Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.1924, Síða 6

Læknablaðið - 01.03.1924, Síða 6
36 LÆKNABLAÐIÐ Á síSustu þremur árum hefi eg opereraS 36 halluces valgi, á 25 sjúk- lingum. 'Hefi eg fylgt Schedes aöferö aö mestu viö þá alla; i stuttu máli, eg hefi skorið eftir medial-röndinni frá miðjum efri phalanx hallucis, upp á mitt os metatarsi, skorið burt clavus (þegar hann hefir veriö), og bursa, bevgt síðan tána eins mikiö út á viö eins og unt hefir veriö, numiö síöan burtu með meitli, þaö af capitulum, sem þá hefir staöiö út undan basis, klipt af brúninni meö beinskærum, sléttaö og fágaö beinsárið sem best, svo að hvergi sé ójafna, lokað síðan sárinu meö catgut og Mitchel-klemm- um, reist upp tána og kipt henni sem mest inn á viö og bundið svo fótinn fastan á Ludloffs-sóla,* og haldiö þeim skoröum um tveggja vikna tima, úr þvi hefi eg látið sjúkl. fara að ganga, og hefir hann smá-liökast og venjulega verið alfær eftir 5 vikna tíma. Allir hafa gróið pr. pr. Þetta er alveg Schedes-aöferö, aö því fráskildu, aö eg tek mun meira af capitulum og geri mér far um aö færa tána i réttar skorður og halda henni þar nokkuö lengi, meöan liðsárið er aö gróa og sinarnar aö togna. 18 þessara sjúklinga, meö 27 halluces valgi veit eg um, og eru þeir í stuttu máli sagt allir góöir nema einn; þar hefir sótt i sama horfið, að komin er töluverð skekkja á tána aftur og eymsli í capitulum, en þó ekki svipað því sem var. Allir hinir eru góðir: valgusskekkjan er miklu minni, engin ankylosis, engir verkir eöa eymsli. Þegar spurt er um ástand- ið, þá svara þeir mjög oft: Eg kann mér ekki læti síöan eg var skorin. Um líðun hinna 7 sjúklinganna er mér ekki kunnugt, en tel vist, aö hún sé góð. En skilyrðið fyrir því, aö batinn haldist örugglega, er að nota hentugan skófatnaö; en mesta furöa er þó, hvaö batinn hcfir veriö endingargóður, þrátt fyrir þaö, þótt þetta skilyröi sé jafnaðarlegast brotiö. Matth. Einarsson. Diphtheria faucium. Hitt og þetta um veikina og meöferð hennar eftir Steingrím Matthíasson. VI. (Niöurl.) Skoðanir þær sem próf. Bie heldur fram um áhrifin af serum í hinni nefndu ritgerð, eru aö öðru leyti mjög einkennilegar, og að þvi er mér virðist, beinlínis stríöandi móti daglegri reynslu. Þess vegna get eg ekki stilt mig tim að gefa útdrátt úr ritgerðinni, þó eg sé ekki fær um að gagnrýna kenningarnar. Bie hefir tekiö þrjú atriöi til rannsóknar: 1. Áhrif serums á sótthita. 2. Áhrif serums til aö hindra útbreiöslu skófa. 3. Áhrif serums til aö losa skófir. * Ludloffs sóli er pappaspjald sniðið eftir fæti og klofið að framan, svo að binda megi stórutjána sér, og er stórutáar-hlutinn látinn vita heldur meira inn á við en að réttu lagi.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.