum, en hafði jafnframt góðan tima og tækifæri til að stunda Röntgenologi. Hæst tala lækningageislana er 1918, enda hafði talsvert safnast fyrir af sjúklingum, meðan lokað var siðustu 4 mánuði ársins á undan. Ennfremur varð þess vart stríðsgróðaárin, að sjúklingar ættu hægra með að verja betri tíma til að leita sér lækninga en ella. Radíum- lækningar hófust 1919 og drógust þá nokkrir sjúklingar frá röntgenlækn- ingunum. Eptir því sem vélarnar hafa gerst öflugri, hefir á síðari árum stefnan verið í þá átt við flesta sjúkdóma, að nota færri en miklu sterkari geislanir en kostur var áður; þess vegna hefir geislunum fækkað, þótt sjúklingunum hafi fjölgað. Nærri þvi allir sjúklingar, sem R.stofunnar leita, koma fyrir tilvísun annara lækna. Þegar tekið er tillit til þeirra trufl- ana, seni orðið hafa á rekstrinum, má heita að sjúklingafjöldinn hafi farið árlega vaxandi. Gunnlaugur Claessen. Harðneskjukonur eftir Skúla V. Guðjónsson stud. med. Stud. med. Skúli V. Guðjónsson hefir sent Lbl. 2 sögur. Er það eftir tilmælum prófessors Guðm. Hannessonar. Er nú fyrri sagan birt í þessu blaði. Geta svona sögur lýst mjög vel ýmsu einkennilegu rneðal alþýðu og kjörum hennar. I. Eg var vikar fyrir héraðslækni nokkra hríð. — Eitt sinn sem oftar kom maður að sækja mig. Kvað hann gamla konu á næsta bæ við sig hafa dottið á stein og líklega lærbrotnað. Bjó eg mig hið skjótasta og lagði af stað. Eftir hér um bil 3 stunda harða reið komum við á bæinn. Var það reisulega bygður bær. Baðstofan var björt og rúmgóð. Hátt var upp í súðina og strompur stóð upp úr mæni. Rúmin stóðu út við vegg- ina. Brekán lágu breidd yfir. Konur sátu við tóskap en karlar tveir unnu úr hrosshári. Annar þeirra fléttaði reiptagl. Vafði hann því um bita jafn- óðum og lengdist. Hann tók bakföll þcgar hann herti að þáttunum, og dró ekki af sér þegar eg horfði á hann. Hlýtt var í baðstofunni. Olíu- lampi með stórum skerrni brann í rniðri stofu. í einu horninu lá gamla konan í rúmi sínu. Hún var um nírætt og gerði öll fjósaverkin, og þa'ð sást á höndunum, rokknum og bandhnyklunum við rúmið hennar, að ekki hafði hún setið þar auðum höndum. Eins og vant var hafði hún borið heymeisana frá heygarðinum til fjóssins, en skrikaði fótur og féll á stein-

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.